Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2001, Page 89

Læknablaðið - 15.06.2001, Page 89
LAUSAR STÖÐUR / STYRKIR Heilsugæslulæknir Laus er til umsóknar staða læknis við Heilsugæslustöðina í Hveragerði frá og með 1. september næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi hafi sérfræðimenntun í heimilislækningum. Um er að ræða 100% stöðu. Mikið uppbyggingastarf hefur verið unnið undanfarin ár við heilbrigðisþjónustuna í Hveragerði og í júní næstkomandi flytur Heilsugæslustöðin í nýtt og glæsilegt húsnæði. Mjög áhugavert og spennandi starf framundan í góðu starfsumhverfi. Þrískiptar vaktir. Laun samkvæmt Kjaradómi. Upplýsingar um starfið veita Marianne B. Nielsen yfirlæknir og Herdís Þórðardóttir framkvæmdastjóri í síma 899 4129. Heilsgæslustöðin Akranesi Staða heilsugæslulæknis við Heilsugæslustöðina á Akranesi er laus til umsóknar. Sérfræðiviðurkenning í heimilislækningum er æskileg. Staðan veitist eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar gefa Reynir Þorsteinsson yfirlæknir (reynir.thorsteinsson@sha.is) og Þórir Bergmundsson lækningaforstjóri (thorir.bergmundsson@sha.is) í síma 430 6000. Umsóknir um stöðuna berist á þar til gerðum eyðublöðum frá landlæknisembættinu fyrir 1. júlí næstkomandi. Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA) skiptist í sjúkrasvið og heilsugæslusvið. Á sjúkrasviði er starfrækt fjölgreinasjúkrahús með örugga vaktþjónustu allan sólarhringinn árið um kring. Sjúkrahúsið veitir almenna og á vissum sviðum sérhæfða sjúkrahúsþjónustu á lyflækningadeild, handlækningadeild, fæðinga- og kvensjúkdómadeild og á vel búnum stoðdeildum þar sem höfuðáhersla er lögð á þjónustu við íbúa Vestur- og Suðvesturlands. Jafnframt er lögð áhersla á þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á heilsugæslusviði er veitt almenn heilsugæsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi Akraness með forystuhlutverk varðandi almenna heilsuvernd og forvarnarstarf. SHA tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla (slands og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn stofnunarinnar eru um 240 talsins. Novo Nordisk Foundation Research Meetings Styrkir til vísindastarfsemi Norræna rannsóknanefndin (Nordisk Forsknings Komité) ráðgerir að veita allt að 300.000 DKR á ári til vísindastarfsemi á Norðurlöndunum, til dæmis til eins til þriggja daga málþinga, mögulega sem velskilgreinda fundi í tengslum við stærri ráðstefnur (satellite symposium), eða til að bjóða alþjóðlega viðurkenndum vísindamönnum til styttri dvalar hjá rannsóknahópum í tengslum við fyrirlestrahald eða sambærilega starfsemi. Styrkir verða ekki veittir vegna námskeiða. Starfsemin skal vera á sviðið innkirtlafræði eða tilraunalífeðlisfræði. Hver styrkur nemur að jafnaði 100.000 DKR eða hærri upphæð. Sækja má um styrki vegna starfsemi á árinu 2002 eða 2003. Umsóknir skal senda í fimm eintökum til: Novo Nordisk Fonden Brogárdsvej 70 Postbox 71 DK-2820 Gentofte, Danmark sími: +45 44 43 90 31 bréfasími: +45 44 43 90 98 heimasíða: http://www.novonordiskfonden.dk í umsókninni skal koma fram rökstuðningur fyrir mikilvægi þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til (mest ein síða), lýsing á starfseminni, fjárhagsáætlun og áætluð tímasetning, upplýsingar um virkni rannsóknarhóps umsækjenda á fræðasviðinu og þýðingu þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til fyrir framhald þeirra rannsókna, ásamt skrá yfir birtingu á helstu niðurstöðum rannsóknarhóps umsækjenda síðastliðin tvö til þrjú ár (mest tvær síður). Umsóknir ásamt öllum fylgiskjölum skulu hafa borist til Novo Nordisk Fonden í síðasta lagi 13. ágúst 2001. Ófullnægjandi umsóknir og umsóknir sem berast á bréfasíma eða í tölvupósti verða ekki teknar til greina. Umsóknum verður svarað um miðjan október 2001. Læknablaðið 2001/87 589

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.