Skessuhorn


Skessuhorn - 21.05.2014, Síða 15

Skessuhorn - 21.05.2014, Síða 15
15MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 Vegna aukinna verkefna leitar Loftorka í Borgarnesi að starfsmönnum Innkaup og lager Loftorka leitar að starfsmanni á lager Helstu verkefni eru innkaup og samskipti við birgja, ásamt vöruafgreiðslu til starfsmanna af lager Smiðir Helstu verkefni eru vinna við einingaframleiðslu og reisingar Iðnverkamenn Loftorka leitar að iðnverkamönnum til starfa í verksmiðju félagsins í Borgarnesi Helstu verkefni eru vinna við einingaframleiðslu Upplýsingar í síma 433 9000 Óli Jón Gunnarsson, oli.jon@loftorka.is Þorsteinn Viggósson, thorsteinn@loftorka.is S K E S S U H O R N 2 01 4 Létt starf! Rekstrarfélag Hyrnutorgs vantar sumarstarfsmann í hlutastarf til þess að sinna umhirðu við Hyrnutorg út septembermánuð. Um er að ræða létt starf sem getur hentað sem aukavinna. Nánari upplýsingar gefur Guðsteinn í síma 430-5502 eða 660-8240. Rekstrarfélag Hyrnutorgs S K E S S U H O R N 2 01 4 Skipulagsmál eru sennilega þau mál sem harðast er tekist á um á okk- ar dögum, enda snertir þessi mála- flokkur nærumhverfi íbúa og dag- lega umgengni í heimabyggðinni. Þess vegna skiptir það gríðarlegu máli að vandað sé til verka í skipu- lagsvinnu og að verkin séu vel und- irbúin og tímanlega. Hafa þarf samstarf og samræðu við íbúana í undirbúningsferlinu til að tryggja að raddir íbúa, líka þær lágværari, heyrist. Ein af meginskyldum sveitarfé- laga er upplýsingaskyldan og hún skiptir miklu þegar kemur að skipu- lagsmálunum. Þess vegna er það afar brýnt að sveitarfélagið vandi allar upplýsingar til íbúa og að þær séu aðgengilegar og vel kynntar. Til þess þarf heimasíða sveitarfélagsins að vera aðgengileg og auðvelt að leita þar að efni um þau mál sem eru í umræðunni hverju sinni. Það væri til mikilla þæginda fyrir alla aðila að einnig væri hægt að sjá feril mála á heimasíðunni og hver staðan á þeim er á hverjum tíma. Ákjósan- legt væri einnig að íbúar gætu tjáð sig á heimasíðunni undir hverjum málaflokki fyrir sig. Öll viljum við stuðla að bættu lýðræði og þá skipt- ir miklu að upplýsingaflæði til íbúa sé nægjanlegt. Það eykur líkurnar á ánægju meðal íbúa sveitarfélagsins og stuðlar að aukinni þátttöku fólks í samfélaginu. Við eigum að gera hlutina saman – það er bara miklu skemmtilegra. Í skipulagsmálum skiptir miklu máli að hugsað sé fram í tímann. Hætturnar eru mestar þegar flýta á framkvæmdum og breyta skipulagi með hraði. Þá vill það brenna við að einblínt sé á einstaka framkvæmd á kostnað heildarhugsunar. Lög um skipulagsmál endurspegla vissulega þennan ótta, en það er sem bet- ur fer talsvert ferli að breyta sam- þykktu skipulagi. Og lögin kveða á um ákveðin tímamörk. Í allri vinnu við skipulagsmál þarf náttúran að vera í forgrunni og njóta vafans. Til þess að fólk fái notið sín í umhverfi sínu þarf að sýna fyrirhyggju og finna jafnvægi á milli náttúrunnar og fegurðar- skyns mannsins. Þetta allt þarf að mynda eina sterka heild sem er fal- leg og hugsuð útfrá þörfum íbúa og notkunarmöguleikum þeirra og barnanna og barnabarnanna. Svo þurfum við að muna að trén lifa miklu lengur en maðurinn. Björk Jóhannsdóttir. Höf. skipar 3. sæti á lista Samfylkingar í Borgarbyggð. Stjórn UMSB hefur náð samkomu- lagi við Borgarbyggð og Golfklúbb Borgarness um umhirðu Skalla- grímsvallar. Að sögn Pálma Blængs- sonar, framkvæmdastjóra UMSB er um tvo samninga að ræða. Annars vegar er það samningur við Borg- arbyggð um aukið fjármagn til um- hirðu íþróttavalla í sveitarfélaginu og hins vegar samningur við GB um að starfsmenn golfklúbbsins sjái um umhirðu Skallagrímsvallar fyrir hönd UMSB. „Samningurinn sem gerður var við Borgarbyggð snýst um að fjár- magn til umsjónar og umhirðu vall- arsvæða í Borgarnesi eykst töluvert og fer úr 2,3 milljónum króna á ári í 4,5 milljónir króna á ári. Þetta er gert með það að leiðarljósi að völl- urinn verði eins fallegur og hugs- ast getur þegar Unglingalands- mót UMFÍ verður haldið á hon- um sumarið 2016. Þá bætist einn- ig við að UMSB fær í sína umsjón Sverrisvöll á Hvanneyri sumarið 2015. Hinn samningurinn er svo við Golfklúbb Borgarness þess efn- is að starfsmenn GB sjái alfarið um umsjón og viðhald á Skallagríms- velli fyrir hönd UMSB. Með þess- um samningi skapast því heilsárs- starf fyrir vallarstjóra GB sem sér þá bæði um golfvöllinn og Skalla- grímsvöll. Með þessu móti nýt- ist sérfræðiþekking golfvallarstarf- manna GB ekki einungis á golfvell- inum heldur einnig á Skallagríms- velli,“ segir Pálmi. jsb Soffía Björg útskrifast frá Listaháskól- anum í vor með BA gráðu í almennum tónsmíðum. Hún heldur útskriftar- tónleika sína í Kaldalóni í Hörpu fimmtudaginn 22. maí kl 20:00. Hljóm- sveit Soffíu Bjargar, Orfia, vinnur nú að gerð plötu sem væntanleg er í sumar. Á þessum tónleikum er einblínt á side A, eða þann hluta plötunnar sem inniheldur lög eftir Soffíu. Á tón- leikunum verður vídeoverki myndlista- konunnar Sigríðar Þóru Óðinsdóttur varpað á vegg bakvið hljóðfæraleikara á meðan á tónlistarflutningi stendur. Margir hljóðfæraleikarar koma að gerð plötunnar og má þar nefna tréblásturskvartett, strengjakvintett, hörpu, píanó og svo hina hefðbundnu rytmasveit. -fréttatilkynning Fagnað var 35 ára afmæli Leik- skólans Vallarsels á Akranesi í gær, þriðjudaginn 20. maí. Héldu nem- endur og starfsfólk skólans upp á daginn með skrúðgöngu í blíð- skaparveðri. Gengið var fylktu liði hring í hverfinu, börn skreytt and- litsmálningu og í appelsínugulum bolum merktum Vallarseli. Gengu þau í fylgd með starfsfólki en í far- arbroddi voru trommarar og lög- reglan á Akranesi sem ók á undan með bláum ljósum og sá til þess að bílaumferð truflaði gönguna ekki. Eftir skrúðgönguna söfnuðust svo allir saman á leikvelli Vallarsels þar sem afmælissöngurinn var sunginn skólanum til heiðurs. Regína Ás- valdsdóttir bæjarstjóri mætti síð- an til að afhenda blómvönd í tilefni dagsins ásamt því sem hún afhenti leikskólanum 35 þúsund króna út- tekt í Tónasmiðjunni, eitt þúsund krónur fyrir hvert ár sem leikskól- inn hefur starfað. jsb Pennagrein Skipulags– og umhverfismál og upplýsingamál Soffía Björg með útskriftartónleika Nemendur Vallarsels syngja afmælissönginn fyrir leikskólann. Vallarselsfólk fagnaði 35 ára afmæli Börnin ganga hér eftir Skarðsbraut í góðu veðri með andlitsmálningu og skraut sem þau bjuggu til sjálf. Samningarnir handsalaðir á vallarsvæðinu í Borgarnesi. Samið um vallarhirðu á Skallagrímsvelli

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.