Skessuhorn - 02.07.2014, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2014
Stykkið pizza
gerð eins árs
STYKKISH: Stykkið pizza-
gerð í Stykkishólmi hefur nú
verið starfrækt í eitt ár. Í til-
efni þess rann öll innkoma af-
mælisdagsins í gær, 1. júlí, til
minningarsjóðs Valtýs Guð-
mundssonar. Sjóðurinn mun
nota peninginn til kaupa á
hjartahnoðtækinu Lúkasi,
eins og greint hefur verið frá
í Skessuhorni.
–jsb
Hjólhýsi
endaði útaf
LBD: Dráttarbeisli gaf sig
hjá ökumanni með hjólhýsi
í eftirdragi með þeim afleið-
ingum að hjólhýsið endaði
utan vegar í Norðurárdaln-
um skammt frá Hreðavatns-
skálanum. Óhappið átti sér
stað á sunnudagskvöldið við
Grábrók. Hjólhýsið var svo
laskað að það var fjarlægt
með kranabíl. Lögreglunni í
Borgarfirði og Dölum barst
tilkynning frá vegfaranda um
að lok á farangursgeymslu
rútubifreiðar hefði fokið upp
og opnast rétt um leið og við-
komandi var að mæta rútunni.
Gat vegfarandinn rétt forðast
hurðina með því að beygja
frá. Ökumanni rútunnar var
gert viðvart en hann hafði þá
áttað sig og gengið betur frá.
Fjögur umferðaróhöpp urðu
í umdæmi LBD í vikunni, öll
án teljandi meiðsla. Alls voru
15 ökumenn teknir fyrir of
hraðan akstur.
–jsb
Snæfríður í
fyrirtækjaheim
sóknir
SNÆFELLSNES: Snæfríð-
ur er félag ungs fólks á Snæ-
fellsnesi sem lætur sér annt
um framtíð svæðisins og er
tilgangurinn að gera Snæfells-
nes enn skemmtilegra. „Við
viljum efla menningarlíf ungs
fólks (20-30 ára) á svæðinu
og kynnast því hvernig hægt
er nýta tækifærin á svæðinu
og jafnvel búa sér til sitt eig-
ið starf,“ segir í tilkynningu.
Á morgun, fimmtudaginn 3.
júlí kl 17:00 ætlar Snæfríður
að heimsækja Frystiklefann á
Rifi og kynnast þeirri starf-
semi sem þar er starfrækt. Á
sama tíma ætla Vatnshellir
og Glacier Hiking, bæði ný-
leg fyrirtæki í Snæfellsbæ, að
kynna þá starfsemi sem þar
er. „Við hvetjum allt ungt fólk
og áhugasama til þess að nýta
tækifærið og mæta og kynnast
betur þessum spennandi fyr-
irtækjum,“ segir Snæfríðar-
fólk. Heimsóknin í Frystiklef-
ann er sú fyrsta af nokkrum
heimsóknum sem Snæfríð-
ur mun standa fyrir í sumar.
Markmiðið er að kynna fyrir
ungu fólki atvinnulíf og ólík
fyrirtæki á Snæfellsnesi. „Við
munum heyra í þeim sem
hafa reynslu af því að starta
og reka fyrirtæki og eru í leið-
inni að gera það sem þeim
finnst skemmtilegt. Heim-
sóknirnar eru líka tækifæri
fyrir ungt fólk á Snæfellsnesi
að hittast og hafa gaman.“
–mm
Samið um
skólaakstur
BORGARBYGGÐ: Alls
bárust níu tilboð í þær fimm
akstursleiðir sem boðnar
voru út í skólaakstur í Borg-
arbyggð, en tilboðin voru
opnuð fyrir skemmstu og
eiga að gilda til næstu tveggja
skólaára. Átta tilboðanna
voru gild, en einu var vísað
frá þar sem ekki komu fram
í því þær upplýsingar sem
krafist var í útboðsgögnum.
Á fundi sveitarstjórnar sl.
fimmtudag var samþykkt að
hafna öllum tilboðum í leið
19, nýja leið sem átti að setja
á Mýrar en hefur verið hætt
við þar sem í ljós kom að ekki
var þörf fyrir hana. Ákveð-
ið var að ganga til samninga
við lægstbjóðendur á öllum
hinum leiðunum. Þeir eru
Jósef Rafnsson sem var með
lægsta boð í leið 8 í Varma-
land, Ben og félagar í leið 9
í Þverárhlíð, Sigurður Ingi
Þorsteinsson var með lægsta
tilboð í akstur innan Borgar-
ness og hann fær einnig akst-
ur í tómstundastarf, sem var
leið 18 í tilboðinu. Á leið 18
var Sigurður Ingi með ná-
kvæmlega sömu krónutölu
og Þorsteinn Arilíusson.
–þá
Vitakaffi opnað
á föstudaginn
AKRANES: Vitakaffi, nýtt
kaffihús við Stillholt 16-18
á Akranesi, verður opnað
á föstudaginn klukkan 11.
Ýmis opnunartilboð verða
um helgina auk þess sem
fótbolti helgarinnar verður
sýndur á breiðtjaldi. Til sölu
verða írskir drykkir í tilefni
Írskra daga en einnig verður
hægt að fá veitingar, heima-
bakaðar kökur og kaffi frá
Kaffitári.
–jsb
Í vetur keypti Skógræktarfélag
Reykjavíkur jörðina Múlastaði í
Flókadal. Að sögn Helga Gísla-
sonar framkvæmdastjóra félags-
ins er þetta eina jörðin sem fé-
lagið á þótt það hafi svæði í fóstri
eins og Heiðmörk og Esjuhlíðar.
Áform eru hins vegar um að planta
í megnið af jörðinni Múlastöðum,
bæði sem útivistar- og nytjaskóg.
Húsin verða notuð sem vinnustofa
og til útleigu fyrir félagsmenn sem
eru um 1200.
„Þessi kaup voru einnig að hluta
til hugsuð sem fjárfesting fyrir fé-
lagið en þegar plantað hefur verið
í jörðina verður svæðið opnað fyr-
ir almenningi,“segir Helgi Gísla-
son framkvæmdastjóri félagins í
samtali við Skessuhorn. „Íbúðar-
húsið var orðið nokkuð illa farið
og er verið að gera það upp. Byrj-
að var að utan, skipt um klæðingu
og glugga. Það verður líklega klárt
í júlí. Verkið hefur gengið svo vel
að við erum að vona að hægt verði
að leigja íbúðarhúsið út til félags-
manna strax næsta vor. Verkefnið
er mjög spennandi og hafa menn
haft mikla ánægju af vinnunni.“
Helgi segir ennfremur að rífa eigi
útihúsin sem standa uppi í hlíðinni
en hin eigi að nota, loka þeim og
brúka sem geymslur. Þau eigi vel að
standa undir því hlutverki. „Okkur
lýst mjög vel á sveitina og þá granna
okkar sem við erum búnir að hitta
og hlökkum til að halda áfram með
þetta verkefni,“ segir Helgi Gísla-
son framkvæmdastjóri Skógræktar-
félags Reykjavíkur.
bgk
„Það er alltaf gott að vinna úti, bara
misjafnlega gott. Þetta er fínt núna
og við þurfum nú ekki að kvarta yfir
tíðarfarinu þótt demburnar hafi
verið þó nokkrar síðustu dagana,“
sagði Sturla Magnússon smiður.
Hann var við annan mann að ganga
frá áfellum við glugga á gömlu
síldar mjölsverksmiðjunni á Akra-
nesi í blíðunni sl. miðvikudag. Ný-
lega var gamla síldarverksmiðjan
færð í nýjan búning með því að ein-
angra og klæða húsið að utan með
áli. Sturla er þessa dagana að vinna
við lokafrágang í því verkefni, með
frágangi við glugga og kanta.
„Þeir eru duglegir að halda við
sínum húsum hjá HB Granda.
Við erum undirverktakar hjá Rud-
olf Jósefssyni byggingameistara,“
sagði Sturla en með húsasmiðnum
í þessari blikkvinnu var Ingi Björn
Róbertsson blikksmíðanemi, grín-
ari, trommuleikari og tónlistar-
maður með meiru. „Ég lýk iðn-
náminu um næstu áramót, er búin
með allt faglega má segja. Það eru
gamlar syndir eftir hjá mér, nokk-
ur „skítafög“ sem ég kalla,“ sagði
Ingi Björn glaðbeittur þar sem þeir
Sturla voru að ljúka við setja áfell-
urnar á einn gluggann sem sneri út
að höfninni. þá
Ingi Björn Róbertsson og Sturla Magnússon að störfum við gömlu síldarverk-
smiðjuna.
Smiðirnir á fullu í fráganginum
Múlastaðir í Flókadal. Eina jörð Skógræktarfélags Reykjavíkur. Plantað verður
í jörðina en íbúðarhúsið leigt út til félagsmanna. Eins og sjá má er verið að gera
íbúðarhúsinu til góða.
Múlastaðir verða afdrep skógræktarmanna