Skessuhorn - 21.05.2014, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudög-
um. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.480 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.150. Verð í lausasölu er 600 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is
Heiðar Lind Hansson, blaðamaður hlh@skessuhorn.is
Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Sú var tíð að fólk lagði á sig löng og ströng ferðalög til að ná fundum þar
sem stjórnmálamenn tókust á í aðdraganda kosninga. Fundirnir stóðu jafn-
vel fram yfir sólarupprás enda um margt að ræða því sjaldan var hist. Á
fundunum var deilt og sagðar sögur, jafnvel í bundnu máli. Oftar en ekki
urðu þeir svo hlutskarpastir í kosningunum sem bjuggu yfir mestri ræðu-
snilld. Þetta var tími þeirra kjaftforu og kláru. Í aðdraganda hrepps- og
bæjarstjórnakosninga var ekki síður tekist á þegar kosningar nálguðust.
Framboðsfundir þóttu ekki síður nauðsynlegir á þeim vettvangi enda skipti
miklu að vel væri haldið á spöðunum heima fyrir ekki síður en á þingi. Far-
sælir hreppsnefndarmenn urðu jafnvel héraðshöfðingjar. Verk þeirra skiptu
máli og kjósendum var alls ekki sama hvernig á málum var haldið. Kjós-
endur vissu að hverju þeir gengu og báru virðingu fyrir þeim sem kunnu
að fara með valdið.
Nei, nú er öldin önnur á allan hátt. Frambjóðendur nútímans stofna bara
eina Fésbókarsíðu og telja það talsvert afrek. Sé boðið upp á framboðsfund
mæta jafnvel færri kjósendur en frambjóðendur. Gagnkvæmur áhugi fyrir
viðfangsefninu er af skornum skammti. Tæpast að menn nenni að hlusta
á heilan viðtalsþátt um málefni heimabyggðar. Til marks um það hvern-
ig áherslur hafa breyst má nefna að einhvern tímann hefði það þótt til tíð-
inda í kosningaútvarpi frá Norðfirði að helst væri tekist á um það hvort nýr
vegspotti eigi að liggja fyrir neðan eða ofan leikskólann!
Einn umræðuþáttur fór fram á föstudagskvöldið í Ríkisútvarpinu. Tveir
fréttamenn úr Reykjavík létu sig hafa það að mæta á Akranes í því skyni
að taka púlsinn á kosningabaráttunni. Hygg ég að undirbúningur þeirra
hefði mátt vera meiri. Ég saknaði allavega spurninga sem skiptu Akurnes-
inga máli. Þarna voru saman komnir oddvitar fimm framboða. Þeim var
vorkunn því engu var líkara en spyrlarnir væru ekki alveg með á nótunum.
Umræðan snerist því t.d. um niðurstöðu skoðanakönnunar sem birt var í
Mogganum nokkru áður, eins og niðurstaða hennar skipti höfuðmáli! Í því
sambandi spurði jafnvel einhver hvað væri eiginlega í lyfjaglösunum sem
apótekarinn seldi, fyrst hann fengi svona mikið fylgi! Ekki var að heyra
að nokkrum frambjóðenda þætti sú umræða óviðeigandi. Minnst var á að-
stöðugjald fyrirtækja sem reyndar var lagt af snemma á tíunda áratugnum
og loks nefndi einhver að sameining við Mosfellsbæ væri vænlegur kostur
fyrir Skagamenn. Ekki kom annað fram en þessi umræða væri frambjóð-
endum að skapi. Á mig virkaði hún hins vegar eins og saumaklúbbur við
kertaljós hjá húsmæðrum í sveit, sem bæru þó hæfilegan hlýhug hver til
annarrar.
Ályktun mín eftir að hafa hlustað á þáttinn er sú að líklega er bara best að
fréttamenn úr höfuðborginni sinni áfram, eins og þeir eru vanir, umfjöllun
um verkefni sveitarfélaga á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Nú veit ég ekki með
aðra kjósendur en ég allavega saknaði að heyra ekki frambjóðendur á Akra-
nesi spurða um skuldastöðu sveitarfélagsins, málefni fatlaðra, búsetumál
eldri borgara, skipulagsmál og að kallað yrði eftir afgerandi skoðun fram-
bjóðenda á því hvort byggja eigi nýjan grunnskóla eða fara aðrar leiðir til að
leysa húsnæðisskort skólanna. Í það minnsta er ég sem kjósandi nákvæm-
lega jafn nær um markmið, áherslur og stefnur þessara fimm framboða,
en ég var áður en ég hlustaði á fyrrnefndan þátt. Nú þekkist sú skoðun og
þykir víst fín að allir eigi að vera hipp og kúl sem eru í framboði. Hafa helst
sem minnst stefnumál og því síður loforð. Það má ekki takast á um hlut-
ina því slíkt gæti borið vott um neikvæðni. Nei, má ég þá heldur biðja um
framboðsfundi eins og þeir voru og hétu meðan blóðið rann í fólki, þegar
frambjóðendur af eldmóð lögðu allt í sölurnar til að vinna hug og hjörtu
kjósenda sinna. Mér leiðist flatneskja og hvet því menn til dáða.
Magnús Magnússon.
Flatneskja
Sjálfstæðisflokkurinn í Grundarfirði
opnaði kosningaskrifstofu sína með
pompi og pragt sunnudaginn 18. maí
sl. D listinn kynnti þá bæjarstjóraefni
sitt fyrir komandi kosningar og er
það Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi. Eyrún Ingibjörg
er fyrrum oddviti á Tálknafirði og er
búsett þar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir bæjar-
stjóraefni og Rósa Guðmundsdóttir
oddviti Sjálfstæðisflokksins.
tfk
Sveitamarkaðurinn Ljómalind
í Borgarnesi hélt upp á eins árs
starfsafmæli á laugardaginn. Versl-
un Ljómalindar var opnuð 16. maí
á síðasta ári og hefur síðan verið
sérhæfð í sölu á varningi úr hér-
aði eins og handverki, matvælum
og blómum. Að sögn Rósu Hlínar
Sigfúsdóttur, sem er einn af rekstr-
araðilum Ljómalindar, hefur fyrsta
árið gengið vonum framar.
„Þetta hefur gengið alveg rosa-
lega vel og vaxið gífurlega strax á
þessu fyrsta starfsári okkar. Í dag
erum við að selja heimaunnar vörur
fyrir yfir 50 einstaklinga af Vestur-
landi og er alltaf að bætast við fólk
sem vill selja sínar vörur hjá okkur.
Okkur hafa borist fyrirspurnir um
að selja vörur frá fleiri stöðum en af
Vesturlandi, en við setjum það sem
skilyrði að þær vörur sem við selj-
um séu héðan og því eru færri sem
komast að en vilja.“
Síðastliðinn laugadag var vegleg
afmælisveisla í verslun Ljómalindar
fyrir gesti og gangandi. Mætti þar
mikill fjöldi fólks og var meðal ann-
ars í boði að smakka matvæli sem
eru til sölu ásamt pönnukökum og
rjóma. Spiluð var lifandi tónlist fyr-
ir gesti. jsb
Nýjasta „æðið“ á netinu snýst um
að láta taka myndband af sér þegar
hoppað er í sjóinn. Jafnframt
er skorað á þrjá vini eða ætt-
ingja að gera slíkt hið sama
innan sólarhrings. Áskorun-
in hefur farið eins og eldur
um sinu um Norðurlöndin
og hefur nú einnig náð til Ís-
lendinga. Talsvert hefur borið
á því að undanförnu að ung-
menni séu að stinga sér í sjó-
inn við bryggjur landsins að
undanförnu og er Vesturland
þar ekki undanskilið. Flestir
stökkva fram af bryggjum en
eitthvað er jafnvel um að ung-
menni stökkvi fram af klett-
um og í sjó. Mjög varasamt
getur verið að stökkva í sjóinn með
þessum hætti og er meðal annars
hætta á að fá krampa þegar kom-
ið er í ískaldan sjóinn. Þá er einn-
ig hætta á ofkælingu auk þess sem
líkur á drukknun eru almennt tald-
ar aukast þegar synt er í köld-
um sjó.
Á Akranesi, í Ólafsvík,
Grundarfirði og jafnvel víð-
ar er þessi iðja ekki ný af nál-
inni. Nánast má segja að
hefð sé fyrir því að krakk-
ar stökkvi þar í sjóinn, eink-
um þegar hlýna tekur á sumr-
in. Almennt hafa þeir krakkar
sem stunda þetta af staðaldri
þó verið í viðeigandi búning-
um. Lögregla og hafnarstjór-
ar víða um land hafa varað við
því að ungmenni taki þessum
áskorunum og segja að með
þeim sé hættunni boðið heim.
grþ
Segja má að sumarið sé á næsta
leyti þegar að ilmandi pylsulykt
fer að anga um Grundarfjörð.
Þá er Meistarinn nefnilega
búinn að setja upp söluvagninn
og svangir Grundfirðingar og
ferðalangar geta nælt sér í pylsu
eða bát. Baldur Orri Rafnsson
pylsusali opnaði Meistarann
síðasta föstudag og þá var
ekki að spyrja að því. Gesti bar
að streyma að enda margir
mánuðir síðan hægt var að fá
sér „Henrik“ eða „Þórhildi“ í
gogginn.
tfk
Vorboðinn ljúfi í Grundarfirði
Anna Sigríður Guðbrandsdóttir og Rósa Hlín Sigfúsdóttir úr eigendahópi Ljómal-
indar ánægðar með fyrsta starfsárið.
Ljómalind í Borgarnesi fagnaði
eins árs afmæli
Eyrún Ingibjörg er bæjarstjóra-
efni sjálfstæðismanna
Stokkið í höfnina. Myndin er nokkurra ára gömul úr
safni Skessuhorns.
Varað við því að stökkva í sjóinn