Skessuhorn - 04.06.2014, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2014
Sjómannadagshelgin á Vesturlandi
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlega víða um Vest-
urland með fjölbreyttri dagskrá um helgina. Þéttust var
dagskráin þó á Snæfellsnesi þar sem hátíðarhöldin byrj-
uðu ýmist á fimmtudag eða föstudag og lauk á sunnu-
dag. Yfir helgina var meðal annars boðið upp á fjölbreytta
dagskrá fyrir börn, sjómenn kepptu í ýmsum keppnis-
greinum, boðið var upp á kaffi og veglegar veitingar auk
þess sem aldraðir sjómenn voru heiðraðir. Veðrið lék ekki
beinlínis við hátíðargesti þetta árið en þeir létu það þó
ekki á sig fá og var stemningin góð eins og sjá má á með-
fylgjandi myndum.
jsb
Kristófer Jónasson, 79 ára sjómaður frá Ólafsvík, sem enn rær á trillunni sinni
Sædísi SH var heiðraður fyrir störf sín á sjó. Við hlið Kristófers stendur Auður
Böðvarsdóttir eiginkona hans. Ljósm. af.
Björgunarsveitin á Akranesi bauð börnum í sjóferð í Akraneshöfn.
Ljósm. gbh.
Viðar Björnsson, skipstjóri í Stykkishólmi var heiðraður á sunnudaginn fyrir störf sín á sjó. Á myndinni sjást, talið frá vinstri: Viðar Björnsson, Kristín Ósk Sigurðardóttir
eiginkona Viðars, Sigurður Ingi Viðarsson sonur hans og Hjalti Sigurðsson og Viðar Þór Sigurðsson barnabörn Viðars.
Ljósm. Sigurður Ingi Viðarsson.
Sjómenn í Ólafsvík taka á honum stóra sínum í reiptogi.
Ljósm. af.
Börn og fullorðnir skoðuðu sýnishorn af lífríki sjávar á
bryggjunni í Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Kristófer Bjarnason á Akranesi, fyrrum skipstjóri sem meðal annars var sex
sinnum aflakóngur vertíðarbáta á Akranesi, var heiðraður í Akraneskirkju fyrir
störf sín á sjó. Ljósm. vlfa.
Í tengslum við Evrópumótið í sjóstöng
kepptu börn í Ólafsvík í dorgveiði. Á
myndinni sést Sædís Rún Heiðarsdóttir
sem veiddi stærsta fiskinn á mótinu.
Ljósm. af.
Góð mæting var í sjómannadagskaffi Slysavarnadeildarinnar Líf í Jónsbúð á
Akranesi þar sem fólk gæddi sér á kræsingum við harmónikkuleik. Ljósm. jsb.
Þyrla landhelgisgæslunnar sýnir björgun úr sjó við Grundarfjarðarhöfn. Ljósm. tfk.
Í Grundarfirði sýna menn mátt sinn
með að stafla fiskikörum í hæstu
hæðir. Ljóms. tfk.