Fréttatíminn - 05.09.2014, Blaðsíða 4
Demantshringur 0.70ct
Verð 680.000.-
siggaogtimo.is
Sveinn Andri krefur
DV um tíu milljónir
10
milljónir
Krafa SveinS andra
SveinSonará hendur dv
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
StrekkingS VinDur V-lAnDS og þAr
SkýjAð, en heiðríkt eyStrA.
höfuðborgArSVæðið: SKýjað með
Köflum, en þurrt.
hlýtt. Smá VætA V- og nV-lAnDS,
en bjArt nA- og A-lAnDS.
höfuðborgArSVæðið: þurrt og Sól
framan af, en Smá væta SíðdegiS.
rigning og Strekkingur V- og nV-til,
en áfrAm þurrt A- og nA-lAnDS.
höfuðborgArSVæðið: þungbúið og
rigning með Köflum.
Sannkallaður sumarauki
fyrir austan
um helgina er spáð eindregnum Sv-vindi,
milt loft ættað úr suðri beinist yfir landið
þar sem háþrýstingur suður undan ræður
ríkjum. þá verður gjarnan allhvasst á vest-
fjörðum og vestantil á norður-
landi, ekki úrkoma, nema í litlum
mæli vestanlands. hins vegar
verður einkar hlýtt eystra
og suðaustanlands og ekki
loku fyrir það skotið að hiti
komist í 20°C á laugardag. á
sunnudag er spáð rigningu
um landið vestanvert.
11
11 14
16
11
11
10 15 18
11
10
10 13 16
11
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
u m þriðjungi alls matar sem framleiddur er í heiminum á ári hverju, eða um 1.3
milljarði tonna, er hent í ruslið.
Þetta á ekki aðeins við um hinn
stóra heim heldur líka Ísland. Á
laugardaginn verður blásið til
stórrar hátíðar í Hörpu þar sem
fjallað verður um hinar ýmsu
hliðar matarsóunar. Hátíðinni er
ætlað að vekja fólk til umhugs-
unar og ekki síst vekja athygli á
því að á meðan við hendum heilu
tonnunum af mat hér á Íslandi er
til hópur fólks sem á ekki til hnífs
og skeiðar.
Bjarni Geir Alfreðsson þekkir
vel til þess vanda en hann hefur
séð um kaffistofu Samhjálpar í
Borgartúni síðastliðið ár, þar sem
tekið er á móti fólki í mat frá níu
til þrjú alla daga vikunnar, allan
ársins hring. „Við fáum um tvö
hundruð heimsóknir hingað á dag.
Af þessum tvö hundruð manns eru
um hundrað sem borða heitan mat
í hádeginu en hinir eru í kaffi og
samlokum og því sem liggur hér
á hlaðborðinu hjá okkur,“ segir
Bjarni.
Allur matur sem Bjarni eldar
og sá sem liggur á hlaðborðinu í
Samhjálp eru matargjafir frá fyrir-
tækjum og umfram matur frá ein-
staklingum.
dóra stýrir upplýsinga-
skrifstofu eSb
dóra magnúsdóttir
hefur tekið stöðu
framkvæmdastjóra
evrópustofu, upplýs-
ingaskrifstofu eSb
á íslandi. hún var
áður almannatengill
og viðburðastjóri
skrifstofunnar. birna
þórarinsdóttir var áður framkvæmdastjóri
evrópustofunnar. Stofan lokaði í ágúst í
sumar og fór sá kvittur á kreik að stofan
heyrði sögunni til hér á landi. dóra segir
það fjarri sanni.
Simmi og Jói yfirgefa
Stórveldið
Sigmar vilhjálmsson og jóhannes ás-
björnsson, Simmi og jói, eru ekki lengi
eigendur að Stórveldinu. þeir áttu samtals
tæplega 40% eignarhlut í félaginu. „við
vorum sammála um að þetta væri ágætur
tímapunktur til að færa félagið aftur í fyrra
horf,“ segir hugi halldórsson, einn eigenda
og stofnandi Stórveldisins. hugi hefur
keypt eignarhlut Simma og jóa. Kaup-
verðið er trúnaðarmál.
brimborg selur
bílaleigubíla
fyrstu bílaleigubílarnir frá dollar thrifty
eru komnir í sölu hjá brimborg. bílarnir eru
af árgerðum 2014, 2013 og 2012 og eru því
flestir í ábyrgð.
10 sóttu um stöðu
þjóðleikhússtjóra
umsóknarfrestur um embætti þjóðleik-
hússtjóra rann út 1. september og bárust
mennta- og menningarmálaráðuneyti
tíu umsóknir, frá þremur konum og sjö
körlum. Skipað verður í stöðuna til fimm
ára frá 1. janúar. umsækjendur eru: ari
matthíasson, halldór einarsson laxness,
hávar Sigurjónsson, hilmar jónsson,
marta nordal, melkorka telka ólafsdóttir,
ragnheiður Skúladóttir, reynir freyr
reynisson, rúnar guðbrandsson og trausti
ólafsson.
vikan sem var
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður hefur krafið DV,
reyni traustason, ritstjóra blaðsins og viktoríu
hermannsdóttur blaðamann um 10 milljónir króna
vegna umfjöllunar um sig í helgarblaði dv í byrjun
ágúst. Telur Sveinn Andri að þar hafi verið vegið með
alvarlegum hætti að friðhelgi einkalífs hans.
matarsóun Þriðjungi alls matar er hent
Eldar úr umfram mat
Í kaffistofu Samhjálpar koma um 200 manns í mat á dag. Bjarni Geir Alfreðsson, kokkur í
kaffistofunni, eldar þar hvern einasta dag, allan ársins hring fyrir þá sem ekki eiga til hnífs og
skeiðar. Allt hráefnið sem Bjarni eldar úr eru matargjafir frá fyrirtækjum og umfram matur frá
einstaklingum. bjarni segist taka við næstum öllum umfram mat því hann og hans starfsmenn
geti nýtt nánast hvað sem er.
bjarni geir Alfreðsson, eða bjarni Snæðingur eins og hann er alltaf kallaður, eldar úr matargjöfum og umfram mat frá ein-
staklingum í kaffistofu Samhjálpar í borgartúni. hann ætlaði að vera í stutta stund en ílengdist, því þar er svo gott að vera fyrir
hjartað.Ljósmynd/Hari
„Við erum líka með gjafaborð
hérna frammi þar sem við setjum
brauð og annað sem við fáum
gefins úr bakaríunum og fólk
má taka með sér heim. Það eru
mikið af einstaklingum sem gefa
mat hingað, sérstaklega er það
áberandi fyrir hátíðar, en það er
meira og minna alla vikuna sem
við erum að fá eitthvað. Fólk sem
er að hreinsa úr frystikistunum,
fólk sem á mikinn rabbarbara
eða sultu eða til dæmis fólk sem
er að fara í frí. Svo kemur hingað
oft umfram matur úr veislum og
afmælum. Það má koma með allt
hingað í kaffistofuna, nánast hvað
sem er. Hversu lítið sem það er
eða stórt þá eigum við eftir að geta
nýtt það,“ segir Bjarni sem nýtur
aðstoðar sjálfboðaliða og fanga
í eldhúsinu. Bjarni er búinn að
halda utan um kaffistofuna í rúmt
ár en ætlaði í upphafi að koma inn
í þrjá mánuði. „Ég kom hérna inn
bara til að laga til en ílengdist. Mér
þykir svo gott að vera hér. Þetta er
gott fyrir hjartað.“
Áhugasömum um málefnið
er bent á hátíð um matarsóun í
Hörpu, á morgun, laugardaginn 6.
september.
halla harðardóttir
halla@frettatiminn.is
fyrirtæki sem gefa
mat til Samhjálpar
eru meðal annars
heitt og kalt, aðföng, Ban-
anar ehf., Björnsbakarí, Bónus,
danól, hagkaup kringlunni,
h.s. kleinur, Íslensk ameríska,
kaffi kosý, sölufélag garðyrkju-
manna, Ora, vr, ölgerðin og
fleiri.
Stofnanir og samtök
sem taka við mat
Fjölskylduhjálp Íslands,
reykjavík og reykjanesbæ: Mat-
væli í umbúðum.
hjálpræðisherinn: Þurrmatur,
frystivara og umfram matur út veislum.
rauði krossinn: Matur í umbúðum,
frystivara, þurrmatur og umfram matur
úr veislum.
samhjálp: Frystivara, matur í
umbúðum og umfram matur.
laut, akureyri: Þurrmatur, frysti-
vara og allt sem nýtist til eldamennsku.
4 fréttir helgin 5.-7. september 2014