Skessuhorn


Skessuhorn - 21.05.2014, Blaðsíða 32

Skessuhorn - 21.05.2014, Blaðsíða 32
www.skessuhorn.is Á þriðja þúsund síður af efni á ári – um 160.000 fréttir, tilkynningar, greinar og annað efni af Vesturlandi Þetta allt færðu í Skessuhorni – hvergi annars staðar Ertu nokkuð að missa af? Ertu áskrifandi? Áskriftarsíminn er 433-5500 og á heimasiðunni: www.skessuhorn.is Mánudaginn 12. maí síðastliðinn varði Gyða S. Björnsdóttir meist- aranemi í umhverfis- og auðlinda- fræði við Háskóla Íslands, loka- verkefni sitt sem ber heitið „Sýnir sauðfé við Hvalfjörð merki um líf- fræðilegt álag af völdum mengun- ar?“ Til þess að meta hvort bænd- ur hafi orðið varir við einhver nei- kvæð heilsufarseinkenni hjá sauðfé vegna hugsanlegrar mengunar frá iðjuverunum á Grundartanga, var send spurningakönnun á alla bæi þar sem voru tíu kindur eða fleiri. Könnunin var send til bænda í Kjósarhreppi, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð, alls á 222 bæi. Einnig var stuðst við gögn úr gæðastýringu í sauðfjárrækt og tekin viðtöl við bændur í Hvalfjarðarsveit. Svörum var skipt eftir því hvort býli voru í 14 km fjarlægð eða nær iðjuverun- um annars vegar eða í meira en 14 km fjarlægð hins vegar. Niðurstöður spurningakönn- unar leiddu í ljós almenna ánægju bænda með heilsufar sauðfjár og reyndist ekki munur á svörum hóp- anna. Fleiri bændur fjær iðjuver- unum eru þátttakendur í gæða- stýringu og skrá marktækt fleiri at- riði sem tengjast heilsu sauðfjár. Af þeim sem eru þátttakendur í gæða- stýringu reyndust marktækt fleiri bændur í nágrenni iðjuveranna hafa orðið varir við bletti á framtönnum sauðfjár og lélega ull, en rannsóknir hafa sýnt að hvoru tveggja geti ver- ið afleiðing of mikils flúors í fóðri. Ekki reyndist munur hvað varðar önnur neikvæð heilsufarseinkenni sem spurt var um. Fleiri geldær nær iðjuverunum Marktækt fleiri eldri ær en vetur- gamlar voru geldar á svæðinu nær iðjuverunum á Grundartanga á ár- unum 2007-2012, að jafnaði 4% til móts við 2,6% á svæðinu fjær. Ekki er mikill munur á afurðatölum á milli svæða þegar á heildina er litið. Þróun þeirra á milli ára er þó ólík eftir svæðum og nær iðjuverunum verður rúmlega 6% samdráttur á milli áranna 2007 og 2009. Seg- ir Gyða í niðurstöðum verkefnis- ins að þetta sé athyglisvert í ljósi þess að heildarflúorlosun hafi auk- ist um 172% á Grundartanga milli áranna 2005 og 2008 vegna stækk- unar Norðuráls. Árið 2012 eru af- urðatölur frá svæðinu að jafnaði aftur orðnar sambærilegar því sem þær voru árið 2007. Marktækt hæst hlutfall geldra eldri áa, að meðaltali 7,4%, og lægstar afurðatölur, eru á bæjum suðvestanmegin við iðjuver- in, á því svæði þar sem flúor hefur á undanförnum árum mælst einna hæstur í kjálkabeinum sauðfjár. Áhrifa virðist síst gæta í afurðatöl- um frá svæðinu suður og suðaustur af iðjuverunum. Veiku fé slátrað heima Mælingar á flúor í kjálkabein- um sauðfjár fara fram á 13 bæjum í Hvalfjarðarsveit og Kjósarhreppi í tengslum við vöktun iðjuveranna á Grundartanga. Vöktun á flúor í sauðfé fer þannig fram að sláturhús senda fjóra hausa af lömbum og fjóra hausa af eldra fé frá hverjum vökt- unarbæ í mælingar á Tilraunastöð- ina að Keldum. Rannsóknir sýna að styrkur flúors í beinum er líklegri til að mælast hærri hjá einstakling- um sem eru veikir fyrir og of mikið flúor í fóðri eða drykkjarvatni get- ur auk þess haft áhrif á ónæmiskerf- ið og á frjósemi. Viðtöl við bænd- ur leiddu í ljós að fé sem veikist er oftast slátrað heima á bæjunum og þeir töldu að ekki svari kostnaði að fá dýralækna til að skoða féð. Erf- itt getur því verið fyrir bændur að meta ástæður veikinda. Ekki eru gerðar flúormælingar á því fé sem veikist þar sem það fer að öllu jöfnu ekki í sláturhús. Í viðtali við bónda suðvestanmegin við iðjuverin kom fram að töluverð afföll höfðu orð- ið á sauðfé á bænum á undanförnu ári. Gyða segir í niðurstöðunum að í ljósi þessa væri æskilegt að veikt fé væri ekki undanskilið umhverfis- vöktun. Haldið yrði utan um skrán- ingar á veikindum og afföllum og bændur á svæðinu, sérstaklega þar sem mesta mengunarálagsins er að vænta vegna ríkjandi vindátta, hefðu aðgang að dýralæknum sér að kostnaðarlausu. Að öðrum kosti væri hætta á að umhverfisvöktun- in gefi ekki fullnægjandi mynd af heilsufari búfjár á svæðinu. þá Frá Hvalfirði. Varði meistararitgerð um áhrif mengunar á sauðfé við Hvalfjörð Gyða S Björnsdóttir varði meistararit- gerðina á dögunum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.