Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2001, Síða 56

Læknablaðið - 15.06.2001, Síða 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / UNGAR KONUR í LÆKNASTÉTT skemmtilegt, þær hlökkuðu til að mæta, þátt fyrir annríki og þegar námskeiðið var búið var þegar farið að huga að því að leita að nýju námskeiðis sem fylgdi þessu eftir. En hvað var það einkum sem þeim fannst gagnlegt? Sigríður: „Námskeiðið var byggt upp á mjög almennan hátt og kemur því að mjög víðtækum notum. Pað var fjallað um hvernig koma ætti sínum málum á framfæri, til dæmis með því að æfa raddbeitingu ..." Hulda: „... samningatækni og hvernig er hægt að fylgja hagsmunamálum sínum eftir.“ Finuið þið fyrir því að þurfa frekar að láta að ykkur kveða en eldri starfsbrœður? Sigríður: „Pað kemur fyrir, það er sérstaklega eldra fólkið sem á erfitt með að sjá ungar stelpur fyrir sér sem lækna, heldur er læknir í þeirra augum virðulegur eldri maður. Við vorum um daginn að útskýra ítarlega niðurstöður úr rannsóknum fyrir gamalli konu og kynntum okkur auðvitað fyrir henni, en hún var sífellt að spyrja: Já, en hvenær kemur læknirinn, hvenær kemur sjálfur læknirinn.“ Óraunverulegt að sjá annað fyrir sér en jöfnuð Hulda: „Mér fannst viss áskorun felast í því að fara í starf þar sem karlar voru ríkjandi. Maður finnur það vel að þeir eru í meirihluta enn, til dæmis á deildinni okkar, en þetta er að breytast, ekki síst með okkar kynslóð. Mér hefur alltaf fundist sjálfsagt að geta gert það sem ég vil, án þess að hugsa um það að ég sé stelpa. En hins vegar erum við að rekast á það núna að með tímanum þykir kannski ekki sjálfsagt að við fáum stöður til jafns við karla þegar við komum úr sérnámi, alla vega er möguleiki á að svo verði. Samt finnst mér það ekki vera raunverulegt." Eruð það ekki einmitt þið sem œtlið að breyta því, ekki er það náttúrulögmál? Hulda: „Nei, það er það ekki, en tölurnar tala sínu máli. Hins vegar er aðalmálið að vera að gera það sem maður vill gera. Ég hefði ekki séð það fyrir mér að ég, svona stelpuskjáta, yrði umsjónarlæknir á Landspítalanum rétt komin úr námi.“ Sigríður: „En það er merkilegt, að í seinni tíð hafa frekar verið konur í því starfi. Ég heyrði reyndar um daginn að það væri engin tilviljun. Konur hafa þótt skipulagðari og henta betur í þetta starf.“ Spjallið við Huldu og Sigríði gefur tilefni til fullrar bjartsýni á framtíð kvenna í læknastétt, og þær benda sjálfar á að hlutverkaskipting kynjanna hafi breyst verulega, og fjölgun kvenna í stéttinni vinni með þeim. Munurinn á kynjunum er að þeirra mati síður en svo til að hafa áhyggjur af, aðalatriðið er að allir eigi það val að stunda það nám og leita í þau störf sem áhugi þeirra stendur til. Og það hafa þær hugsað sér að gera. aób Leiðrétting Með umfjöllun um forsíðumyndina á maíhefti Læknablaðsins, Lítil stúlka eftir Önnu Hrefnudóttur, birtist Ijóð sem er hluti af verkinu. Við birtingu féll niður síðari hluti ljóðsins. Ljóðið birtist hér í réttri mynd. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Læknatalið selt í yfir 1000 eintökum Læknatalið, Læknar á íslandi, fjórða úgáfa, sem út kom á síðasta ári, hefur nú selst í yfir 1000 eintökum. Ritið er í þremur bindum og hefur að geyma æviágrip meira en 2000 lækna frá 17. öld og til ársins 2000. í formála þess eru ýmsir skemmtilegir fróðleiksmolar, en ítarlegar æviskrár lækna eru vitanlega aðalefni þess. Þeir sem enn eiga eftir að eignast ritið og hafa hug á því að gera það geta nálgast það hjá bókaútgáfunni Þjóðsögu í Húsi verslunarinnar. Sími þar er 511 1777. Bókin mun einnig fáanleg í einhverjum bókaverslunum og hefur verið seld á krónur 26.900. Full ástæða er til að hvetja fólk til að skoða þetta fróðlega rit og athuga hvort ekki er ástæða til að eignast það. LÍTIL STLILKA Einu sinni var lítil stúlka sem sat oft ífjörunni og dreymdi um óskalöndin hinum megin. Seinna hinum megin, hlógu öldurnar og sögðu: Haltu áfram, óskalandið er enn handan sjóndeildarhringsins. Ég er ennþá á leiðinni. AH 556 Læknablaðið 2001/87
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.