Læknablaðið - 15.06.2001, Qupperneq 89
LAUSAR STÖÐUR / STYRKIR
Heilsugæslulæknir
Laus er til umsóknar staða læknis við
Heilsugæslustöðina í Hveragerði frá og með 1.
september næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi sérfræðimenntun í
heimilislækningum.
Um er að ræða 100% stöðu. Mikið uppbyggingastarf
hefur verið unnið undanfarin ár við heilbrigðisþjónustuna
í Hveragerði og í júní næstkomandi flytur
Heilsugæslustöðin í nýtt og glæsilegt húsnæði. Mjög
áhugavert og spennandi starf framundan í góðu
starfsumhverfi.
Þrískiptar vaktir.
Laun samkvæmt Kjaradómi.
Upplýsingar um starfið veita Marianne B. Nielsen
yfirlæknir og Herdís Þórðardóttir framkvæmdastjóri í
síma 899 4129.
Heilsgæslustöðin
Akranesi
Staða heilsugæslulæknis við Heilsugæslustöðina á
Akranesi er laus til umsóknar.
Sérfræðiviðurkenning í heimilislækningum er æskileg.
Staðan veitist eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefa Reynir Þorsteinsson yfirlæknir
(reynir.thorsteinsson@sha.is) og Þórir Bergmundsson
lækningaforstjóri (thorir.bergmundsson@sha.is) í síma
430 6000.
Umsóknir um stöðuna berist á þar til gerðum
eyðublöðum frá landlæknisembættinu fyrir 1. júlí
næstkomandi.
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA)
skiptist í sjúkrasvið og heilsugæslusvið. Á sjúkrasviði er
starfrækt fjölgreinasjúkrahús með örugga vaktþjónustu
allan sólarhringinn árið um kring. Sjúkrahúsið veitir
almenna og á vissum sviðum sérhæfða
sjúkrahúsþjónustu á lyflækningadeild,
handlækningadeild, fæðinga- og kvensjúkdómadeild og
á vel búnum stoðdeildum þar sem höfuðáhersla er lögð
á þjónustu við íbúa Vestur- og Suðvesturlands.
Jafnframt er lögð áhersla á þjónustu við íbúa
höfuðborgarsvæðisins. Á heilsugæslusviði er veitt
almenn heilsugæsluþjónusta fyrir íbúa í
heilsugæsluumdæmi Akraness með forystuhlutverk
varðandi almenna heilsuvernd og forvarnarstarf. SHA
tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við
Háskóla (slands og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn
stofnunarinnar eru um 240 talsins.
Novo Nordisk Foundation
Research Meetings
Styrkir til
vísindastarfsemi
Norræna rannsóknanefndin (Nordisk Forsknings
Komité) ráðgerir að veita allt að 300.000 DKR á ári til
vísindastarfsemi á Norðurlöndunum, til dæmis til eins
til þriggja daga málþinga, mögulega sem
velskilgreinda fundi í tengslum við stærri ráðstefnur
(satellite symposium), eða til að bjóða alþjóðlega
viðurkenndum vísindamönnum til styttri dvalar hjá
rannsóknahópum í tengslum við fyrirlestrahald eða
sambærilega starfsemi. Styrkir verða ekki veittir vegna
námskeiða.
Starfsemin skal vera á sviðið innkirtlafræði eða
tilraunalífeðlisfræði.
Hver styrkur nemur að jafnaði 100.000 DKR eða hærri
upphæð.
Sækja má um styrki vegna starfsemi á árinu 2002 eða
2003.
Umsóknir skal senda í fimm eintökum til:
Novo Nordisk Fonden
Brogárdsvej 70
Postbox 71
DK-2820 Gentofte, Danmark
sími: +45 44 43 90 31
bréfasími: +45 44 43 90 98
heimasíða: http://www.novonordiskfonden.dk
í umsókninni skal koma fram rökstuðningur fyrir
mikilvægi þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til
(mest ein síða), lýsing á starfseminni, fjárhagsáætlun
og áætluð tímasetning, upplýsingar um virkni
rannsóknarhóps umsækjenda á fræðasviðinu og
þýðingu þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til fyrir
framhald þeirra rannsókna, ásamt skrá yfir birtingu á
helstu niðurstöðum rannsóknarhóps umsækjenda
síðastliðin tvö til þrjú ár (mest tvær síður).
Umsóknir ásamt öllum fylgiskjölum skulu hafa borist
til Novo Nordisk Fonden í síðasta lagi 13. ágúst
2001. Ófullnægjandi umsóknir og umsóknir sem
berast á bréfasíma eða í tölvupósti verða ekki teknar
til greina.
Umsóknum verður svarað um miðjan október 2001.
Læknablaðið 2001/87 589