Skessuhorn - 20.08.2014, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2014
Nú er sumarfríum lokið í leik-
skólum Vesturlands og mikið um
að vera hjá nemendum og starfs-
fólki þeirra. Heyrt var hljóðið í
forsvarsmönnum skólanna. Rétt
er að taka fram að í fjórum til-
fellum eru leikskólar sameinað-
ir grunnskólum og vísar Skessu-
horn í greinar um þá, sem er að
finna á öðrum stað hér í blaðinu.
Þetta eru Leik- og grunnskóli
Hvalfjarðarsveitar, Laugagerð-
isskóli í Eyja- og Miklaholts-
hreppi, Auðarskóli í Dalabyggð
og Reykhólaskóli.
Akranes
Á Akranesi eru starfræktir fjór-
ir leikskólar; Akrasel, Garðasel,
Teigasel og Vallarsel. Alls eru 430
nemendur í leikskólum Akranes-
kaupstaðar þennan veturinn, sem
er fjölgun um 25 börn.
Akrasel
Leikskólinn Akrasel er yngsti leik-
skólinn á Akranesi, stofnaður 8.
ágúst árið 2008, og átti því nýverið
sex ára afmæli. Á Akraseli verða 138
nemendur í vetur og eru þeir yngstu
sem teknir eru inn á öðru aldursári.
Deildir skólans verða sex þennan
veturinn og eru þær aldursskiptar.
Skólastarfið hófst 5. ágúst síðast-
liðinn. Starfsmenn skólans eru 38
með fólki í eldhúsi og við stjórnun
og er hlutfall faglærðra 74%.
Starfið á Akraseli snýr að miklu
leyti að heilbrigði og umhverfis-
vernd. „Akrasel er Grænfánaskóli
og við vinnum eftir kjörorðum
skólans sem eru Náttúra, Næring
og Nærvera. Aðaláherslur skólans
eru umhverfismennt, endurvinnsla,
endurnýting, en einnig vinnum við
mikið með jóga. Við erum í samtök-
um sem nefnast Birta, ásamt þrem-
ur öðrum leikskólum,“ segir An-
ney Ágústsdóttir skólastjóri Akra-
sels. Markmið Birtu er að vinna að
lífsleikni barna í gegnum jóga og að
gera umhverfismennt, heilbrigði,
hreyfingu og hollt fæði áberandi í
starfi leikskólans.
Anney segir einnig að næstu tvö
árin verði leikskólinn í samstarfi við
fjórar aðrar þjóðir vegna NORD+
verkefnis sem ber heitið Today a
child - to morrow leader. „Þessar
þjóðir eru Lettland, Eistland, Nor-
egur, Svíþjóð og svo við frá Íslandi.
Við skiptumst á að heimsækja hvert
annað með skemmtileg verkefni og
kynningar á skólunum okkar. Vorið
2016 tökum við á móti hópnum.“
Í Akraseli er einnig verið að vinna
með nýútkomna handbók sem
heitir Snemmtæk íhlutun í mál-
örvun tveggja til þriggja ára barna,
þar sem áhersla er lögð á inngrip ef
um frávik í málþroska er að ræða.
Að sögn Anneyjar var skólinn svo
heppinn að hefja samstarf við Ást-
hildi Bj. Snorradóttur og Bergrósu
Ólafsdóttur talmeinafræðinga fyrir
nokkrum árum og afraksturinn er
áður nefnd handbók.
Garðasel
Leikskólinn Garðasel er heilsu-
leikskóli og í sambandi heilsuleik-
skóla hér á landi. Þar eru einkunn-
arorðin hraust sál í hraustum lík-
ama. Í heilsuleikskólunum er m.a.
lögð áhersla á næringu og hreyf-
ingu. Garðasel hefur verið heilsu-
leikskóli síðan árið 2005 og í ár eru
25 leikskólar á Íslandi í samtökun-
um. Ingunn Ríkharðsdóttir leik-
skólastjóri segir gífurlega gaman að
vera þátttakandi í þessu starfi. „Við
hittumst reglulega, förum yfir nær-
ingar- og heilsustefnu og hvert barn
fær heilsudagbók. Það er svo gott að
vera í samstarfi og finna til þess að
tilheyra samfélagi. Starfið er alltaf í
stöðugri þróun og mikið pælt. Síð-
an er aðeins blæbrigðamunur á milli
leikskólanna. Hér í Garðaseli höfum
við kennt útinám til viðbótar. Það
er oft mikil áskorun að fara í ann-
að umhverfi og yfirfæra þar, það sem
kennt er heima.“
Í ár eru 75 nemendur á Garða-
seli og ríflega tuttugu starfsmenn;
14 kennarar og sjö leiðbeinendur
sem eru hoknir af reynslu. Garða-
sel hefur fengið viðurkenningar, tvö
ár í röð, sem besti vinnustaðurinn, í
vinnustaðakönnunum Starfsmanna-
félags Reykjavíkur, þar sem Akra-
neskaupstaður er aðili að. Ingunn
segir þetta mikilvægt því það séu
starfsmennirnir sjálfir sem eru að
gefa vinnustaðnum sínum einkunn.
Það er alltaf fullt í Garðaseli. „Nú
eru fyrstu nemendur skólans orðn-
ir foreldrar sjálfir og farnir að koma
með börnin sín hingað. Það er gríð-
arlega skemmtilegt. Ég get því sann-
arlega hrósað starfsfólkinu mínu og
foreldrum. Enda er hér alltaf lausna-
miðuð hugsun að verki, ekki vanda-
mál heldur verkefni,“ segir Ingunn
leikskólastjóri.
Teigasel
Leikskólinn Teigasel opnaði að nýju
eftir sumarleyfi fljótlega eftir versl-
unarmannahelgi. Í vetur stunda
þar 74 börn nám, þau yngstu fædd
árið 2012. Að sögn Margrétar Þóru
Jónsdóttur leikskólastjóra munu
18 börn útskrifast næsta vor sem
er stór árgangur miðað við þenn-
an litla leikskóla. „Þegar við tök-
um inn ný börn höfum við aðlög-
un í þrjá daga. Þann tíma taka for-
eldar fullan þátt í öllu starfi barns-
ins hér. Leika, sofa, matast, skipta á
bleiu, hvað sem er. Með því að hafa
þetta svona tekur aðlögunin styttri
tíma og allir eru gríðarlega sátt-
ir, bæði börn og foreldrar. Öryggi
nemendanna eykst og foreldrar vita
nákvæmlega hvernig starfið gengur
fyrir sig. Vegna þess hversu margir
komu inn núna verðum við með tvo
aðlögunarhópa, sitt hvora vikuna.“
Sérstaða Teigasels liggur í stærð-
fræðikennslu sem og atferlisþjálfun
fyrir börn með röskun á einhverf-
urófi. „Við erum móðurskóli Akra-
neskaupstaðar fyrir atferlisþjálfun
og vorum þau fyrstu að taka það
upp. Og stærðfræðikennslan hefur
tekist gríðarlega vel. Grunnskóla-
kennarar í Brekkubæjarskóla hafa
talað um að börn frá okkur beri af
þegar kemur að rökhugsun, stærð-
fræði og skilningi á bak við hana.
Þetta er sérstaklega ánægjulegt.“
Við skólann eru 19 starfsmenn,
fjórir nýir hófu störf í haust, flestir
í heilsdagsstörfum. Aðspurð hvort
allar stöður væru mannaðar með
faglærðu fólki, sagði Margrét Þóra
svo ekki vera. „Akraneskaupstaður
setti sér kvóta svo ég má ekki hafa
faglært fólk í öllum stöðum. Von-
andi breytast þær áherslur með
nýrri stjórn. En ég er afskaplega
ánægð með starfsfólkið og í raun
er kaupstaðurinn mjög vel settur af
faglærðu fólki. Við erum lítill leik-
skóli sem þyrfti að stækka því hér
er alltaf biðlisti. En það er ekkert
pláss til þess.“
Ný skólanámskrá var unnin fyr-
ir Teigasel á síðasta ári. Svoleiðis
plögg eru ekki unninn árlega en at-
hygli vekur að allar myndir í nám-
skránni eru af eldri nemendum.
„Við gerðum þetta í tvennum til-
gangi. Bæði af virðingu fyrir öllum
þeim sem unnu við gæslu barna hér
áður fyrr og eins til að gera skóla-
námskránna svolítið tímalausa,“
segir Margrét Þóra að endingu.
Vallarsel
Vallarsel er elsti leikskólinn á Akra-
nesi og átti 35 ára afmæli síðasta
vor. Mikið var um dýrðir í tilefn-
is dagsins. Farið var í skrúðgöngu
undir taktfastri stjórn nemenda í
tónlistarskólanum. Lögreglan lok-
aði götum þar sem börnin fóru um
og svo var opið hús. Að sögn Krist-
ínar Sveinsdóttur, aðstoðarleik-
skólastjóra var gríðarlega góð mæt-
ing. Yfirmönnum bæjar og þjóðar
var boðið í heimsókn til að kíkja á
starfið og sýningu sem haldin var
í salnum. „Svo opnuðu þeir starfs-
menn sem lengst hafa unnið hér,
albúm sín. Þar kom margt gríðar-
lega skemmtilegt í ljós frá liðnum
tíma og sást vel hversu margt hef-
ur breyst. M.a. var reykt í kaffistof-
unni á fyrstu árunum. Það væri alls
ekki leyft í dag.“
Í vetur verða 143 börn á Vall-
arseli og starfsmenn eru nú 33 og
enn er verið að ráða. Sérstaða skól-
ans liggur í öflugu tónlistarstarfi
og frjálsa leiknum. Kristín segir að
tónlistin sé framkvæmd á ýmsan
hátt. „Börnin nota líkamann m.a.
sem hljóðfæri, svo búa þau til sín
eigin, auk þess sem leikskólinn á
gott safn hljóðfæra sem við höfum
safnað í áranna rás og notað til þess
styrki og gjafir.“
Varðandi frjálsa leikinn þá er
honum stýrt með vali. „Við viljum
að börnin velji sér svolítið félaga
Það hefur verið votviðrasamt í sumar á Vesturlandi. Börnin á Akraseli eru ekki í
vandræðum með að bregðast við því.
abc
Leikskólar á Vesturlandi byrjaðir skólaárið
Börnin á Garðaseli skelltu sér meðal annars í keilu á íþróttadögum.
Fjaran heillar alltaf, ekki síst í góðum félagsskap skólasystkina á Akraseli.
Skógræktin býður upp á ýmislegt í leik og starfi. Hér kíkja börnin á Garðaseli á
Akranesi í skógræktina.
Hér eru nýju börnin á Teigaseli á Akranesi í þátttökuaðlögun.
Tónlistin spilar stórt hlutverk í starfinu á Vallarseli á Akranesi.