Læknablaðið - 15.07.2002, Side 58
Sertral
(sertralín)
Öruggt og árangursríkt lyf
við þunglyndi,
þráhyggju- og áráttusýki
Hver tafla inniheldur: Sertralín hýdróklón'ð, samsvarandi sertralín 50 mg. Töflurnar innihalda laktósu. Ábendingar: Þunglyndi. Þráhyggju- og áráttusýki
(obsessive-compulsive disorder). Felmtursköst (ofsahræðsla (panlc disorder)), með eða án víðáttufælni (agoraphobia). Skammtar og lyfjagjöf:
Skammtastærðir handa fullorðnum: Við þunglyndi og þráhyggju- og áráttusýki: Upphafsskammtur er 50 mg á dag, tekið í einum skammti. Ef þörf
krefur, má auka þennan skammt um 50 mg á dag, í þrepum á nokkrum vikum, í allt að 200 mg á dag. Sé þörf á langb'manotkun lyfsins er venjulegur
viðhaldsskammtur 50 mg á dag. Við felmtursköstum (ofsahræflslu) með eða án vífláttufælni: Upphafsskammtur er 25 mg á dag. Skammtur er aukinn
í 50 mg á dag eftir eina viku. Ef þörf krefur má auka þennan skammt um 50 mg á dag, í þrepum á nokkrum vikum. Hámarksskammtur sem mælt
er með er 200 mg á dag. Skammtastærðir handa öldruðum eru þær sömu og að framan er gebð. Árangur meðferðar getur komið fram innan 7
daga, en oftast þarf 2-4 vikna meðferð áður en full verkun næst. Sertralín er að mestu leyti umbrotið í lifur. Minni eða færrl skammta skal gefa af
lyfinu ef sjúklingur er með minnkaða lifrarstarfsemi. Lyfið er tekið elnu sinni á dag, annað hvort að morgnl eða að kvöldi. Töflurnar má taka ýmist
með eða án matar. Skammtastærðir handa hömum: Lyfið er ekki ætlað bömum. Frábendingar: Samb'mis notkun MAO-hemils. Sérstök vamaflarorfl
og varúöarreglur vifl notkun: Ekki skal gefa sjúklingum sertralín, sem notað hafa MAO-hemlandi lyf, fyrr en 2 vikum eftir að slíkri meðferð hefur
verið hætL Á sama hátt skal ekki gefa MAO-hemlandi lyf fyrr en 2 vikum efbr aö sertralín meðferð hefur verið hætt Eins og hjá öðrum þungtyndistyfjum
hefur verið skráð örvun á maníu og hypómaníu hjá nokkrum sjúklingum. Flogaveiki getur hugsanlega versnað við notkun lyfsins og því skal gæta
varúðar við gjöf sertalíns hjá sjúklingum með flogaveiki. Meðferð með sertralíni skal hætt ef sjúklingar fá krampaköst. Sertralín er að mestu leyti
umbrotið í lifur. Hjá sjúklingum með takmarkaða lifrarstarfsemi minnkar útskilnaðarhraði lyfsins, minni eða færri skammta skal þá gefa af lyfinu.
Vegna aukinnar hættu á sjálfsvígsblraunum samfara þunglyndi skal hafa náið efbrlit með sjúklingum í upphafi meðferðar, Gæta ber varúðar við notkun
lyfsins hjá sjúklingum, sem eru með sykursýkl og meðhöndlaðir með Insúlíni eða sykursýkilyfjum af súlfónýlúreaflokki. Milliverkanir vifl önnur lyf og
aflrar milliverkanir: Samtímis gjöf MAO-hemlandi lyfja getur valdið skyndilegum háþrýstingi og oförvunarástandi. Gæta ber varúðar við samb'mis
gjöf sertralíns og annarra lyfja sem verka á miðtaugkerfið. Neysla áfengis er ekkl ráðlögð meðan á sertralín meðferð stendur. Samtímls notkun
litíums getur aukið tíðni aukaverkana sertralíns, einkum ógleði, skjálfta og kvíða. Þar til frekari upplýsingar liggja fyrir ætb ekki að nota serótónín
virk lyf eins og tryptófan, súmatriptan eða fenflúramín samtímis sertralíni, vegna hugsanlegrar hættu á milliverkunum. Þar sem sertralín er bundið
plasmapróteinum, skal hafa í huga möguleikann á að sertralín milliverkl vlð önnur próteinbundin lyf (t.d. warfarín og digltoxín). Samb'mis gjöf sertralíns
og címetidíns getur valdið aukningu f blóðstyrk sertralíns. Meflganga og brjóstagjöf: Dýratilraunir benda ekki til að lyfið hafi áhrif á frjósemi eða
hafi fósturskemmandi áhrif, en mjög háir skammtar hafa leitt til aukinnar dánartíðni nýfæddra dýra. Engar blraunir hafa verið gerðar á barnshafandi
konum. Ber því að forðast notkun lyfsins á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri bl. Engar upplýsingar liggja fyrir um hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk,
þess vegna ættu konur með barn á brjósb ekki að nota lyfið. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Lyfið getur haft áhrif á viðbragðsflýti og ber
að hafa það í huga við akstur og stjórnun véla. Sjúklingar sem aka bifreiðum eða stjóma öðrum vélknúnum tækjum skal ekki gefið sertralín samtímis
bensódíazepínafbrigðum eða öðrum róandi lyfjum. Aukaverkanir: Algengasta aukaverkun lyfsins er ógleði, u.þ.b. 20%. Algengar (>1%): Almennar:
Aukin svitamyndun, svimi, syfja, höfuðverkur, óróleiki, þyngdartap, lystarleysi (anorexia). Taugakerfi: Vöðvaskjálfti, truflun á sáðláti. Meltingarfæri:
Úgleði, munnþurrkur, niðurgangur, meltingaróþægindi. Sjaldgæfar (0,1-1%); Geðrænar: Kvíði. Mjög sjaldgæfar (< 0,1): Efnaskipti: Lækkun natríums
í sermi (hyponatremi). Taugakerfi: Rugl, kynlífsóþægindi hjá konum, náladofi, dofi, ofsjónir, árásarhneigð, æsingur, óróleiki. Olskömmtun: Einkenni
eins og lýst er varðandi aukaverkanir. Meflhöndlun: Einkennameðferð. lyfhrif: Sertralín hindrar upptöku serótóníns (5-HT) á sértækan hátt í taugum,
sem leiðir til aukningar á áhrlfum 5-HT. Lyfið hefur aðeins mjög væg áhrif á endurupptöku í taugar af noradrenalíni og dópamíni. í lækningalegum
skömmtum hemur sertralín endurupptöku serótóníns í blóðflögum. Sertralín hefur engin örvandi, róandi eða andkólínvirk áhrif og hefur ekki eitrunaráhrif
á hjarta í dýratilraunum. í rannsóknum á sjálfboðaliðum hafði sertralín hvorki róandi áhrif né áhrif á hughreyfilegt atferli. í samræml við hina sértæku
hömlun á 5-HT upptöku eykur sertralín ekki katekólamínvirkni. Sertralín hefur ekki sækni í múskarín (kólínvirka), serótónínvirka, dópamínvirka,
adrenvirka, histamínvirka, GABA eða benzódíazepfn viðtaka. Ólikt þrihringlaga geðdeyfðarlyfjum, hefur þyngdaraukning ekki sést eftir meðferð með
lyfinu. Ekki hefur komið í Ijós, að sjúklingar verði líkamlega aða andlega háðir lyfinu. Lyfjahvöri: Sertralín hefur skammtaháð iyfjahvörf á skammtabilinu
50 - 200 mg á dag. Eftir 50 - 200 mg á dag í 14 daga sést hámarksblóðþéttni hjá mönnum 4,5 - 8,4 klst efbr gjöf. Stöðugri blóðþéttni er náð
eftir daglega gjöf sertralíns í eina viku. Lyfið er nánast allt próteinbundið (um 98%). Rannsóknir á dýrum hafa sýnt að lyfið hefur mjög stórt
dreifingarrúmmál. Sertralín umbrotnar mikið f fyrstu umferð f lifur. Sertralín og aðalumbrotsefni þess,
N-desmetýlsertralín (sem virðist að mestu óvirkt) umbrotna að mestu leyti í likamanum og umbrotsefnin skiljast út með saur og þvagi. Aðeins lítið
magn af sertralíni skilst óbreytt út með þvagi. Helmingunartími í útskllnaðarfasa er u.þ.b. 26 klst.. Lyfjahvörf lyfsins eru elns hjá eldri og yngri
sjúklingum. Inntaka sertralíns með mat hefur ekki marktæk áhrif á aðgengi lyfsins.
Útlit: Hvitar, ílangar. kúptar, 10 x 5 mm, með deilistriki.
Pakkningar og verð (Lyfjaverðskrá 1. júní 2002)
Sertral 50 mg, 28 stk 3.743 kr
Sertral 50 mg, 98 stk. 11.083 kr
o
Omega Farma
www.omega.is