Skessuhorn - 02.07.2014, Blaðsíða 15
15MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2014
Byggingarmannvirki, lagnir, stálsmíði og rafbúnaður:
Útboðsverkið fellst í tengingu gufuveitu frá borholum í Hverahlíð við
Hellisheiðarvirkjun. Byggja skal skiljustöð 4, sem samanstendur af skiljum
og dæluhúsi við Hverahlíð, og lagningu gufuaðveitulagnar (DN1000) og
skiljuvatnsaðveitulagnar (DN600) frá Hverahlíð og að Hellisheiðarvirkjun.
Verkkaupi gerir kröfu um lágmarks meðalveltu og eiginfjárstöðu bjóð-
enda síðustu þrjú ár, sjá nánar í útboðsgögnum.
Verkkaupi býður væntanlegum bjóðendum til kynningarfundar og
vettvangsskoðunar sem hefst í kynningarrými stöðvarhúss Hellisheiðar-
virkjunar miðvikudaginn 2. júlí, kl. 13:00.
Verklok eru í síðasta lagi 30. júní 2016.
Aðrir skiladagar eru nánar skilgreindir í útboðsgögnum.
Útboðsgögnin verður hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu OR
http://www.or.is/um-or/utbod frá og með þriðjudeginum 24. júní 2014.
Verkinu er nánar lýst í útboðsgögnum ONV 2014/01
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Tilboð verða opnuð hjá Orku náttúrunnar ohf. að Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, þriðjudaginn 12. ágúst 2014, kl. 13.00.
ONV 2014/01 2.06.2014
ÚTBOÐ
ORKA NÁTTÚRUNNAR OHF. ÓSKAR EFTIR TILBOÐUM
Í ÚTBOÐSVERKIÐ
HELLISHEIÐARVIRKJUN
6. ÁFANGI HVERAHLÍÐARLÖGN
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Ljósuganga til minningar um hundrað ár
frá útskrift úr Yfirsetukvennaskólanum
Helgina 4. - 6. júlí næstkomandi
verður svokölluð Ljósuganga geng-
in í minningu Guðrúnar Teitsdótt-
ur ljósmóður. Guðrún fæddist 1889
og útskrifaðist úr Ljósmæðraskól-
anum árið 1914 og á því 100 ára
ljósmóðurafmæli í ár. Hún lést þann
17. júní 1978. Konur tengdar Guð-
rúnu og fjölskyldu hennar ætla að
heiðra minningu hennar með því að
ganga sömu leið og hún gekk eft-
ir að hún lauk „Yfirsetukvennaskól-
anum“ fyrir hundrað árum. Gekk
hún frá Borgarnesi að Grænumýr-
artungu, sem er fyrsti bær norðan
við Holtavörðuheiði, í hríð og lé-
legu skyggni, klædd pilsi og dönsk-
um skóm. Þangað var hún sótt á
hesti en áfangastaðurinn var heim-
ili hennar, Kringla í Austur - Húna-
vatnssýslu.
Ljósugangan hefst við Hyrnuna
í Borgarnesi föstudaginn 4. júlí og
er mæting kl. 8:00. Gangan hefst
kl. 8:30 og er fyrsta dagleið alls 35
km þar sem gengið verður að Bif-
röst. Önnur dagleið verður geng-
in á laugardeginum, frá Bifröst að
Fornahvammi, alls 27 km og hefst
gangan kl. 8:30. Þriðja og síðasta
dagleiðin hefst kl. 8:30 sunnudag-
inn 6. júlí. Gengið verður frá Forna-
hvammi að Grænumýrartungu, alls
25 km. Öllum konum, ungum sem
öldnum, er velkomið að ganga með
og er hægt að koma inn í göng-
una hvenær sem er og ganga hluta
úr dagleið. Allt eftir því sem hverj-
um og einum hentar best. Hvert
spor skiptir máli. Konur eru beðnar
um að tilkynna þátttöku og áætlaða
göngulengd á ljosuganga@gmail.
com. Gert er ráð fyrir að allar konur
gangi á eigin forsendum hvað varð-
ar gistingu, fæði og klæði. Göngu-
stjóri er Vala Friðriksdóttir, farar-
stjóri hjá Útivist. Hún gerir ráð fyr-
ir að hver dagleið taki að meðaltali
um tíu klukkustundir, þar sem ekki
er ætlunin að fara hratt yfir. Sagð-
ar verða sögur frá starfi Guðrún-
ar ljósu á leiðinni. Heiðursgöngu-
félagar eru Hildur Harðardóttir,
yfirlæknir fæðinga- og kvensjúk-
dómadeildar LSH og Guðrún Anna
Guðmunda Árnadóttir, sem er eina
eftirlifandi barn Guðrúnar ljósu.
Hún verður 93 ára í ár.
Í tilefni göngunnar ætlar göngu-
hópurinn að safna áheitum. Þau
munu renna óskipt til LÍF, styrkt-
arfélags Kvennadeildar Landspítal-
ans. Hægt er að leggja inn upphæð
að eigin vali inn á eftirfarandi reikn-
ing og merkja innleggið LJÓS-
UGANGA. Áheit verða notuð til
góðs í nafni Guðrúnar Teitsdótt-
ur. Bankanúmer: 515-14-411000,
kennitala 501209-1040. Þá er einn-
ig er hægt að hringja í síma 907-
1115 og styrkja verkefnið um 1.500
kr. Nánari upplýsingar um göng-
una má finna á facebook síðu henn-
ar undir nafninu Ljosuganga. grþ
Hjónin Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir og Árni Kristófersson í Árnesi.
Ljósm. Ljósmyndasafn Skagastrandar.
Kort af hinni 87 km gönguleið sem
gengin verður í Ljósugöngunni.
Opið alla helgina
Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is
Góða skemmtun á Írskum dögum!
Mikið magn rauðra háralita fáanlegt
Ekki örvænta
þótt þú sért ekki
rauðhærðasti
Íslendingur í heimi
Afgreiðs
lutímar:
Virka dag
a 9–18
Laugarda
ga 10–14
Sunnudag
a 12–14