Skessuhorn


Skessuhorn - 21.05.2014, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 21.05.2014, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 Grundaskóli á Akranesi var í hópi tólf skóla sem mættust í úrslita- keppni Skólahreysti sem fram fór sl. föstudag í Laugardalshöllinni. RÚV sýndi beint frá keppninni. Þetta er í þriðja sinn sem Grunda- skóli er fulltrúi Vesturlands í keppninni. Keppendur skólans að þessu sinni voru þau Helgi Arnar Jónsson sem keppti í upphífing- um og dýfum. Saman í hraðaþraut voru Eiður Andri Guðlaugsson og Júlía Björk Gunnarsdóttir. Loks keppti Birna Sjöfn Péturs- dóttir í armbeygjum og hreysti- greip. Ungmennin stóðu sig vel, en blönduðu sér ekki í hóp efstu liða. Skólarnir sem kepptu til úrslita auk Grundaskóla eru: Fellaskóli í Fellabæ, Grunnskólinn á Þingeyri, Heiðarskóli og Holtaskóli í Reykja- nesbæ, Hvolsskóli á Hvolsvelli, Lágafellsskóli í Mosfellsbæ, Síðu- skóli á Akureyri, Seljaskóli í Reykja- vík, Valhúsaskóli á Seltjarnarnesi, Vallaskóli á Selfossi og Varmahlíð- arskóli. Leikar fóru þannig að Heiðar- skóli í Reykjanesbæ bar sigur úr býtum þetta árið. Í öðru sæti varð Holtaskóli og Seljaskóli þriðji. mm Framfarafélag Borgfirðinga hyggst halda sína fyrstu Rabarbarahátíð í Reykholti í Borgarfirði 21. júní næstkomandi. Dagsetning hátíð- arinnar er vel við hæfi, en 21. júní eru sumarsólstöður og hefð fyrir því að nýta fyrstu rabarbaraupp- skeruna á þeim tíma. Er stefnt að því að bjóða upp á fjölbreytta dag- skrá. Verður meðal annars keppt í rabarbaramatreiðslu af ýmsum toga og munu þjóðþekktir dóm- arar velja sigurvegara þar sem veg- leg verðlaun verða í boði. Einnig verða þar sölubásar þar sem vörur unnar úr rabarbara eða honum tengdar verða til sölu. Þá mun Vil- mundur Hansen garðyrkjumaður og rithöfundur verða á staðnum og segja frá ýmsum fróðleik varð- andi rabarbara. Hátíðin er hluti af herferð til að vekja athygli á hvernig hægt sé að nýta afurðir úr héraði líkt og rab- arbara. Á hverju ári er flutt inn til landsins á milli 50 og 60 tonn af rabarbara og vilja aðstandendur hátíðarinnar meina að þar sé verið að sækja vatnið yfir lækinn. Eru all- ir hvattir til að mæta hvort sem það er til að selja, keppa eða skoða. Öll vinna við hátíðina er unnin af sjálfboðaliðum en þeir sem hafa áhuga á að vera með í undirbúningi hátíðarinnar geta haft samband við Jóhönnu Sjöfn Guðmundsdóttur á Grímsstöðum. Áhugasamir um bása og sölu á hátíðinni eru beðn- ir um að hafa samband við Eddu Arinbjarnar í Húsafelli. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og fylgjast með gangi mála af hátíð- inni í gegnum Facebook síðuna, Markaðshópur Framfarafélags Borgfirðinga. jsb/fréttatilkynning Nú á vormánuðum 2014 hill- ir undir að vélaskemma Golf- klúbbsins Leynis verði fullkláruð og tilbúin til notkunar. Það var um haustið 2011 sem skrifað var undir framkvæmdasamning milli Akra- neskaupstaðar og Golfklúbbsins Leynis um byggingu vélaskemmu á Garðavelli. Í samkomulaginu var m.a. getið um að GL myndi alfar- ið sjá um byggingu á 500 fm húsi á þremur árum sem áætlað var að kostaði um 52 milljónir króna. Akraneskaupstaður styrkti klúbbinn með 20 milljóna króna framlagi á fyrsta framkvæmda ári og GL setti á móti um 20 millj- ónir í peningum auk sjálfboða- vinnu og með því náði GL að gera vélaskemmuna fokhelda á fyrsta ári. Þegar þessum áfanga var náð var gerður nýr framkvæmdasamn- ingur við Akraneskaupstað um að GL fengi 8 milljónir á ári á næstu þremur árum til að fullklára bygg- inguna. Kostnaður bæjarins vegna hússins er þá 44 milljónir auk nið- urfellingar á byggingaleyfis-, fast- eigna- og gatnagerðargjöldum sem reiknast um 15 milljónir. Skipuð var byggingarnefnd úr röðum félagsmanna GL sem kom saman reglulega á fyrstu mánuðum verksins og lagði grunn að bygg- ingu þessa glæsilega húss með sam- spili verktaka á Akranesi og sjálf- boðaliða úr röðum GL. Ákveðið var að byggja 500 fm hús úr for- steyptum einingum frá Smellinn og BM Vallá. Þeir verktakar og birgjar sem komu að byggingu þessa húss eru Skóflan, PK pípulagnir, Smellinn, Viðar og Magnús múrarameistar- ar, BM Vallá, Orkuveita Reykja- víkur, Sjammi ehf., Rafþjónusta Sigurdórs, Ískraft, Borgarplast, Húsasmiðjan, Reykjafell, Smith & Norland, Vagnar og Þjónusta og Steinteppi. Er þessum verktök- um og birgjum hér færðar bestu þakkir fyrir gott samstarf. Arki- tekta teikningar voru unnar af Magnúsi H. Ólafssyni arkitekt sem gaf alla sína vinnu við hönnun og teikningu skemmunnar og færir byggingarnefnd GL honum bestu þakkir. Félagsmenn GL hafa unnið um það bil 3000 klst. í sjálfboðavinnu við byggingu skemmunnar. Allt frá því að byrjað var að moka upp fyrir grunni hússins og til lokafrá- gangs. Félagsmenn hafa m.a. unn- ið við gröft og fyllingar á grunni undir húsið, reisingu húss, frágang þaks og þakkanta, gluggasmíði og gluggaísetningu, járnabindingu fyrir gólfplötu, steypuvinnu við plön og gólf, málun, smíði milli- veggja, hurðaísetningu, pípulagna- vinnu, raflagnavinnu, uppsetningu innréttinga og fl. Þá má geta þess að verknámsdeild rafiðnaðar FVA lagði hluta af raflögnum í hús- ið og eru þeim færðar þakkir fyr- ir óeigin gjarnt starf. Mikil breyting verður nú á starfsmannaaðstöðu, viðgerðarað- stöðu og geymslu tækja GL sem hafði um árabil verið í miklum ólestri. Byggingarnefnd GL óskar félagsmönnum og Akraneskaup- stað til hamingju með nýju véla- skemmuna og þakkar öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóginn við byggingu þessa glæsilega húss. Akranesi 4. maí 2014 F. h. byggingarnefndar véla- skemmu GL: Guðmundur Sigvaldason fram- kvæmdastjóri GL Halldór Hallgrímsson byggingar- stjóri og formaður byggingarnefndar Hörður Kári Jóhannesson Alfreð Þór Alfreðsson Kristvin Bjarnason Jón Einarsson Jóhann Þór Sigurðsson Hlynur Sigurdórsson Sigurður Ragnarsson Haukur Þórisson Árni Geir Sveinsson Guðjón Viðar Guðjónsson. Frá markaði framfarafélagsins í fyrrasumar. Rabarbarahátíð haldin í Borgarfirði í júní Keppendur frá Grundaskóla á Akranesi. Grundaskóli í úrslitum Skólahreysti Þakkarbréf vegna byggingar vélaskemmu Leynis Fyrsta skóflustungan tekin fyrir vélaskemmunni. Búið að reisa veggeiningar og ánægður hópur félaga og sjálf- boðaliða sem vann við það verk. Búið að stúka af rými. Unnið við starfsmannaaðstöðu. Margir sjálfboðaliðar hafa komið að byggingu vélaskemmunnar. Vélaskemman fullbyggð.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.