Læknablaðið - 15.06.2001, Page 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / GJALDSKRÁRKERFI
Gjaldskrárkerfi sem stýringartæki
heilbrigðisyfirvalda
Höfundur er sérfræðingur í
heimilislækningum og starfar í
Noregi.
Vel útfærða gjaldskrá má nota sem tæki til að
stýra heilbrigðisþjónustunni. Jafnframt tryggja
þjónustu fyrir þá sjúklinga sem þurfa mest á henni að
halda. Hindrað ofnotkun hjá sjúklingum með minni-
háttar kvilla og beint þeim annað. Sé hún vel samin
getur hún einnig aukið samfélagsvitund stéttarinnar,
starfsánægju og bætt afköst.
Hér um árið urðu heilsugæslulæknar leiðir á
akkorðskerfi því sem þeir höfðu unnið eftir svo
árum skipti. Hér á ég við harkið um grænu seðlana
í dagvinnu sem allir þekkja og mörgum leiddist, en
varð þó til að launin og afköstin toguðust heldur
upp á við.
Þrátt fyrir að tiltölulega lítið væri á þessum
rukkunarseðlum að græða létu menn sig hafa
þetta fyrirkomulag sem virkaði eins og
akkorðsgulrót af minni gerðinni. Það var eins og
grænmetið kæmist aldrei nokkurn tíma upp í
kjaftinn þótt nálægt nefinu væri.
Svo skiptu menn um skoðun og fannst nóg
komið.
Menn þreyttust heldur meir á þessu harki en
nauðsynlegt var. En ég held að læknar hafi á sínum
tíma verið nokkuð samdóma um að það væri best
að vera laus við þetta kerfi, enda var þetta ekkert
orðið í krónum talið fyrir hvert viðtal. Þá virtist
nærtækasta hugmyndin að vera bara á föstum
launum og losna við pressuna sem fylgdi
akkorðinu. Þessa sögu þekkjum við öll.
Sagan er barn síns tíma en það sem mér finnst
nú eiginlega merkilegast við hana nú nokkrum
árum seinna er að hún er eitthvað svo óíslensk og
í mikilli andstöðu við það sem aðrar menntaðar
stéttir hafa barist fyrir í gegnum árin.
Mér liggur við að segja að í henni sé undirtónn
af uppgjöf.
Flestar stéttir í landinu hafa séð sér hag í að frá
greitt eftir afköstum. Það á sér djúpar rætur í
atvinnulífi til dæmis sjómanna og bænda frá örófi
að fá umbum í hlutfalli við það sem unnið er og að
vera sinn eigin herra. Verkfræðingar, arkitektar og
iðnaðarmenn svo dæmi séu nefnd, komu sér upp
uppmælingartöxtum fyrir áratugum síðan, réðu
sér aðstoðarmenn í hin léttari verkin, stofnuðu
fyrirtæki og unnu eins og hugur bauð. En læknir-
inn? Nei, hann hugsar einhvern veginn allt öðru
vísi. Ekki spyrja mig hvers vegna.
Hvar eru Sumarhús heimilislækna? Ekki hvet
ég til einyrkjabúskapar að hætti Bjarts, en hvers
vegna byggja menn sér ekki sitt eigið hús að hætti
sjálfstæðra manna?
Það segir mér nú enginn að þessi breyting yfir í
afkastahvetjandi kerfi hinna ýmsu stétta hafi
almennt reynst þjóðhagslega skaðlegt.
Þrátt fyrir þessa jákvæðu mynd verður nú varla
á móti mælt að afkastahvetjandi kerfi getur bitnað
á heilsu manna og einnig komið niður á gæðum
vinnubragðanna. Þessu er til að svara að menn
verða að sakast við sjálfan sig ef þeir vinna
óvandaða vinnu vegna tímapressu. Þetta er á
endanum siðferðisleg spurning sem starfsmaður-
inn verður að gera upp við sig. Gjaldskrárkerfi
krefst því nokkurs sjálfsaga og eftirlits ef það á að
lukkast.
Sjúklingurinn er sá aðili sem á að geta veitt að-
hald í þessu efni. Fái hann ekki eðlilegan tíma og
athygli læknisins er það hans að láta vita, kvarta
eða að hverfa á braut ef hann hefur annan valkost.
Og oftast hefur hann valkost.
Slíkt aðhald er eðli góðrar þjónustu og hún
getur ekki batnað án þessarar víxlverkunnar milli
þess sem veitir hana og þess sem þiggur. Virkt
gæðakerfi byggir á þessarri staðreynd: að fá
svörun við þjónustunni. Gæðaaðhaldið verður
fyrst og fremst að koma frá kúnnanum. En einnig
í vissu mæli frá greiðandanum (TR) og að auki
samtökum lækna.
Þessar hugleiðingar eru til að benda á að það
geti verið ástæða til að taka upp í frumheilsu-
gæslunni innheimtu taxta fyrir unnin verk. Eftir
fyrirmynd frá sérgreinalæknum, þrátt fyrir þá
annmarka sem áður greinir. í það minnsta sem
valkost í sjálfstæðum rekstri.
Öðrum sem hentar betur föst laun ætti að
sjálfsögðu að bjóðast það. Valkostir eru nútíma-
legir og auka starfánægju.
Það er yfirvalda að setja leikreglur og ramma
en okkar lækna að sjá um útfærsluna og tryggja
endurbætur og prófun nýrra hugmynda í þjónust-
unni. Annars sýnist mér við dæmdir til að staðna.
Sé taxtakerfi á annað borð notað ætti tvímæla-
laust að gilda jafnræðisregla um að líkt sé greitt
fyrir sömu verk þeirra sem hafa hliðstæða mennt-
un (og því gilda fyrir alla sérfræðinga), að því
gefnu að rekstrarformið sé sambærilegt. Ekki
sætta sig við annað.
Allir sérfræðingar ættu til dæmis í dag að fá það
Læknablaðið 2001/87 567