Skessuhorn


Skessuhorn - 02.07.2014, Page 14

Skessuhorn - 02.07.2014, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2014 Síðastliðinn föstudag hélt Slysa- varnafélagið Landsbjörg sinn árlega SafeTravel dag, en hann er helgað- ur öryggi ferðamanna. Ýmislegt var gert til að vekja athygli landsmanna og annarra ferðalanga á málefninu. Til að mynda stóðu sjálfboðalið- ar björgunarsveitanna vakt á fjölda Olís stöðva um landið síðdegis á föstudasginn, hittu ferðalanga, af- hentu þeim fræðsluefni og hvöttu til öruggra ferðalaga í sumar. Dag- urinn markaði einnig upphaf há- lendisvaktar björgunarsveitanna en þetta er níunda sumarið sem hún starfar. Á hverjum tíma munu fjór- ir hópar sjálfboðaliða björgunar- sveita af öllu landinu standa vakt- ina á hálendinu; tveir að Fjallabaki, Norðan Vatnajökuls og á Sprengi- sandi, þar sem þeir munu upplýsa ferðafólk, bregðast við útköllum og aðstoða á annan hátt. Búið er að lengja það tímabil sem sveitirn- ar standa vaktina og er það nú út ágústmánuð enda hefur reynslan sýnt að ekki fer að hægja á straumi ferðamanna fyrr en þá. Sjálfboðaliðarnir hafa á fyrri árum tekist á við fjölbreytt verk- efni; allt frá því að gefa tepptum ferðamönnum sveskjudjús yfir í al- varlegri hluti eins og endurlífgun og banaslys. Þannig sinntu þær um 2000 atvikum síðasta sumar, þar af vour um 500 atvik er hefðu að öll- um líkindum orðið að útkalli björg- unarsveitar úr byggð. Vinnufram- lag björgunarsveitanna á hálendinu jafngildir um fimm ársstöðugild- um. Á föstudaginn var einnig farið af stað með nýtt skjáupplýsingakerfi SafeTravel á landsbyggðinni og var Hlíðarendi á Hvolsvelli fyrsti stað- urinn sem slíkt er sett upp utan höfuðborgarsvæðisins. Skjáupplýs- ingakerfið byggir á að settir verða upp skjáir á allt að 30 helstu við- komustöðum ferðamanna víðsveg- ar um landið; á stærri upplýsinga- miðstöðvum, umferðarmiðstöðv- um, flugvöllum, stærri gististöðum og bensínstöðvum. Um er að ræða byltingu í upplýsingagjöf til ferða- manna hér á landi, ekki síst vegna þess hversu víðtækt samráð ýmissa aðila, svo sem Vegargerðar, Veður- stofu, almannavarnadeildar Ríkis- lögreglustjóra, ferðaþjónustunnar og fleiri, liggur að baki átakinu. mm Nýtt upplýsingatæknifyrirtæki hef- ur tekið til starfa á Akranesi, VS Tölvuþjónusta ehf. Eigendur eru Sigurþór Þorgilsson og Valdimar Þór Guðmundsson sem báðir eru búsettir á Akranesi. Þeir hafa tek- ið við þeim hluta af rekstri Tölvu- þjónustunnar Securstore ehf sem snýr að hýsingu á tölvubúnaði, rekstrarþjónustu og skýjalausn- ir. Þeir taka einnig við umboði og þjónustu á svokölluðu Cloud Bac- kup eða skýja-afritunarþjónustu hér á Íslandi fyrir hönd Keepitsafe, sem er hluti af j2 Global, en það fyrirtæki keypti afritunarþjónustu Securestore nýlega. Nýja fyrirtæk- ið mun verða staðsett að Esjubraut 49 á Akranesi, þar sem Tölvuþjón- ustan Securstore var áður. Því má segja að hið nýja fyrirtæki hvíli engu að síður á gömlum merg. Sigurþór og Valdimar sögðu í samtali við Skessuhorn að ástæðan fyrir kaupum þeirra á fyrirtækinu væri í raun einföld. Þeir hefðu báð- ir verið starfsmenn þess um nokk- urra ára skeið og líkað vel. Þeirra framtíðarsýn væri að vinna áfram skemmtilega vinnu og búa og starfa á Akranesi. Báðir hafi þeir próf- að að vinna á höfuðborgarsvæð- inu og voru orðnir leiðir á akstr- inum á milli og vildu því fyrir alla muni skapa sér atvinnu á staðnum. Þeir ákváðu því að bjóða í rekstur- inn sem eftir stóð hjá Securstore og eru sáttir við útkomuna. Guðveig Anna Eyglóardóttir skip- aði fyrsta sæti á lista Framsóknar- flokks í Borgarbyggð í sveitarstjórn- arkosningum í maí síðastliðnum. Framsóknarflokkur og Sjálfstæð- isflokkur mynduðu líkt og kunn- ugt er meirihluta í sveitarfélaginu stuttu eftir að niðurstöður kosning- anna lágu fyrir. Björn Bjarki Þor- steinsson oddviti sjálfstæðismanna verður forseti sveitarstjórnar fyrri tvö ár kjörtímabilsins og Guðveig Anna verður formaður bæjarráðs. Eftir tvö ár munu þau síðan víxla embættum. Guðveig Anna er fædd og uppalin í Borgarnesi. Hún starf- ar í gestamóttöku á Icelandair Hót- el Hamri og stundar auk þess fjar- nám frá Háskólanum á Hólum í ferðamálafræði en hefur ekki verið í sveitarstjórnarpólitík áður. „Ég hef verið hér með annan fót- inn alla tíð, þar sem mín stórfjöl- skylda býr hér. Síðustu ár bjó ég á Akureyri og starfaði þar í gesta- móttöku á Hótel KEA. En eftir að ég eignaðist börnin mín fór ég að finna fyrir löngun til að flytjast aft- ur í Borgarnes og vera í nálægð við fjölskylduna og æskustöðvarnar. Það var ótrúlega góð tilfinning að koma aftur „heim“ þar sem hjartað slær,“ segir Guðveig Anna í samtali við blaðamann Skessuhorns. Eins og áður segir er hún á nýjum vett- vangi í sveitarstjórnarmálum. Guð- veig Anna segir áhuga fyrir sveitar- stjórnarmálum hafa vaknað fljótlega eftir að hún fluttist aftur í Borgar- nes. „Ég hef þó lengi haft áhuga á landsbyggðarmálum og verið um- hugað um byggðarþróun í landinu. Síðasta vetur sat ég svo fyrir hönd foreldrafélags Grunnskóla Borgar- ness sem áheyrnarfulltrúi í fræðslu- nefnd. Ég er sérstaklega ánægð með að geta starfað áfram nú sem formaður fræðslunefndar,“ útskýr- ir Guðveig. Samgöngumál og fjar­ skipti mikilvægur þáttur Guðveig Anna segir stöðu Borgar- byggðar ágæta í dag. „Við þurfum auðvitað að halda vel utan um fjár- málin og tryggja örugga fjármála- stjórnun á öllum sviðum sveitar- félagsins. Við finnum fyrir auknum slagkrafti í atvinnulífinu og við vilj- um ná að virkja hann hér í Borgar- byggð.“ Hún segir atvinnumálin og tækifærin til að fjölga íbúum vera stærstu viðfangsefnin sem Borg- arbyggð stendur frammi fyrir nú í upphafi kjörtímabils. „Þetta þýðir einfaldlega það að okkar markmið er að auka tekjur sveitarfélagsins svo bæta megi alla grunnþjónustu og auka lífsgæði íbúa. Við þurfum að einbeita okkur að hlúa að þeim þáttum sem eru á valdi sveitar- félagsins til að bæta búsetuskilyrði og gera svæðið eftirsóknarverðara sem valkost fyrir bæði fjölskyldur og fyrirtæki,“ segir Guðveig Anna. Hún bætir því við að samgöngumál og fjarskipti séu mikilvægur þáttur fyrir uppbyggingu í sveitarfélaginu og gætu talist til mikilvægustu úr- lausnarefna nýrrar sveitarstjórn- ar. „Það er mikilvægt að bæta sam- göngur og fjarskipti hér í Borgar- byggð. Þau mál verða aftur á móti að vinnast örugglega með hlutað- eigandi aðilum og í samvinnu við hið opinbera.“ Góð breidd í sveitarstjórninni „Við teljum að tækifærin séu víða í sveitarfélaginu og mannauðurinn sé mikill. Til að mynda felur aukin starfsemi á Grundartanga og fjölg- un á starfsfólki þar í sér tækifæri fyrir Borgarbyggð sem við verðum að grípa,“ segir Guðveig aðspurð um helstu tækifæri sveitarfélags- ins í dag. „Tækifærin í ferðaþjón- ustu blasa við okkur og við sjáum frábæra uppbyggingu í þeim geira um allt sveitarfélagið. Háskólarn- ir á Bifröst og Hvanneyri og sam- félögin sem þeir tilheyra eru gríð- arlega mikilvægir fyrir sveitarfé- lagið. Að því verðum við að hlúa. Við höfum auk þess mikið af góð- um fyrirtækjum sem hafa alla burði til að vaxa og stækka.“ Guðveigu líst afar vel á þann hóp fólks sem skipar nýju sveitarstjórnina og segir þetta góða blöndu af fólki úr sveit- arfélaginu. „Breiddin er góð. Þetta eru bæði nýir einstaklingar og fólk með mikla reynslu. Við erum auk þess með frábæran hóp af fólki sem starfar á vegum sveitarfélagsins á ýmsum stöðum sem skiptir lykil- hlutverki. Það er mikið af kraft- miklu fólki í Borgarbyggð og það var til að mynda frábært að upplifa samvinnuna og gleði meðal fólks um síðustu helgi þegar við héldum frábæra Brákarhátíð,“ segir Guð- veig Anna Eyglóardóttir að lokum. grþ Nýtt upplýsingatæknifyrirtæki tekið til starfa á Akranesi Valdimar Þór Guðmundsson og Sigurþór Þorgilsson eigendur VS Tölvuþjónust- unnar ehf. Valdimar segir markmiðið að sinna vel þeim viðskiptavin- um sem voru áður hjá fyrirtæk- inu og bæta síðan við þegar tímar líða fram. „Við höfum talað við þá sem voru í viðskiptum við fyr- irtækið og þeir vilja allir halda áfram samstarfi með okkur, enda þekkjum við flesta í tengslum við störf okkar hér. Stærsta breyting- in til að byrja með er í raun bara eigendaskiptin en við viljum sækja á sem víðast og svo kemur bara í ljós hvert straumarnir liggja en hér eru bæði stór og smá fyrirtæki í þjónustu úr öllum starfsgrein- um.“ Þegar talið berst að tæknimálun- um og örygginu segir Sigurþór að fyrir öllu sé hugsað þar. „Við erum með sérútbúin kerfissal, bæði með góða varaaflgjafa sem taka flökt af rafmagninu sem getur komið til dæmis frá Grundartangasvæðinu og dísel rafstöð sem tekur við og keyrir tölvukerfin ef rafmagnið fer af. Til að halda okkur tengdum við umheiminn erum við einnig með mjög öflugar og öruggar netteng- ingar.“ Félagarnir segja að svona vinna sé oft ekki sýnileg því ef tölvukerfi gangi vel þá tekur fólk ekki endi- lega eftir því hvaða vinna liggur á bak við þau. „Okkar markmið er að halda áfram að bjóða viðskipta- vinum upp á fyrsta flokks þjónustu, sækja svo á með sígandi lukku og aukinni þjónustu. Fólk gengur að okkur vísum á sama stað.“ Sigurþór og Valdimar vilja að lokum koma að þakklæti til fyrrver- andi eigenda Tölvuþjónustunnar Securstore fyrir samstarfið á liðn- um árum. bgk Tækifæri víða í sveitarfélaginu Rætt við Guðveigu Önnu Eyglóardóttur formann bæjarráðs í Borgarbyggð Svipmynd tekin eftir annan fund nýrrar sveitarstjórnar. Ljósm. borgarbyggd.is Guðveig Anna Eyglóardóttir, formaður bæjarráðs Borgarbyggðar er hér lengst til vinstri. Hér er hún ásamt Helga Hauk Haukssyni bæjarfulltrúa, Finnboga Leifssyni bæjarfulltrúa og Kristínu Erlu Guðmundsdóttur varabæjarfulltrúa þegar meiri- hlutasamstarfið var kynnt. Hálendisgæsla björgunars veitanna hafin

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.