Skessuhorn - 21.05.2014, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 21. tbl. 17. árg. 21. maí 2014 - kr. 600 í lausasölu
HEFUR SAFNAÐ FYRIR
ÖKUTÆKI
FYRIR HVERJU
LANGAR ÞIG AÐ SAFNA?
Allt um sparnað á arionbanki.is/sparnaður
Ert þú
áskrifandi?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Dýrfinna gullsmiður
sími 862-6060
Útskriftargjafir
Sölustaðir:
Vinnustofa Dýrfinnu, Stillholti
Akranesi
Landsnámssetrið Borgarnesi
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
25%
afsláttur
Omeprazol ratiopharm
Ragnar Hjörleifsson frá Heggs-
stöðum í Andakíl, sem um árabil
var búsettur á Akranesi, er mikill
göngugarpur. Í byrjun þessa mán-
aðar gekk hann t.d. á Skarðsheiðina
og undanfarin ár hefur hann lagt að
baki ýmis fjöllin. Síðastliðinn föstu-
dag gerði hann enn betur og topp-
aði sig ef svo má segja; gekk ásamt
félögum sínum á Hvannadalshnjúk,
hæsta tind landsins. Útaf fyrir sig
eru göngur sem slíkar ekki eins-
dæmi enda hefur í seinni tíð fjölgað
mjög í hópi fjallgöngugarpa. Hins
vegar er ganga Ragnars merkileg
fyrir þær sakir að hann er einfætt-
ur og hefur í áratugi notað gervifót.
Fótinn upp að hné missti Ragnar í
vinnuslysi heima í sveitinni þegar
hann var unglingur. Að líkindum er
Ragnar fyrsti maðurinn sem geng-
ur á gervifæti á Hvannadalshnjúk.
Stuttlega er rætt við Ragnar á bls.
16. mm
Hver stórviðburðinn rekur ann-
an um aðra helgi. Kosið verð-
ur til sveitarstjórna laugardag-
inn 31. maí. Daginn eftir er sjó-
mannadagurinn, en hann er
einatt fyrsta sunnudag í júní.
Skessuhorn gefur út efnismikið
Sjómannadagsblað líkt og und-
anfarin ár. Auk þess má búast við
að sama tölublað beri þess merki
að kosningar eru í nánd. Skessu-
horni verður fjöldreift í öll hús
og fyrirtæki af þessu tilefni mið-
vikudaginn 28. maí og borið út
með Íslandspósti. Af þessum
sökum er útgáfudagur degi fyrr
en venjulega og blaðið prent-
að á mánudagskvöldi. Þeir sem
vilja nýta sér stórt og efnismik-
ið Kosninga-Sjómannadagsblað
Skessuhorns er bent á að frest-
ur til að panta auglýsingapláss
er næstkomandi föstudag. Efni
til birtingar og þ.m.t. aðsend-
ar greinar þurfa að hafa borist
ritstjórn í síðasta lagi á hádegi
sunnudaginn 25. maí. mm
Á mánudaginn kom út skýrslan
„Íbúakönnun á Vesturlandi: Staða
og mikilvægi búsetuskilyrða.“ Höf-
undar eru Vífill Karlsson og Anna
Steinsen, starfsfólk hjá Samtök-
um sveitarfélaga á Vesturlandi. Í
könnuninni eru íbúar á Vesturlandi
beðnir um að taka afstöðu til stöðu
og mikilvægis helstu búsetuþátta
hvers samfélags. Þessi könnun hef-
ur verið gerð þriðja hvert ár og er
þetta í fjórða skiptið sem hún er
framkvæmd. Sem fyrr eru það helst
þættir sem tengjast vinnumark-
aði og framfærslu sem virðast vera
mest aðkallandi úrlausnarefni á öll-
um svæðum Vesturlands.
„Athygli vekur að ýmsar aðgerð-
ir sem farið hefur verið í frá síðustu
könnun árið 2010 mælast vel fyrir á
öllum svæðum Vesturlands. Þar má
nefna almenningssamgöngur í sam-
starfi við Strætó, framhaldsskóla
í Dölum í samstarfi við Mennta-
skóla Borgarfjarðar og menning-
arlíf sem tengist að einhverju leyti
framkvæmd Menningarsamnings
á Vesturlandi. Staðan á húsnæð-
ismarkaði hefur versnað mikið á
milli kannana, sérstaklega framboð
á húsnæði til leigu. Þá vakti einnig
athygli hvað krafan um bættar net-
tengingar og farsímasamband virð-
ist vaxa á milli kannana þrátt fyrir
umbætur á því sviði og því virðist
uppbyggingin ekki halda vel í við
þróunina. Þá sést að sókn Vestlend-
inga í vinnu á öðrum svæðum, t.d.
á höfuðborgarsvæðinu, hefur aukist
frá síðustu könnun, en verulega dró
úr henni eftir bankahrunið,“ segir í
tilkynningu frá SSV.
Í skýrslunni segir m.a. að búsetu-
skilyrði sem Vestlendingar töldu
að þyrftu að lagast voru þættir er
varða vinnumarkað eins og launa-
tekjur, atvinnuúrval og atvinnu-
öryggi ásamt þáttum sem tengj-
ast vörumarkaði; vöruverð, vöru-
úrval og framfærsla. Skipulagsmál,
vegakerfi, tækifæri til afþreyingar
og gæði unglingastarfs mættu einn-
ig vera betri. Skýrsluna í heild sinni
má finna á vefnum www.ssv.is und-
ir útgefið efni.
mm
Leikskólinn Vallarsel á Akranesi varð 35 ára í gær. Gerðu nemendur og starfsfólk skólans sér glaðan dag af því tilefni. Var
haldið í skrúðgöngu og gengið í veðurblíðunni umhverfis nærliggjandi hverfi og afmælissöngurinn sunginn af raust.
Ljósm. jsb.
Kosningar og
Sjómannadagur
sömu helgina
Niðurstöður nýrrar
íbúakönnunar á Vesturlandi
Göngugarpur á gervifæti