Skessuhorn - 04.06.2014, Side 39
39MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2014
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Góð mæting á Akranesleikanna 2014
Akranesleikarnir í sundi fóru fram í
Jaðarsbakkalaug um helgina. Mót-
ið sem áður hét ÍA-ESSO mót-
ið hefur nú verið haldið óslitið frá
árinu 1991, eða í 23 ár, og er annað
af tveimur stórmótum í sundi sem
enn eru haldin undir berum himni
hér á landi. Á mótinu kepptu tæp-
lega 400 ungmenni frá sundfélög-
um víða af landinu og keppt var í 68
keppnisgreinum á þremur dögum.
Stigahæsta liðið á mótinu í ár var
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar. Á
eftir því kom Sundfélag Akraness
og Óðinn frá Akureyri varð þriðja
stigahæsta lið mótsins. Skagamærin
Inga Elín Cryer sem keppir nú fyrir
sundfélagið Ægir átti frábært mót.
Inga Elín keppti í fjórum keppnis-
greinum og vann gull í þeim öllum
auk þess sem hún átti stigahæsta
sund mótsins. Sundfélagið Ægir
fékk að auki Brosbikarinn sem
veittur er prúðasta liði mótsins.
Að sögn Trausta Gylfasonar,
formanns Sundfélags Akraness,
tókst sérstaklega vel til með mót-
ið í ár þrátt fyrir að veður hafi ver-
ið heldur óhagstætt fyrir keppend-
ur og gesti. „Þrátt fyrir veðrið þá
stungu sundmenn sér 1820 sinn-
um til sunds í Jaðarsbakkalaug.
Fjöldi ferðamanna sótti Skagann
heim í tengslum við mótið og voru
foreldrar sundfólksins sérstaklega
duglegir að fylgja börnum sínum
til leiks,“ segir Trausti sem vill færa
starfsmönnum mótsins sem stóðu
vaktina um helgina sérstakar þakk-
ir. „Áætlað er að á Akranesleikun-
um hafi foreldrar og aðstandendur
sundmanna staðið 231 vakt við hin
ýmsu störf, s.s. dómgæslu, tækni-
störf, tímavörslu, mötuneytisstörf,
gæslu í Grundaskóla, kökubakstur,
þularstörf, riðlastjórn o.m.fl. Allt
var þetta unnið í sjálfboðavinnu og
vil ég sérstaklega þakka þeim fyrir
vel unnin störf.“
jsb
Í sundi er samhæfing hreyfingar og öndunar mjög mikilvæg. Eins og sést á þessari
mynd, átti þessi keppandi ekki í neinum vandræðum með að ná valdi á tækninni.
Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
Stærsti sigur kvennaliðs Víkings
Kvennalið meistaraflokks Vík-
ings Ólafsvík átti hörkuleik gegn
Hömrum á Hellissandsvelli sl.
föstudagskvöld þegar leikið var í
1. deild Íslandsmótsins. Stelpurn-
ar létu rigninguna ekki á sig fá og
börðust vel. Fyrsta markið kom
þó ekki fyrr en á 55. mínútu þegar
Freydís Bjarnadóttir skoraði fyr-
ir Víking. Zaneta Wyne bætti svo
við marki á 87. mínútu og það var
síðan María Rún Eyþórsdóttir sem
skoraði þriðja markið á 93. mín-
útu. 3:0 sigur því staðreynd og er
þetta stærsti sigur kvennaliðs Vík-
ings Ólafsvík hingað til.
Næsti leikur stelpnanna í Vík-
ingi verður föstudagskvöldið 6.
júní en þá mæta þær Stjörnunni í
Borgunarbikarnum í Snæfellsbæ.
Bæjarbúar eru hvattir til að mæta
á völlinn og styðja stelpurnar. þa
Skagamenn sigruðu topplið Þróttar R
Skagamenn mættu Þrótti Reykja-
vík í fjórðu umferð fyrstu deild-
ar karla í knattspyrnu á sunnu-
dagskvöldið og lauk leiknum með
0-1 sigri Skagamanna. Spilað var
á gervigrasinu í Laugardalnum og
var leikurinn fjörugur frá upphafi
til enda. Bæði lið fengu góð mark-
tækifæri á upphafsmínútum leiks-
ins. Fyrst gestirnir frá Akranesi og
svo heimamenn í Þrótti strax á eft-
ir en í bæði skiptin vörðu mark-
menn liðanna frábærlega. Bæði lið
héldu svo áfram að sækja en án ár-
angurs og hreint ótrúlegt að ekk-
ert mark hafi verið skorað á fyrsta
hálftíma leiksins. Á 33. mínútu fékk
Vilhjálmur Pálmason, leikmaður
Þróttar, beint rautt spjald fyrir brot
gegn Darren Lough, leikmanni
Skagamanna. Skagamenn voru ekki
lengi að nýta sér liðsmuninn og á
39. mínútu skoraði Jón Vilhelm
Ákason eftir aukaspyrnu og kom
Skagamönnum yfir.
Í síðari hálfleik voru gulklæddir
mun sterkari aðilinn og sóttu hart
að marki heimamanna og fengu
mörg mjög góð færi, en tókst þó
ekki að koma boltanum framhjá
Trausta Sigurbjörnssyni, markverði
Þróttara sem átti hreint stórkost-
legan leik í markinu. Lokamínút-
urnar voru svo æsispennandi, Þrótt-
arar sem voru manni færri freistuðu
þess að jafna metin og fengu nokk-
ur góð færi. Hinum megin á vell-
inum fengu Skagamenn einnig sín
færi og má þar nefna hjólhesta-
spyrnu frá sjónvarpsmanninum
Hirti J Hjartarsyni sem kom inn
á sem varamaður undir lok leiks.
Lengra komust hins vegar hvor-
ugt liðið og lauk leiknum með eins
marks sigri Skagamanna.
Næsti leikur Skagamanna verð-
ur á föstudaginn þegar þeir taka á
móti HK á Akranesvelli klukkan
19:15.
jsb
Lið Snæfellsness í góðum gír í öðrum flokki
Lið Snæfellsness mætti HK á Hell-
issandsvelli á sunnudaginn. Leik-
urinn var liður í Íslandsmóti 2.
flokks karla. Leikmenn Snæfells-
ness spiluðu mjög vel og náðu að
skora strax á fyrstu mínútu með
marki frá Kristni Magnúsi Pét-
urssyni. Strákarnir börðust vel og
Kristófer Jacomsson Reyes skoraði
síðan á 33. mínútu. HK menn skor-
uðu svo úr vítaspyrnu á 43. mínútu.
Eftir þennan sigur eru strákarnir í
2. flokki í fyrsta sæti í C deild með 6
stig. Næsti leikur þeirra er fimmtu-
daginn 5. júní á Hertz vellinum á
móti ÍR/Létti.
þa
Skagakonur enn án stiga eftir
fjórar umferðir
Kvennalið ÍA og Selfoss mættust í
fjórðu umferð Pepsí-deildar kvenna
sl. mánudagskvöld á JÁVERK-vell-
inum á Selfossi þar sem lokatölur
urðu 3-1 fyrir Selfoss. Selfossstúlk-
ur tóku fljótt öll völd á vellinum og
skorðu fyrsta mark leiksins á sjöttu
mínútu. Eftir markið færðu Skaga-
konur sig ofar á völlinn en áttu í
miklum erfileikum með að brjóta
á bak sterka vörn heimamanna. Lið
Selfoss sótti töluvert meira þegar
leið á hálfleikinn en þær gulklæddu
náðu skyndisókn á 28. mínútu þar
sem Guðrún Karítas Jónsdóttir
skoraði fyrsta mark Skagakvenna
í Pepsí-deildinni. Eftir jöfnun-
armarkið féllu Skagakonur mik-
ið til baka. Hart var sótt að marki
gestanna og á 38. mínútu skoraði
Dagný Pétursdóttir fyrir Selfoss og
þær sunnlensku komnar yfir á nýj-
an leik. Síðari hálfleikur var held-
ur tíðindalítill til að byrja með. Um
miðjan hálfleikinn höfðu bæði lið
átt ágætar sóknir en þó var heima-
liðið alltaf með yfirhöndina og lík-
legri til að bæta við. Það gerðist
svo þegar um tíu mínútur voru eft-
ir af leiknum. Það reyndist síðasta
mark leiksins og lokatölur því 3-1
fyrir Selfoss. Skagakonur því enn
án stiga þegar fjórar umferðir eru
búnar af tímabilinu og sitja í næst-
neðsta sæti deildarinnar.
Næsti leikur Skagakvenna er á
föstudaginn, 6. júní kl. 19:15 þar
sem þær mæta liði Selfoss aftur á
JÁVERK-vellinum en þá í Borgun-
arbikarnum. jsb
Úr leik ÍA og Vals á Akranesvelli 27. maí þar sem Skagakonur töpuðu 3:0.
Fjöldi leikja á stuttum tíma
hjá Grundarfirði
Mikið er búið að ganga á hjá strák-
unum í meistaraflokki Grundar-
fjarðar að undanförnu. Þeir spiluðu
á heimavelli við Berserki mánudag-
inn 26. maí síðastliðinn. Þar höfðu
þeir 2-1 sigur í miklum hvassviðr-
isleik þar sem að uppúr sauð eftir
leik, eins og greint er frá í annarri
frétt. Þar voru þeir Almar Björn
Viðarsson og Kristinn Aron Hjart-
arsson sem sáu um markaskor-
unina. Svo var haldið í keppnisferð
og spilað við Magna frá Grenivík í
Boganum á Akureyri föstudaginn
30. maí. Þar var mikil dramatík en
Magni komst í 1-0 en þá fótbrotn-
aði Rafaeil Figeruola Perez leik-
maður Grundarfjarðar illa og er
knattspyrnuvertíðin búin hjá hon-
um. Snemma í síðari hálfleik bættu
heimamenn í Magna svo við öðru
marki og útlitið dökkt fyrir Grund-
firðinga. En þá fylltust þeir ein-
hverjum fítonskrafti og minnkuðu
muninn og þar var að verki Aron
Baldursson sem bar fyrirliðabandið
í þessum leik. Skömmu síðar jafn-
aði Danijel Smiljkovic svo metin
áður en Grundfirðingar tryggðu
sér öll stigin þrjú með sjálfsmarki
heimamanna. Glæsileg endurkoma
hjá gestunum.
Eftir leikinn var förinni heitið á
Reyðarfjörð en þar var leikur gegn
Leikni Fáskrúðsfirði í Fjarðabyggð-
arhöllinni. Leikni F var spáð efsta
sætinu í deildinni. Grundarfjörður
átti samt í fullu tré við heimamenn
sem komust þó í 1-0 í fyrri hálfleik.
Í síðari hálfleik var Dominik Bajda í
liði Grundarfjarðar vikið af leikvelli
með sitt annað gula spjald. Heima-
menn gengu á lagið og bættu við
öðru marki sínu aðeins tveimur
mínútum síðar. Almar Björn Við-
arsson náði að minnka muninn á 88
mínútu en lengra komust gestirn-
ir ekki og heimamenn gerðu út um
leikinn í uppbótartíma með þriðja
marki sínu og 3-1 sigur Leiknis F
staðreynd.
Þrír leikir á sex dögum hjá
Grundarfirði og sitja þeir í 4. sæti
í deildinni með 7 stig eftir fjóra
leiki.
tfk