Skessuhorn - 02.07.2014, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2014
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI
Eiríkur J. Ingólfsson ehf.
Sólbakka 8 • Borgarnesi • ejiehf@simnet.is
Eiríkur 894 5151 • Ingólfur 892 8610
Sumarhús • Gluggar • Hurðir • Fög
S
ke
ss
uh
or
n
20
13
Í fyrrahaust óskaði Akraneskaup-
staður eftir hugmyndum um nýja
starfsemi í hinu sögufræga húsi,
Kirkjuhvoli, eftir að ákveðið var
að hætta að reka þar listasetur. Í
framhaldinu tók fyrirtækið Skaga-
ferðir ehf. húsið á leigu og hyggst
reka þar gistihús auk þess að vera
með menningartengda viðburði
í húsinu. Kirkjuhvoll er byggður
árið 1923 sem prestsbústaður en
í húsinu rak Akraneskaupstaður
listasetur frá 1995 til 2013. Húsið
hafði fyrir þann tíma verið endur-
gert og er bæjarprýði. Skagaferðir
ehf. er í eigu Elinbergs Sveinsson-
ar, Hafdísar Bergsdóttur og Hildar
Björnsdóttur. Síðastliðinn föstu-
dag undirrituðu eigendur Skaga-
ferða og Regína Ásvaldsdóttir bæj-
arstjóri á Akranesi húsaleigusamn-
ing til þriggja ára vegna leigu á
Kirkjuhvoli.
„Við ætluðum upphaflega að
vera líka með kaffihús í húsinu
en það mun ekki verða af því, að
minnsta kosti ekki fyrsta árið. En
við bjóðum upp á gistingu með
morgunmat og opnum gistiheim-
ilið næstkomandi fimmtudag,“
segir Hafdís í samtali við Skessu-
horn. Þau tóku við húsinu tómu
um miðjan júnímánuð og hafa því
haft í nógu að snúast undanfarn-
ar tvær vikur. „Við erum búin að
mála og gera ýmislegt fleira hérna
inni en vorum búin að vinna tölu-
verða undirbúningsvinnu þann-
ig að það gekk eftir að klára að
gera tilbúið tímanlega fyrir Írska
daga. Þetta eru átta herbergi sam-
tals en til að byrja með verðum við
með fjögur í notkun. Í ágúst verða
fjögur herbergi til viðbótar tekin í
notkun. Búið er að opna fyrir bók-
anir á booking.com og við stefnum
á að vera með allt fullbókað um
Írsku dagana,“ segja þær Hafdís
og Hildur. Gistiheimilið er snyrti-
legt og fallega innréttað. Nöfnin á
herbergjunum eru fengin úr nán-
asta umhverfi, svo sem Kalmansvík
og Garðalundur. Í miðrými húss-
ins er sýning á verkum Veru Lín-
dal. Á fimmtudaginn verður opið
hús í Kirkjuhvoli frá kl. 16 - 18.
Þá verður opnuð myndlistarsýning
með verkum Veru Líndal Guðna-
dóttur og bæjarbúum boðið að
koma og sjá þær endurbætur sem
hafa átt sér stað í húsinu.
Skipulagðar ferðir
um Akranes
Skagaferðir koma víða við og eru
ekki einungis að opna gistiheim-
ili. Fyrirtækið býður einnig upp á
skipulagðar ferðir um Akranes og
nærsveitir fyrir erlenda ferðamenn
undir nafninu „Taste Iceland.“ Þar
er lögð áhersla á upplifun ferða-
mannsins og kynni af atvinnuhátt-
um og menningu heimamanna
með áherslu á matarmenningu.
„Hjá Taste Iceland gefst ferða-
manninum einstakt tækifæri til að
kynna sér menningu, sögu og at-
vinnuhætti á svæðinu á persónu-
legan hátt í gegnum bein kynni
af heimamönnum, sögu þeirra og
menningu. Nýnæmið okkar felst í
áherslum okkar á menningu og af-
urðir svæðisins fremur en útivist
þó að upplifunin á náttúru Íslands
sé órofinn hluti af ferðum um land-
ið,“ segir Hildur um Taste Iceland.
Hún segir ferðirnar meðal annars
ætlaðar þeim sem eru í vikustoppi
á Íslandi eða skemur. „Þetta hent-
ar vel fyrir þá sem kjósa að fara í
styttri ferðir í nálægð við Reykja-
vík. Við bjóðum upp á hálfsdags,
heildags og tveggja daga ferðir
þar sem blandað er saman sögu,
menningu og náttúru svæðisins og
lögð áhersla á persónulega þjón-
ustu,“ segir hún. Hægt er að kynna
sér þjónustuna betur á heimasíð-
unni tasteiceland.is en verkefnið
er unnið í samstarfi við Þórisstaði
og Bjarteyjarsand.
Að auki sér þríeykið um
Skemmtismiðjuna, sem er sumar-
námskeið ætlað unglingum í 7. -
10. bekk. Þar er boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá þar sem saman fer
útivist, afþreying og skemmtun
fyrir ungmennin. Það verður því
nóg að gera hjá eigendum Skaga-
ferða í sumar. grþ
Héraðsdómur Vesturlands hefur
sýknað félagið Stert ehf. í Borg-
arnesi af kröfu Sigurbjörns Bárð-
arsonar um endurgreiðslu á kaup-
verði stóðhestsins Borgars frá
Strandarhjáleigu. Sigurbjörn
krafðist sex milljóna króna, að við-
bættum vöxtum, gegn því að skila
hestinum þar sem hann stóð ekki
undir væntingum. Héraðsdóm-
ur hafnaði öllum kröfum Sigur-
björns og gerði honum að greiða
Sterti 800 þúsund krónur í máls-
kostnað. Sigurbjörn keypti Borgar
af Sterti haustið 2012 og um leið
hestinn Hróð frá Laugabóli og
greiddi fyrir 11,9 milljónir króna.
Hann hugðist nota Borgar sem
reið- og keppnishest en væntingar
hans gengu ekki eftir. Þegar Sig-
urbjörn keypti Borgar var hann í
vörslu Alexanders Hrafnkelssonar
og Ólafar Guðmundsdóttur í Mos-
fellsbæ. Björgvin Þórisson dýra-
læknir skoðaði báða hestana þann
28. ágúst 2012. Stóðst Hróður
þá skoðun en Borgar ekki. Stefn-
andi tók við hestinum 2. septem-
ber 2012.
Í dómsgögnum segir m.a. „Sann-
að er í málinu með vottorðum og
skýrslum vitnanna Björgvins Þór-
issonar, Guðmars Albertssonar
og Susanne Braun að hesturinn
Borgar frá Strandarhjáleigu verð-
ur ekki notaður sem keppnis- eða
reiðhestur svo sem stefnandi hefur
haldið fram. Á hinn bóginn er þess
að gæta að stefnanda var það kunn-
ugt þegar 28. ágúst 2012 að hest-
urinn stóðst ekki þá skoðun dýra-
læknis sem þá fór fram og hafði því
ekki þá kosti sem til mátti ætlast.“
Kaupandi greiddi 2/3 kaupverðs
fyrir Borgar í desember 2012 og
síðan barst lokagreiðslan í febrú-
ar 2013. Í dómsgögnum segir m.a.
að það tjói stefnanda heldur ekki
að bera það fyrir sig að greiðslur
þessar hafi verið inntar af hendi að
óvilja hans. Með greiðslunum hafi
forsvarsmaður stefnda, Sterts ehf,
mátt ætla að uppgjöri vegna sölu
hans á hestinum væri lokið. Til-
mæli stefnanda, Sigurbjörn, frá 20.
mars 2013 og riftunaryfirlýsing
lögmanns hans frá 27. maí sama
ár eru því haldlausar, segir í niður-
stöðum dóms Héraðsdóms Vestur-
lands. þá
Sýknað af kröfu Sigurbjörns Bárðarsonar
Gengið var frá leigusamningi um Kirkjuhvol sl. föstudag. F.v. Hildur Björnsdóttir,
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Hafdís Bergsdóttir.
Gistiheimili opnað í Kirkjuhvoli
Foreldrar eru bestir í
for
vö
rn
um
.
Forvarnarhópur
Borgarbyggðar
Sumarið
er tíminn
Saman í sundi, saman í tjaldi, saman að ganga,
saman að grilla, saman að veiða, saman að spila,
saman að syngja, saman í sportinu, saman á hestbaki.
Samver
a foreldra og
ung
linga er
besta forvörnin
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
ÚTBOÐ
Orku veita Reykja vík ur • Bæj ar hálsi 1 • 110 Reykja vík
Sími 516 6000 • Fax 516 6308
www.or.is/um-or/utbod
Orkuveita Reykjavíkur – veitur ohf.
óska eftir tilboðum í verkið:
AÐVEITUÆÐ HITAVEITU
FRÁ DEILDARTUNGU
Jarðvinna, urðun, lagnir, og
yfirborðsfrágangur:
Útboðsverkið felst í endurnýjun á 730 metra kafla af
DN450 asbestlögn með DN400/560 stálpípu í landi
Varmalækjar í Borgarbyggð. Grafa skal upp og urða um
730 metra af eldri DN450 asbestlögn, einangraðri með
steinull og jafna lagnastæðið og sá í það.
Verklok framkvæmdaverks að undanskilinni sáningu eru
15. nóvember 2014.
Verklok heildarverks eru 10. júní 2015.
Verkkaupi gerir kröfu um lágmarks meðalveltu og
eiginfjárstöðu bjóðenda síðustu þrjú ár, sjá nánar í
útboðsgögnum.
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með
föstudeginum 27. júní 2014 á vefsíðu Orkuveitunnar
www.or.is/um-or/utbod.
Verkinu er nánar lýst í útboðsgögnum ORV-2014-05
Tilboð verða opnuð hjá Orkuveitu Reykjavíkur – veitum
ohf. Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, föstudaginn 11. júlí
2014 kl. 11:30
ORV-2014-05 26.06.2014