Fréttatíminn - 05.09.2014, Blaðsíða 2
Oslóarbúar senda áfram tré
N ú hefur verið sett á legg söfnunarsíða fyrir geiturnar hennar Jóhönnu Berg-mann á Háafelli á netinu þar sem
biðlað er til fólks um að bjarga geitunum úr
Game of Thrones og þar með íslenska geita-
stofninum. Game of Thrones er vinsælasta
sjónvarpssería sjónvarpsrisans HBO frá upp-
hafi, með 20 milljón áhorfendur um heim all-
an og má því gera ráð fyrir að stór hluti þeirra
rúmlega átta miljóna króna sem nú þegar hafa
safnast sé kominn frá aðdáendum seríunnar.
Margt smátt gerir eitt stórt
„Söfnunarmarkmiðið á síðunni er 10,5 millj-
ónir króna því það er eiginlega lágmarkið til
að geta farið og samið við bankann. En svo
veit ég auðvitað ekkert hvernig hann mun
bregðast við,“ segir Jóhanna en það var vin-
kona hennar, blaðamaður frá New York, sem
setti söfnunarsíðuna í gang. „Hún hefur oft
komið til Íslands og heillaðist af geitaræktinni
okkar hér á Háafelli. Vinir hennar hönnuðu
lógó, barmmerki, bolla og töskur sem hægt
er að kaupa á síðunni og setja þannig pening
í söfnunina. Þau bara sjá um þetta allt saman
og það eina sem ég þarf að gera er að redda
sápum úr geitamjólk og að taka á móti fólki
sem getur komið í heimsókn. Kraftur inter-
netsins er alveg ótrúlegur og það hefur svo
sannarlega sýnt sig að margt smátt gerir eitt
stórt.“
Barátta fyrir framtíð stofnsins
Nú hafa rúmlega átta milljónir safnast til
styrktar geitunum og tæplega 80.000 manns
skrifað undir viljayfirlýsingu til íslenskra
stjórnvalda um að bjarga stofninum, sem er sá
elsti í heimi. Jóhanna er mjög hrærð yfir við-
brögðum alls þess fólks sem hefur lagt henni
lið, sem kemur alls staðar að úr heiminum.
„Svo var ég á matarmarkaðinum í Hörpu um
síðustu helgi og þar kom fólk upp að mér til
að hvetja mig áfram og bara faðma mig og
segja mér að gefast ekki upp. Fólki virðist alls
ekki standa á sama um geiturnar. Auðvitað
snýst þessi barátta ekki bara um mig, heldur
um eitthvað miklu meira. Við erum að berjast
fyrir aðra geitaeigendur líka og alla þá sem
vilja stunda geitarækt í framtíðinni,“ segir
Jóhanna.
Söfnunarsíða: https://www.indiegogo.
com/projects/save-the-icelandic-goat-from-
extinction
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
LögregLumáL Kæra var Lögð fram vegNa birtiNgar KyNfæramyNda í KirKju
Lögreglan rannsakar myndbirtingarnar
LaNdbúNaður átta miLLjóNir hafa safNast fyrir ísLeNsKu geitiNa
Game of Thrones
aðdáendur til bjargar
Geiturnar hennar Jóhönnu á Háafelli hlutu ekki góð örlög í Game of Thrones sjónvarpsseríunni.
Þar hlupu þær undan eldspúandi dreka sem náði svo að klófesta eina þeirra á flugi. Nú lítur út
fyrir að hinn sami eldspúandi dreki sé á ný orðin örlagavaldur í lífi geitanna hennar Jóhönnu og
þar með úrslitavaldur í framtíð íslenska geitastofnsins.
Fréttatíminn sagði síðastliðinn vetur sögu eina geitaræktanda landsins, Jóhönnu Bergmann á Háafelli. Þá leit út fyrir að allur
hennar geitastofn færi í slátrun nú í september sökum fjárhagserfiðleika búsins. Jóhanna er bjartsýn á að vandi fjölskyldunnar
og þar með íslenska geitastofnsins muni leysast, þrátt fyrir að ráðamenn landsins og bankinn vilji ekki semja. Aðdáendur sjón-
varpsþáttanna Game of Thrones virðast ætla að koma geitunum til bjargar. Samsett mynd/Hari
„Það ríkir almenn ánægja með fermingarfræðsluna,“
segir Guðbjartur Ólason, skólastjóri Vallaskóla á Selfossi
og faðir verðandi fermingarbarns. Fréttatíminn greindi
frá því í síðustu viku að æskulýðspresturinn, Ninna Sif
Svavarsdóttir, hefði fengið kynfræðinginn Sigríði Dögg
Arnardóttur til að ræða við verðandi fermingarbörn í
Selfosskirkju og að hluti af fyrirlestri hennar hefði falist
í því að sýna myndir af kynfærum til að endurspegla fjöl-
breytileika þeirra. Daginn eftir greindi dv.is frá því að
presturinn hefði verið kærður fyrir brot á barnaverndar-
lögum og almennum hegningarlögum er varða blygðun-
arsemi.
Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
á Selfossi, staðfestir að málið sé til skoðunar hjá lög-
reglunni og vonast hann eftir að niðurstaða fáist í málið
sem fyrst. Eftir því sem Fréttatíminn kemst næst hefur
sá sem lagði fram kæruna engin tengsl við fermingar-
börnin.
Árni Svanur Daníelsson, prestur og verkefnisstjóri hjá
Biskupsstofu, segist ekki hafa heyrt af öðru en ánægju
frá þeim kirkjum sem hafa fengið Sigríði Dögg til að
halda erindi. „Það fyrsta sem þarf að hafa í huga í þessu
sambandi er að fermingarfræðslan er alltaf skipulögð
og framkvæmd í kirkjunum á hverjum stað,“ segir hann.
Þjóðkirkjan á landsvísu leggur til fræðslustefnu og
námsskrá. „Innan þeirra rúmast lífsleiknifræðsla sem
tekur meðal annars til samskipta kynjanna.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Lögreglan á Sel-
fossi hefur á borði
sínu kæru vegna
myndbirtinganna
í Selfosskirkju
og vonast til að
niðurstaða fáist í
málið sem fyrst.
... þar sem
biðlað er
til fólks
um að
bjarga
geitunum
úr Game
of Thrones
og þar
með ís-
lenska
geitastofn-
inum.
Setur Hróa hött
upp á Broadway
Gísli Örn Garðars-
son, leikari og
leikstjóri, hefur
verið ráðinn til að
setja upp Hróa hött
á Broadway í New
York. Verkið verður
frumsýnt í mars á
næsta ári. Þetta
kom fram í Kastljósi í vikunni.
Jóhannes í dómsmálin
og Lilja í forsætið
Ákveðið hefur verið að Jóhannes Þór
Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráð-
herra, muni fyrst um sinn jafnframt gegna
embætti aðstoðarmanns dómsmálaráð-
herra og hafa aðstöðu í innanríkisráðu-
neytinu, að því er fram kemur í tilkynningu
forsætisráðuneytisins. Þar segir enn
fremur að Lilja D. Alfreðsdóttir, aðstoðar-
framkvæmdastjóri á skrifstofu bankastjóra
og alþjóðasamskipta í Seðlabanka Íslands,
hafi verið ráðin tímabundið sem verkefnis-
stjóri í forsætisráðuneytinu. Lilja kemur til
starfa á grundvelli tímabundins vista-
skiptasamnings við Seðlabanka Íslands
og verður í leyfi frá bankanum á meðan
samningurinn varir. - jh
Hæsta verðið í Víði
Verðlags eft ir lit ASÍ gerði verðkönn un
á mat vöru í lág vöru verðsversl un um og
stór mörkuðum á mánu dag inn. Hæsta
verðið var oft ast að finna í versl un Víðis
Garðatorgi og lægsta verðið var oft ast að
finna í versl un Bón us Ný býla vegi. Allt að
132 prósent verðmunur var á milli versl ana.
Breytingar á Frétta-
tímanum
Sigríður Dögg Auðuns-
dóttir skiptir um starf
hjá Morgundegi ehf., út-
gáfufélagi Fréttatímans.
Hún lætur af störfum
sem ritstjóri blaðsins
og tekur í staðinn að
sér starf þróunarstjóra
Morgundags ehf. Sig-
ríður Dögg hefur unnið
að vefverkefninu ispiral.ly í sumar í sam-
starfi við Startup Reykjavík. Verkefnið hefur
gengið vel og mun Sigríður Dögg áfram
vinna því brautargengi ásamt því að vinna
að nýjum og spennandi verkefnum sem
fram undan eru hjá Morgundegi ehf. Eftir
breytingarnar verður Jónas Haraldsson einn
ritstjóri blaðsins. Fréttatíminn þakkar Sigríði
Dögg frábær störf sem ritstjóri um leið og
hún er boðin velkomin til nýrra starfa.
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir,
þróunarstjóri
Morgundags ehf.
Oslóarborg mun áfram
færa Reykjavíkurborg
jólatré að gjöf. Þetta er
staðfest í bréfi borgar-
stjórans í Osló, Fabian
Stang, til kollega síns
í Reykjavík, Dags B.
Eggertssonar. Eimskip
mun áfram flytja tréð
hingað til lands án þess
að rukka fyrir. Talsverð
umræða spratt upp
síðasta vetur þegar til-
kynnt var að Oslóarborg
hefði ákveðið að hætta að
gefa Reykjavíkurborg tréð
en sú ákvörðun hefur nú
verið dregin til baka.
2 fréttir Helgin 5.-7. september 2014