Skessuhorn - 20.08.2014, Síða 33
33MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2014
Auglýsing um skipulag í Borgarbyggð – Stóru-Brákarey
Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgar-
byggðar samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt í sveitarstjórn
Borgarbyggðar 14. ágúst 2014. Breytingin felst í að landnotkun í Stóru-Brákarey verði breytt
samkvæmt uppdráttum og greinargerð dagsettri 8. ágúst 2014. Skipulagssvæðið tekur til
Stóru-Brákareyjar.
Tillagan mun liggja frammi hjá Skipulagsstofnun, á skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14,
Borgarbyggð, frá og með 18. ágúst til og með 28. september nk. Frestur til athugasemda er til
sama tíma. Tillagan verður einnig til sýnis á heimasíðu Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir
við aðalskipulagstillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og byggingar-
fulltrúa í ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarbyggð. Þeir sem ekki gera
athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.
Lulu Munk Andersen,
skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
ÚTBOÐÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
81x120 mm
TIL SÖLU
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Tilboð óskast í ríkisjörðina
Litla Kamb í Snæfellsbæ
15684 – Litli Kambur í Snæfellsbæ
Um er að ræða ríkisjörðina Litla Kamb í Snæfellsbæ í hinni fögru sveit
Breiðuvík.
Jörðin er talin vera u.þ.b. 190 ha að stærð, þar af u.þ.b. 80 ha neðan
við þjóðveginn. Gömul tún eru skráð 16,2 ha.
Fasteignir jarðarinnar eru gamlar, byggðar á árunum 1940 – 1979.
Um er að ræða íbúðarhús sem þarfnast endurbóta og fimm nýtanleg
útihús.
Ástand tveggja útihúsa telst þokkalegt og ástand þriggja útihúsa
lélegt. Auk þess er eitt ónýtt útihús.
Samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands – fasteignaskrá er
brunabótamat samtals kr. 56.990.000,- og fasteignamat fasteigna er
kr. 16.287.000,-
Réttur til efnistöku umfram búsþarfir, sem og öll vatns- og jarðhitaréttindi
eru undanskilin við söluna, sbr. 40. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Jörðin er til sýnis í samráði við Hjört Sigurðsson, Stóra Kambi, í
síma 894 7028 virka daga milli kl. 16 og 18.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c,
105 Reykjavík í síma 530 1400.
Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt reglum um frágang
og útfyllingu á tilboðseyðublaði.
Sjá einnig nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa rikiskaup.is
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
fyrir kl. 10.00 þann 9. september 2014 þar sem þau verða
opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska.
ÚTBOÐÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
81x120 mm
TIL SÖLU
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Tilboð óskast í ríkisjörðina
Iðunnarstaði í Borgarbyggð, Lundarreykjadal
15685 – Iðunnarstaðir í Lundarreykjadal
Um er að ræða ríkisjörðina Iðunnarstaði í Borgarbyggð, Lundarreykjadal.
Jörðin er talin vera 980 ha. að stærð skv. Þjóðskrá Íslands - fasteignaskrá.
Ekki er annað vitað en að landamerki séu ágreiningslaus. Gömul tún
eru skráð 8,4 ha. Þá fylgir með í sölunni 70,9 ærgilda greiðslumark.
Fasteignir jarðarinnar eru gamlar og illa farnar og íbúðarhúsið ónýtt.
Jörðin á aðild að Veiðifélagi Grímsár og Tunguár. Fasteignamat
veiðiréttinda er kr. 9.830.000,-.
Samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands – fasteignaskrá er
brunabótamat samtals kr. 29.474.000,- og fasteignamat fasteigna er
kr. 9.338.000,-.
Réttur til efnistöku umfram búsþarfir, sem og öll vatns- og jarðhitaréttindi
eru undanskilin við söluna, sbr. 40. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c,
105 Reykjavík í síma 530 1400.
Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt reglum um frágang
og útfyllingu á tilboðseyðublaði.
Sjá einnig nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa rikiskaup.is
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
fyrir kl. 10.00 þann 9. september 2014 þar sem þau verða opnuð í
viðurvist bjóðenda er þess óska.
Í síðasta Skessuhorni var mynd af
tvílitum stara í hópi aldökkra félaga
sinna í Borgarnesi. Tilgátur voru
um að þetta væri ungfugl síðan í
vor en þeir eru oft nokkuð lengi
ljósari en fullorðnir fuglar. Þessi
var tvílitur drapplitur og svart-
ur, eða frekar líkur skjóttum hesti
á lit. Eftir að myndin birtist hafði
Róbert A. Stefánsson hjá Náttúru-
stofu Vesturlands í Stykkishólmi
samband og sagði að sér þætti lík-
legra að þetta væri önnur starateg-
und, sem kallast rósastari. Hann
sagði að fyrr í sumar hefði Gunn-
ar Sigurjónsson fuglaáhugamaður
tilkynnt um mögulegan rósastara í
Borgarnesi en Gunnar hefði aðeins
séð hann augnablik og ekki tekist
að staðfesta greiningu. Róbert þyk-
ir myndin í Skessuhorni styðja til-
kynningu Gunnars.
Á vefnum fuglar.is, sem er á veg-
um fuglaáhugamanna á Hornafirði,
segir að Rósastarinn verpi frá A-
Evrópu austur um Asíu en sé mikill
farfugl og sjáist öðru hverju í tals-
verðum fjölda í V-Evrópu og stöku
sinnum hér á landi (31 skráning
hafi borist til ársins 2009). Flest-
ir rósastarar hafi vetursetu á Ind-
landi.
hb
Lionsklúbbur Stykkishólms er nú, í
samstarfi við Lionsklúbbinn Hörpu
og Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
að fara af stað með afar athyglisvert
forvarnarverkefni í Stykkishólmi og
Helgafellssveit. Felst það í að bjóða
55 ára einstaklingum á starfssvæði
klúbbsins í ókeypis ristilspegl-
un. „Á undanförnum árum hefur
Lionsklúbbur Stykkishólms kom-
ið að forvarnarstarfi í heilbrigð-
ismálum. Klúbbfélagar hafa í all-
mörg ár haft áhuga á að standa fyr-
ir hvatningarátaki varðandi skim-
un fyrir ristilkrabbameini, sem er
lúmskur vágestur og gerir sjaldan
boð á undan sér. Á Íslandi grein-
ast að meðaltali 112 einstaklingar
á hverju ári með slíkt krabbamein.
Miklu skiptir varðandi framtíðar-
horfur sjúklinga að greina þetta
krabbamein á frumstigi. Með þessu
átaki ætlum við Lionsfélagar því að
bjóða öllum einstaklingum búsett-
um í Stykkishólmi og Helgafells-
sveit, sem verða 55 ára á þessu ári, í
ókeypis ristilspeglun,“ segir Gunn-
laugur Árnason Lionsfélagi í sam-
tali við Skessuhorn. Hann og Ingi
Berg Ingason eru í forsvari fyrir
verkefnið fyrir hönd Lionsklúbbs
Stykkishólms.
„Þannig mun fólk sem fætt er árið
1959 verða skoðað á þessu ári, fólk
fætt 1960 á næsta ári og svo koll af
kolli í fimm ár. Ætlunin er að þetta
verkefni standi í fimm ár og verði
þá endurmetið,“ segja þeir Gunn-
laugur og Ingi Berg. Allur kostnað-
ur við rannsóknina og undirbúning
ristilspeglunar á Heilbrigðisstofn-
un Vesturlands á Akranesi verð-
ur fólki að kostnaðarlausu, að frá-
töldum ferðakostnaði á Akranes.
Lionsklúbbarnir sendu einstakling-
um í árgangi 1959 bréf fyrr í sum-
ar. „Gott væri að þeir einstakling-
ar sem fengu boðsbréf frá okkur í
sumar láti vita hvort áhugi sé fyrir
boðinu fyrir 31. ágúst nk, því tím-
inn líður hratt.“ Fólk þarf að láta
vita um áhuga fyrir skoðun með að
hringa í síma 432-1200 (HVE) og
gefa upp nafn, kennitölu og síma-
númer. Síðan verður hringt í við-
komandi, þar sem gefnar verða
verða nánari upplýsingar um fram-
kvæmd rannsóknarinnar og áætlaða
dagsetningu.
Ristilkrabbamein er algengur vá-
gestur á Íslandi. Tilfellið er að ein-
staklingurinn gengur lengi með
sjkdóminn (allt að 10 ár) áður en
hann fer á hættulegt stig. Mikl-
ir möguleikar eru að greina ristil-
krabba á frumstigi með ristilspegl-
un og grípa strax inn í og lækna. 55
ára aldurinn er af læknum talinn
heppilegur til speglunar, því þá eru
einkenni oftast nær búin að gera
vart við sig. „Klúbbarnir vilja með
þessu átaki leggja lið og gera gagn
í samfélaginu. Niðurstaða starfs-
hóps á vegum Landlæknis skilaði
skýrslu árið 2002 og mælti þá með
að skimun yrði hafin hér á landi
fyrir krabbameini í ristli og enda-
þarmi. Af einhverjum ástæðum hef-
ur sú skimun aldrei hafist,“ segir í
kynningu á verkefninu.
mm
Stefnt er að því í næsta mánuði að nýtt
kaffihús verði opnað við Akratorg, að
Kirkjubraut 2 á Akranesi, þar sem
verslunin Litla búðin var áður til húsa.
Það er fyrirtækið Skagaferðir ehf. sem
er í eigu Elinbergs Sveinssonar, Haf-
dísar Bergsdóttur og Hildar Björns-
dóttur, sem hyggst opna kaffihúsið.
Þau reka einnig gistiheimili að Kirkju-
hvoli, líkt og Skessuhorn hefur greint
frá. „Við getum alveg staðfest það að
við ætlum að opna þarna kaffihús, það
þarf allavega eitthvað mikið að ger-
ast til að það breytist. Núna erum við
að bíða eftir framkvæmdaleyfi og það
lítur allt vel út með það. Við stefnum
að því að opna í septembermánuði ef
allt gengur að óskum,“ segir Hafdís í
samtali við Skessuhorn.
Hún segir hópinn upphaflega hafa
ætlað að opna kaffihús í Kirkjuhvoli,
samhliða gistiheimilinu, en aðstæð-
ur í húsinu hafi ekki boðið upp á það.
„Við fengum því þetta húsnæði leigt
en verslunin Nína verður áfram með
markaðshorn Kirkjubrautarmegin í
húsinu,“ útskýrir Hafdís. Nú er unnið
hörðum höndum að því að setja upp
vegg til að skipta húsnæðinu ásamt
því að gera klárt fyrir kaffihúsið. Haf-
dís segir að ekki verði lögð áhersla á
kvöld opnun heldur verði opið til kl.
18 alla daga vikunnar. „Við verðum
svo vonandi með eina kvöldopnun í
viku í takt við verslanir. Boðið verður
upp á kökur og bakkelsi á kaffihúsinu,
ásamt því að hægt verður að fá léttan
hádegisverð. En fyrst og fremst verð-
ur þetta kaffihús í eiginlegri merkingu
þar sem áherslan verður lögð á gott
kaffi,“ segir Hafdís að lokum. grþ
Árgangi 1959 boðin ókeypis ristilspeglun
Mynd af rósastara af vefnum fuglar.is.
Ljósm. Hrafn Svavarsson.
Er skjótti starinn kannski rósastari?
Starinn sem sást í Borgarnesi. Ljósm. hb
Opna kaffihús við Akratorg