Skessuhorn - 20.08.2014, Page 23
23abc
Gulu deildina og Stubbakot sem
Bangsakot tilheyrir. Yngstu börn-
in sem tekin eru inn á Krílakot eru
tveggja ára gömul. Yngri ef pláss
leyfir. Starfsemi leikskólans hófst
14. ágúst sl.
„Aðal hugtök okkar eru virðing,
vinátta og gleði og okkar megin
áhersla í starfinu í gegnum þessa
þætti er stærðfræði og málþroski,“
segir Hermína K. Lárusdóttir að-
stoðarleikskólastjóri Krílakots.
„Í málþroska leggjum við mikla
áherslu á málörvun og hljóðkerf-
isvitund barna. Við þróum læsi
og í vetur ætlum við að vera með
aukinn skiltalestur þar sem flest í
skólanum er merkt. Í stærðfræði-
kennslunni notumst við mikið við
Numicon kubba, þar sem flest allir
okkar starfsmenn hafa farið á nám-
skeið. Valið heldur áfram hjá okk-
ur, bæði innan deildar og svo val á
milli deila,“ segir Hermína K. Lár-
usdóttir að endingu.
Kríuból á Hellissandi
Á leikskólanum Kríubóli á Hellis-
sandi verða 44 börn í vetur á tveim-
ur aldursskiptum deildum; Hóli þar
sem yngri nemendur eru og Garði
þar sem þau eldri eru. Starfsmenn
skólans eru 14, tveir leikskólakenn-
arar, tveir grunnskólakennarar og
svo eru tveir starfsmenn að hefja
nám núna í haust. Yngstu börnin
sem tekin eru inn eru átján mánaða
til tveggja ára og starfsemi skólans
hófst 14. ágúst síðastliðinn.
Steinunn Dröfn Ingibjörns-
dóttir er aðstoðarleikskólastjóri á
Kríubóli. Hún segir frjálsan tíma
á Kríubóli vera frá klukkan átta til
tíu og eitt til þrjú þar sem börnin
hafa að segja um hvað þau taka sér
fyrir hendur. „Leiknum er gefið
mikið rými í starfi okkar og börn-
in hafa þar frjálst val til að velja sér
leiksvæði, efnivið og leikfélaga.
Þá erum við með fimm innileik-
svæði og eitt útileiksvæði og hef-
ur hvert svæði sín sérkenni. Á þess-
um tímum blandast deildirnar og
þannig geta systkini á mismunandi
aldri leikið saman,“ segir Steinunn
Dröfn. „Við leggjum einnig mikla
áherslu á stærðfræðikennslu og
Numicon kubba. Það er líka hluti
af vali barnanna.“
Sólvellir í
Grundarfirði
Á leikskólanum Sólvöllum í
Grundarfirði verða 56 nemend-
ur í vetur á aldrinum eins til fimm
ára. Nemendum er skipt niður eft-
ir aldri í þrjár deildir. Alls starfa 19
manns á Sólvöllum og þar af eru
fjórir leikskólakennarar. Eldhús
leikskólans sér um mat fyrir leik-
skólann en einnig mat fyrir grunn-
skóla Grundarfjarðar. Leikskóla-
stjórinn, Matthildur Soffía Guð-
mundsdóttir, segir einkunnar-
orð Sólvalla vera vinátta, virðing
og velvild. „Starf Sólvalla byggist
að miklu leyti á kenningum Johns
Dewey, en samkvæmt þeim felst
nám barna fyrst og fremst í því að
þau fái að upplifa og prófa hlutina
á eigin forsendum. Þannig læri þau
af reynslunni.“
Matthildur segir ennfremur að
lögð sé mikil áhersla á útiveru og
hreyfingu á Sólvöllum. „Nem-
endur leikskólans eiga ferlimöpp-
ur í leikskólanum þar sem ýmsum
upplýsingum er safnað saman um
skólagönguna bæði í ljósmyndum
og ritaðar. Unnið er með lífsleikn-
iverkefni sem þrír leikskólar á Ak-
ureyri þróuðu. Lífsleikniverkefni
þetta byggir á tólf dygðum en unn-
ið er með eitt í einu í um þrjá mán-
uði, sköpunargleðin er verkefni
haustsins og fléttast inn í starfið.“
Á hverju ári fer í gang samvinna
leikskólans og grunnskólans með
aðlögun elstu nemanda leikskólans
að grunnskólanum og 1. bekkur
heimsækir leikskólann, heimsókn-
ir á vinnustaði foreldra, heimsókn-
ir í Fellaskjól og ýmislegt fleira.
Leikskólinn í
Stykkishólmi
Nemendur Leikskólans í Stykk-
ishólmi verða 68 í vetur og þeir
yngstu eru eins árs. Skólanum
er skipt niður í þrjár deildir eftir
aldri barna og skólastarfið byrjaði
11. ágúst síðastliðinn. Starfsmenn
leikskólans eru 24 og þar af eru
sjö leikskólakennarar, þrír grunn-
skólakennarar og fimm með aðra
háskólamenntun. „Við erum vel
stödd með faglærða starfsmenn,“
segir Sigrún Þórsteinsdóttir leik-
skólastjóri. „Hér eru börn af 6
þjóðernum og fjölbreytileikinn í
barnahópnum er mikill sem gerir
starfið skemmtilegra. Starfsmanna-
hópurinn hefur farið í tvær náms-
og kynnisferðir til útlanda þar sem
við höfum kynnt okkur leikskóla-
starf í Skotlandi og Svíþjóð. Einn-
ig höfum við farið á stóra ráð-
stefnu í London þar sem var boð-
ið upp á fyrirlestra og kynningu á
ýmiskonar kennsluefni fyrir leik-
skólaaldurinn. Bæði kennarar skól-
ans og leiðbeinendur eru duglegir
að fara á námskeið og er yfirleitt
boðið upp á eitt til tvö námskeið
hér í leikskólanum á vetri. Vel er
hugað að skyndihjálp og fara all-
ir starfsmenn á skyndihjálparnám-
skeið annað hvert ár.“
Leikskóli Stykkishólms er Græn-
fánaskóli. „Við búum í mjög grænu
samfélagi og á það að sjást í öllu
okkar starfi. Sérstaða leikskólans
er sá arfur sem við byggjum á, en
skólinn var stofnaður af St. Frans-
iskussystrum. Nýtnin og nægju-
semin lifir áfram frá þeim og það
kemur inn í umhverfisstefnu okk-
ar. Að nýta allt sem við getum og
fara vel með það sem við eigum,“
segir Sigrún.
Leikskólinn í Stykkishólmi starf-
ar að vissu leyti eftir Reggio hug-
myndafræðinni án þess þó að kall-
ast Reggio leikskóli. „Við nýtum
og virðum þær aðferðir sem börn
hafa til að tjá sig á allan mögu-
legan hátt. Við nýtum allt nærum-
hverfi okkar vel og erum í góðum
og skemmtilegum samskiptum við
nágranna okkar, frístundabændur,
hestamenn og fleiri,“ segir Sigrún
að endingu.
bgk/ Ljósmyndir frá leikskólum á
Vesturlandi.
Smáfólkið á Sólvöllum í Grundarfirði.
Börn á elstu deildinni á leikskólanum í Stykkishólmi á öskudeginum í fyrra í heimagerðum búningum.
Skólasetning grunnskólanna
í Borgarbyggð
Grunnskóli Borgarfjarðar verður settur fimmtudaginn 21. ágúst
kl. 10:00 á Kleppjárnsreykjum
kl. 12:00 á Hvanneyri
kl. 14:00 á Varmalandi í Þinghamri
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 22. ágúst
Grunnskólinn í Borgarnesi verður settur í Borgarneskirkju
föstudaginn 22. ágúst
kl. 10:00 hjá 1. - 3. bekk
kl. 10.40 hjá 4. - 6. bekk
kl. 11.20 hjá 7. - 10. bekk
Að setningu lokinni fara foreldrar og nemendur með
umsjónakennurum yfir í skóla, fá afhentar
stundatöflur og nánari upplýsingar.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 25. ágúst SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna