Skessuhorn - 04.06.2014, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 23. tbl. 17. árg. 4. júní 2014 - kr. 600 í lausasölu
HEFUR SAFNAÐ FYRIR
ÖKUTÆKI
FYRIR HVERJU
LANGAR ÞIG AÐ SAFNA?
Allt um sparnað á arionbanki.is/sparnaður
Ert þú
áskrifandi?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Íslandskort
margar stærðir
Heimskort
Úrval myndaramma
Innrömmun
Passamyndir
Opið virka daga:
10-12 og 13-18
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Rammar & Myndir
Skólabraut 27 - Akranesi - Sími 431 1313
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
25%
afsláttur
Omeprazol ratiopharm
Ýmsir höfðu ástæðu til að gleðjast
þegar úrslit sveitarstjórnarkosn-
inganna tóku að birtast síðastliðið
laugardagskvöld. Í þremur sveitar-
félögum á Vesturlandi féllu sitjandi
meirihlutar, þ.e. á Akranesi, í Borg-
arbyggð og Stykkishólmi. Þá stóðst
meirihlutinn í Snæfellsbæ áhlaup
þriggja mótframboða og meiri-
hluti vinstri manna í Grundarfirði
hélt sömuleiðis. Persónukosningar
fóru fram í fimm sveitarfélögum á
Vesturlandi, þ.e. í Hvalfjarðarsveit,
Dalabyggð, Skorradalshreppi,
Helgafellssveit og Reykhólasveit.
Skessuhorn fjallar um úrslit kosn-
inganna á bls. 11-14 í blaðinu í dag.
mm
Í liðinni viku var skrifað undir
samkomulag milli Faxaflóahafna
og bandaríska sólarkísil fyrirtækis-
ins Silicor materials um að stefna
að því að nýrri verksmiðju fyrir-
tækisins verði valinn staður í landi
Klafastaða, norðan við Grundar-
tanga. Um fimmtán manna sendi-
nefnd fulltrúa fyrirtækisins var
mætt á Grundartanga undir for-
ystu Theresu Jester framkvæmda-
stjóra. Hún og Gísli Gíslason und-
irrituðu samkomulagið. Verkefnið
var stuttlega kynnt fyrir gestum,
sem einkum voru starfsmenn Sam-
taka iðnaðarins, sveitarstjórnarfólk
úr nágrenninu og fulltrúar þriggja
fjölmiðla. Fram kom að mikil al-
vara er með áformum fyrirtækis-
ins um byggingu verksmiðjunnar.
Ef ekki verði tafir vegna skipulags
eða af óviðráðanlegum orsökum
hefjast fyrstu jarðvegsframkvæmd-
ir í haust.
Verksmiðja Silicor materials
verður byggð á hálfu öðru ári og
stefnt að fyrsta framleiðsla verði
sumarið 2016. Hér er um að ræða
nýja einkaleyfisvarða framleiðslu-
aðferð á sólarkísil. Uppbygging
Silicor materials mun kosta um 77
milljarða króna og fullbúin mun
verksmiðjan veita 420 störf. Krafist
verður sérfræðiþekkingar í þriðj-
ung til helming starfanna. Verk-
smiðjan á að geta framleitt um 16
þúsund tonn af kísil á ári. Viðræð-
ur um orkukaup standa m.a. yfir
við Landsvirkjun og Orku náttúru
og miðar þeim vel.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um Skessuhorns um málið nýtist
græn orka með þessu móti í um-
hverfisvæna starfsemi, mannfreka,
en engu að síður hóflega orkukrefj-
andi. Góð hafnaraðstaða á Grund-
artanga er talinn lykillinn að vali
Silicor materials á Grundartanga
umfram önnur svæði. Þá er fram-
leiðsla sólarkísils í þessari verk-
smiðju sérstök að því leyti að efnið
er hreinsað með bræddu áli og það
síðan selt til framleiðenda sólar-
rafhlaða. Í framtíðinni er stefnt að
hráefniskaupum frá fyrirtækjunum
sem þegar eru á Grundartanga.
Verður byggð hratt
Fyrirhuguð lóð undir verksmiðj-
una er í landi Klafastaða, sem er
land norðan við hafnarmannvirkin
og verksmiðju Norðurál á Grundar-
tanga. Í samkomulaginu felst m.a. að
Faxaflóahafnir munu úthluta Silicor
material um þrjátíu hektara landi en
af því munu verksmiðjuhúsin fullbú-
in taka 93.000 fermetra, eða 9,3 ha.
Skipulagsmál á Grundartanga heyra
undir Hvalfjarðarsveit. Sveitarstjórn
þar lýsti í vor yfir stuðningi við hug-
myndir um byggingu verksmiðj-
unnar og tók jákvætt í ívilnun vegna
byggingar hennar. Ríkisstjórnin mun
einnig veita ívilnanir en þær geta fal-
ist í lækkun tryggingagjalds, tekju-
skatts og fasteignaskatts til ákveðins
tíma. Hugmyndir Silicor materials
byggjast á að þegar í október á þessu
ári geti byggingarframkvæmdir haf-
ist á Grundartanga. Ef skipulags-
mál munu ekki tefja framkvæmdir
er stefnt að byrjað verði á byggingu
fyrri áfanga verksmiðjunnar í októ-
ber á þessu ári og honum lokið um
mitt árið 2016. Síðari áfanginn verði
síðan tilbúinn síðari hluta árs 2017.
Ef áætlanir um byggingu ganga eftir
mun framleiðsla verða komin í gang
um mitt ár 2017.
Engum vafa er því undirorpið að
um gríðarlega lyftistöng verður að
ræða fyrir atvinnulífið á Vesturlandi.
mm
Skin og skúrir
í pólitíkinni
Sólarkísilverksmiðja á Grundartanga
Theresa Jester framkvæmdastjóri Silicor materials og Gísli Gíslason hafnarstjóri
Faxaflóahafna undirrituðu samkomulagið.
Ólafur Adolfsson verðandi forseti
bæjarstjórnar á Akranesi og Regína
Ásvaldsdóttir bæjarstjóri færðu Guð-
mundi Jóni Hafsteinssyni blómvönd
frá Akranesbæ við komu ferjunnar
Gullfoss til Akraness í gær.
Sjá nánar frétt á bls. 2
Ljósm. mþh