Skessuhorn - 02.07.2014, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2014
Fjórir nemendur úr framhaldsskól-
um á Vesturlandi voru í hópi 26
nemenda sem hlutu nýverið veg-
lega styrki úr Afreks- og hvatning-
arsjóði stúdenta Háskóla Íslands.
Nemendurnir eiga það sameigin-
legt að hafa náð framúrskarandi
árangri á stúdentsprófi og hefja
þeir allir nám við Háskóla Íslands
í haust. Nemendur af Vesturlandi
eru Berglind Gunnarsdóttir frá
FSN, Dagbjört Inga Grétarsdótt-
ir frá FVA, Unnur Ýr Haraldsdótt-
ir frá FVA og Þorkell Már Einars-
son frá MB. Styrkþegarnir allir eiga
það sameiginlegt að hafa náð fram-
úrskarandi árangri á stúdentsprófi
og hefja þeir allir nám við Háskóla
Íslands í haust.
Hver og einn styrkþegi fær 300
þúsund krónur í sinn hlut ásamt
því að fá felld niður skrásetningar-
gjöld við skólann. Styrkurinn nem-
ur því alls 375 þúsund krónum.
Auglýst var eftir styrkjum úr Af-
reks- og hvatningarsjóði stúdenta
Háskóla Íslands í vor og eru styrk-
irnir nú afhentir í sjöunda sinn. Við
val á styrkþegum var meðal annars
litið til árangurs á stúdentsprófi en
einnig voru önnur sjónarmið lögð
til grundvallar, svo sem virkni í
félagsstörfum í framhaldsskóla og
árangur á öðrum sviðum, svo sem
í íþróttum eða listum. Styrkirnir í
ár eru veittir með stuðningi Ald-
arafmælissjóðs Háskóla Íslands og
Happdrættis Háskóla Íslands.
Berglind í læknisfræði
Berglind Gunnarsdóttir lauk stúd-
entsprófi frá Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga árið 2012 eftir þriggja ára
nám og var þá dúx skólans. Hún
hefur lokið framhaldsprófi í klass-
ískum píanóleik og komið reglulega
fram á tónleikum en hún stundar
nám í djasspíanóleik. Auk þess hef-
ur hún leikið með unglingalands-
liðum Íslands í körfuknattleik og
varð í vor Íslands- og deildarmeist-
ari með meistaraflokki Snæfells í
Stykkishólmi. Berglind hyggur á
nám í læknisfræði í haust.
Dagbjört í næringar
fræði
Dagbjört Inga Grétarsdóttir braut-
skráðist frá Fjölbrautaskóla Vest-
urlands á Akranesi í vor og var þá
dúx skólans. Hún á að baki margra
ára nám í harmonikkuleik og hefur
lokið grunnprófi frá Tónlistarskól-
anum á Akranesi. Dagbjört stefnir
á nám í næringarfræði en þess má
geta að áhugi hennar á greininni
kviknaði í Háskóla unga fólksins.
Unnur Ýr í lyfjafræði
Unnur Ýr Haraldsdóttir var dúx
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi vorið 2013 og hlaut við
það tilefni fjölmörg verðlaun fyr-
ir námsárangur í ólíkum náms-
greinum. Unnur hefur æft knatt-
spyrnu á Akranesi um alllangt skeið
og er einn af lykilleikmönnum ÍA
í úrvalsdeild kvenna. Unnur hyggst
hefja nám í lyfjafræði í haust.
Þorkell Már í jarðeðlis
fræði
Þorkell Már Einarsson lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskóla Borg-
arfjarðar í vor og var dúx skól-
ans. Þorkell lauk náminu á þremur
árum en á þeim tíma keppti hann
tvisvar fyrir skólann í Gettu betur.
Þá hefur Þorkell æft körfuknattleik
í 11 ár og aflað sér dómararéttinda í
þeirri grein. Þorkell stefnir á nám í
jarðeðlisfræði í haust.
mm
Endurbygging Vestfjarðavegar
um brú á Reykjadalsá
Á fundi umhverfis- og skipulags-
nefndar Dalabyggðar, sem haldinn
var í Búðardal síðastliðinn miðviku-
dag, veitti nefndin Vegagerðinni
leyfi til framkvæmdar vegna end-
urbyggingar Vestfjarðavegar (60)
um brú á Reykjadalsá og breytinga
á Fellsendavegi (5829) og Hlíð-
arvegi (585). Framkvæmdum við
smíði nýrrar brúar yfir Reykjadalsá,
rétt við Fellsenda í Miðdölum, lauk
í vor en enginn vegur liggur nú
að brúnni. Brúin er 32 metrar að
lengd með tíu metra breiðu brúar-
dekki, þar sem akbraut er níu metr-
ar. Hún mun leysa af hólmi ein-
breiða brú á Vestfjarðavegi eftir að
áðurnefnd endurbygging vegarins
hefur verið gerð.
grþ
Nýbyggð brúin yfir Reykjadalsá í Miðdölum mun leysa af hólmi einbreiða brú
neðan við Fellsenda. Ljósm. bgk.
Framlög berast til kaupa á tölvusneiðmyndatækinu
Áfram berast framlög til kaupa á
nýju tölvusneiðmyndatæki fyr-
ir Heilbrigðisstofnun Vesturlands
(HVE) sem Hollvinasamtök stofn-
unarinnar beita sér fyrir. Þegar hafa
nokkur stór framlög borist eins og
greint hefur verið frá í Skessuhorni.
Í síðustu viku bættist enn í sjóðinn
þegar fulltrúar Kvenfélagsins Lilju
og Kvenfélagasambands Borgar-
fjarðar mættu í húsnæði HVE á
Akranesi til að afhenda framlög til
kaupa á tölvusneiðmyndatækinu.
Liljukonur úr Hvalfjarðarsveit af-
hentu 200 þúsund króna gjafabréf,
sem er afrakstur sölu á páskaliljum
síðasta vor. Fulltrúar Kvenfélaga-
sambands Borgarfjarðar fylgdu
eftir samþykkt frá aðalfundi fyr-
ir skömmu með 500 þúsund króna
framlagi en þá gerðist sambandið
um leið félagi í Hollvinasamtök-
unum.
Steinunn Sigurðardóttir, for-
maður Hollvinasamtaka HVE,
sagði um leið og hún þakkaði fyr-
ir og veitti framlögunum viðtöku,
að ómetanlegt væri að eiga svona
góðar konur að og sterk kvenfélög.
Steinunn vék að framgangi söfnun-
arinnar fyrir tölvusneiðmyndatæk-
inu. Hún sagði ljóst að þyngra væri
undir fæti nú en oftast áður með
söfnun af þessu tagi. Hún nyti þó
mikils velvilja allra. Þetta yrði ekki
spretthlaup eins og í fyrstu hefði
verið ætlað heldur langhlaup og
sagði Steinunn að væntanlega yrði
tækið samt komið í hús fyrir ársaf-
mæli Hollvinasamtakanna í janúar
næstkomandi. Sagði Steinunn að
m.a. heilbrigðisráðherra og þing-
menn hefðu sýnt málinu mikinn
velvilja og væru tilbúnir að veita
því sinn stuðning, en tölvusneið-
myndatækið kostar á bilinu 40 til
50 milljónir króna.
Eins og komið hefur fram er
tölvusneiðmyndatækið afar mikil-
vægt í starfsemi HVE. Núverandi
tæki er komið til ára sinna og ekki
er hægt að framkvæma í því all-
ar rannsóknir. Það er notað í 1600
skipti á ári og ljóst að auk óhag-
ræðis myndi það þýða mjög mikinn
kostnaðarauka fyrir íbúa á Vestur-
landi ef slíkt tæki yrði ekki til stað-
ar hjá HVE. þá
Fulltrúar gefenda, Kvenfélagsins Fjólu í Hvalfjarðarsveit og Kvenfélagasambands
Borgarfjarðar, ásamt stjórnarfólki í Hollvinasamtökum HVE.
Vestlenskir afburðanemendur fá styrki
Hópurinn allur ásamt rektor HÍ.
Berglind Gunnarsdóttir fær sinn styrk afhentan frá Kristínu Ingólfsdóttur.
Dagbjört Inga Grétarsdóttir fær sinn styrk afhentan frá Kristínu
Ingólfsdóttur.
Unnur Ýr Haraldsdóttir fær sinn styrk afhentan frá Kristínu Ingólfs-
dóttur.
Anton Elí Einarsson tekur við styrknum frá Kristínu Ingólfsdóttur
fyrir hönd bróður síns, Þorkels Más Einarssonar.