Læknablaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / EVRÓPUSAMSTARF LÆKNA
Fundir Comité Permanent
í desember 2000 og apríl 2001
Katrxn
Fjeldsted
Höfundur er sérfræöingur í
heimilislækningum og fulltrúi
LÍ í Comité Permanent.
í DESEMBER SÍÐASTLIÐNUM VAR HALDINN FUNDUR HJÁ
Comité Permanent (CP) og sótti undirrituð hann
sem fulltrúi Læknafélags íslands. Eins og fram hefur
komið áður eru CP heildarsamtök evrópskra lækna
og funda þau að jafnaði tvisvar til þrisvar árlega,
yfirleitt í Brússel. Fjármál samtakanna settu tals-
verðan svip á desemberfundinn. Fyrirtækið Price-
WaterhouseCoopers hafði verið fengið til að endur-
skoða fyrri ársreikninga og gerði miklar athuga-
semdir við ársuppgjör fyrir 1998 og 1999 og virtist
sem ekki væru til næg gögn um tæplega fimm milljón
króna greiðslur alls. Af þeirri upphæð var ekki ljóst
hvert rúm milljón hefði runnið. Þetta varð til þess að
reikningarnir fengust ekki samþykktir og var
afgreiðslu þeirra frestað til aprílfundar, svo og
ákvörðun um árgjald aðildarfélaga. Dagana 26.-28.
apríl í vor var svo farið yfir málin að nýju. Gjaldkeri
CP, prófessor Vilmar og endurskoðandi félagsins,
portúgalski læknirinn dr. Pedro Nunes, stóðu í
ströngu fyrir fundinn og á honum en talið var að
vafaatriði hefðu þá skýrzt nægilega og voru fyrri
ársreikningar loks samþykktir. Ljóst má telja að
breytingar þær sem gerðar hafa verið á starfsemi
samtakanna í tíð núverandi stjórnar, þar sem beitt
hefur verið aðhaldi, sem og ytri og innri endur-
skoðun, verði til þess að óreiða af þessu tagi megi
teljast úr sögunni.
Á desemberfundinum voru Pólland og Eistland
tekin formlega inn í samtökin og eru því
aðildarlöndin orðin 19. CP hefur fylgzt með
viðræðum um stækkun Evrópusambandsins og
Rainer Brettenthaler verið fulltrúi framkvæmda-
stjórnar CP. Mikilvægt er að hafa náið samstarf við
kollega í væntanlegum ESB löndum svo að tryggja
megi gagnkvæma viðurkenningu á réttindum og
sambærilega heilbrigðisþjónustu í aðildarlönd-
unum.
Verklag hjá CP
Fyrstu tvo dagana koma undirnefndir CP saman og
fara yfir verkefni sín, fella eða mæla með málum sem
síðan koma til kasta aðalfundar (General Assembly)
síðasta daginn en þar eru þau endanlega afgreidd.
Þetta er nokkuð seinlegt fyrirkomulag en þó tryggir
það að mál séu vel unnin. Mér var sagt áður en ég fór
á minn fyrsta CP fund vorið 2000 að það gæti jafnvel
tekið mörg ár að breyta kommusetningu í skjölum og
samþykktum CP, en með nýju verklagi gengur vinnan
mun greiðar en áður. Skjöl eru send út fyrirfram og
telst mér til að þau hafi verið um hálft hundrað sem
ég fékk í tölvupósti í vor og svo bættust nokkur við á
fundinum sjálfum.
í nefnd um fyrirbyggjandi læknisfræði og
umhverfið (Preventive Medicine and
Environment Subcommittee) er verið að fjalla um
nýstofnaðan vettvang fyrir heilbrigðismál
(European Health Forum, CP 2001/005), tóbak og
ekki sízt þá fjármuni sem varið er til að styrkja
tóbaksframleiðslu sem búgrein (CP 2001/044),
Matvælastofnun og öryggi matvæla (Food Safety
Authority, CP 2001/039 og fleira) til dæmis vegna
díoxíneitrunar, kúariðu og erfðabreyttra matvæla
(en þótt 100 manns hafi látist út kúariðu í Evrópu
deyja 10.000 í Þýzkalandi árlega úr inflúensu og
enginn talar um að skylt þyrfti að vera að
bólusetja, sagði Zollner frá UEMS), næringu,
atvinnusjúkdóma, öryggi í umferðinni (42.000
deyja og umferðarslysin kosta 160 milljón evrur
árlega sagði dr. Haehnel frá Frakklandi), börn og
áfengi (CP Info 14-2001, Svíar hafa skorið upp
herör gegn áfengisneyzlu ungmenna og áhugi er
fyrir því að fleiri aðildarríki geri slíkt hið sama),
svo eitthvað sé nefnt.
í nefnd um læknanám og framhaldsmenntun
(Professional Training, CME and Medical Audit
Subcommittee, nafninu var reyndar breytt þannig
að CPD kemur í staðinn fyrir CME) bar mest á
umræðu um gagnkvæma viðurkenningu á
læknanámi og prófskírteinum, en einnig var rætt
um framtíð ACMT (Advisory Committee on
Medical Training, sem var læknisfræðileg ráð-
gjafanefnd fyrir Evrópuframkvæmdastjórnina
(European Commission) en nýtur ekki lengur
fjárstuðnings og hefur ekki komið saman í tvö ár.
Ekkert hefur formlega komið í staðinn en ef til vill
ætti CP að sinna slíku hlutverki. Ákveðið var að
setja vinnuhóp í málið). Einnig hafa læknar í
mörgum löndum áhyggjur af nýliðun í læknisfræði,
einkum í vissum sérgreinum þótt offramleiðsla á
læknum sé í sums staðar, til dæmis í Þýzkalandi. I
Bretlandi vantar 10.000 heimilislækna og þótt
stjórnvöldum hafi árum saman verið gert það ljóst,
vantar enn fjármagn fyrir ný störf.
Þriðja nefndin sinnir skipulagi heilbrigðis-
þjónustu, almannatryggingum, heilsuhagfræði og
lyfjaiðnaði (Organisation of Health Care, Social
Security, Health Economics and Pharmaceutical
Industry Subcommittee). Þar var meðal annars
Læknablaðið 2001/87 571