Skessuhorn - 20.08.2014, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 34. tbl. 17. árg. 20. ágúst 2014 - kr. 600 í lausasölu
ARION
APPIÐ
ARION APPIÐ
– GÓÐUR FERÐAFÉLAGI
Ef þú þarft í bankann í fríinu er best að hafa Arion appið með.
Það tekur ekkert pláss og leysir málið á nokkrum sekúndum.
Sæktu Arion appið á arionbanki.is
Einnig í Play Store og App Store
Fæst án lyfseðils
LYFIS
Restaurant Munaðarnes
Borgarfirði
525 8441 / 852 1601
Njótið veitinga
í fallegu umhverfi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
OPIÐ
17.00 – 22.00
Atli Harðarson skólameistari Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi
undirritaði í liðinni viku ráðningar-
samning við Háskóla Íslands. Sam-
kvæmt honum tekur Atli við stöðu
lektors við Menntavísindasvið HÍ
15. september næstkomandi. Atli
segir að mennta- og menningar-
málaráðherra
hefði veitt sér
lausn frá störf-
um sem skóla-
meistari FVA
frá og með sama
degi.
Atli var skip-
aður skólameist-
ari FVA árið
2011 þegar Hörður Ó Helgason lét
af störfum. Áður hafði hann gegnt
starfi aðstoðarskólameistara FVA
tíu ár þar á undan. Þar á undan
starfaði Atli sem framhaldsskóla-
kennari allt frá 1996. Hann hef-
ur meistaragráðu í heimspeki frá
Brown háskóla í Bandaríkjunum og
doktorsgráðu í menntunarfræðum
frá Háskóla Íslands.
mm
Eigendur Hótel Stykkishólms hafa
sýnt áhuga á að stækka hótelið. Þá
hefur verið
send óformleg
fyrirspurn um
ónotaða lóð
við Aðalgötu
til bygging-
ar hótels. Af
þessu má ráða
að menn hafa
trú á fjölgun
ferðamanna á
Snæfellsnesi ekki síð-
ur en í öðrum lands-
hlutum.
Á fund skipulags- og bygging-
arnefndar Stykkishólmsbæjar 11.
ágúst sl. barst fyrirspurn frá Hót-
el Stykkishólmi þar sem óskað var
eftir stækkun á hótelinu við Borg-
arbraut 8. Fyrirhugað er sam-
kvæmt erindinu að byggja ofan á
eldri hluta hótelsins, eina hæð ofan
á millibyggingu og tvær hæðir ofan
á nýrri hluta byggingarinnar. Alls
nemur stækkunin 57 herbergjum,
samkvæmt uppdrætti frá Verkfræði-
stofu Hauks Ásgeirssonar. Skipu-
lags- og byggingarnefnd frest-
aði afgreiðslu erindisins, þar sem
það barst sama dag og fundurinn
var haldinn og náðu fundarmenn
ekki að kynna sér erindið. Þá vant-
aði einnig um-
sagnir vinnu-,
heilbrigðis- og
brunaeftirlits.
Óskað var eftir
fullunnum að-
aluppdráttum
tímanlega fyr-
ir næsta fund.
Forsvarsmaður
Hótels Stykk-
ishólms sagði í sam-
tali við blaðamann
að ekki væri tíma-
bært að greina nánar frá fyrirhug-
aðri stækkun.
Á fyrrgreindum fundi var lögð
fram nafnlaus fyrirspurn um lóð
við Aðalgötu 17. „Áhugi er fyrir að
byggja allt að 500 fermetra hótel á
umræddri lóð,“ segir í fundargerð
nefndarinnar. Að sögn Daða Jó-
hannessonar, formanns nefndarinn-
ar, var þetta einungis almenn fyrir-
spurn um hvort umrædd lóð hent-
aði undir hótelbyggingu. Nefndin
sá ekkert því til fyrirstöðu enda er
lóðin skilgreind sem viðskipta- og
þjónustulóð samkvæmt breytingu á
aðal- og deiliskipulagi. grþ
Oft kemur það fyrir að heyrúllur úti á túnum séu notaðar til að koma ýmsum skilaboðum á framfæri. Andstöðu við aðild að
ESB var þannig komið á framfæri fyrir nokkru og þá hefur MS notað einstaka heyrúllur til að auglýsa góðosta, enda lögun
þeirra svipuð nokkrum þeirra. Þessa áletrun má hins vegar lesa af rúllustæðu á túni við Króksfjarðarnes. Hvað viðkomandi
hefur verið að koma á framfæri er ekki vitað, en húmorinn er í lagi: „Mamma heldur að ég sé í Vestmannaeyjum.“ Ljósm. mm.
Í þessum mánuði setjast þúsundir
nemenda leik,- grunn,- framhalds-
og háskóla á Vesturlandi á skóla-
bekk. Leikskólar eru þegar komnir
úr fríi og grunnskólarnir hefja flest-
ir formlegt skólastarf í þessari viku.
Starf háskólanna er einnig að hefj-
ast. Þá hefur Símenntunarmiðstöð-
in á Vesturlandi brátt sitt árlega
hauststarf með fjölda námskeiða
og lengra námi. Með Skessuhorni í
dag fylgir sérblað um upphaf skóla-
halds. Rætt er við stjórnendur á
fyrrgreindum skólastigum m.a. um
helstu áherslur í skólastarfi, sér-
stöðu skólanna og forvitnast um
fjölda nemenda og starfsfólks svo
eitthvað sé nefnt. mm
Atli hættir
í haust
Skólablað fylgir
Skessuhorni í dag
Vilja auka gistirými
Umrædd lóð í Stykkishólmi, þar
sem áhugi hefur verið sýndur á
að byggja nýtt hótel. Ljósm. jsb.
Hvalfjarðar-
dagar
29. - 31. ágúst
Fjölbreytt dagskrá
um alla sveit