Fréttatíminn - 05.09.2014, Blaðsíða 33
27 fyrirlestrar eru í boði og glæsilegt lokahóf. Kynntu þér
dagskrána á advania.is og finndu þá fyrirlesara sem þig langar
mest að hlusta á. Þrjár meginlínur eru í boði:
Dagskrá og skráning í fullum gangi á
advania.is/haustradstefna
Ávinningur af tækni framtíðarinnar
Hvert förum við með tæknina? Hvert fer tæknin með okkur?
Tuugasta Haustráðstefna Advania er helguð framtíðinni. Þar fara
fyrirlesarar á heimsmælikvarða yfir hvert upplýsingatæknin stefnir
og hvaða áhrif sú stefna hefur á líf okkar og störf.
Stjórnun og reynsla
Nýsköpun
Öryggi og tækni
Þú smíðar þína dagskrá
Magnús Scheving
Frumkvöðull
Þorsteinn B. Friðriksson
Plain Vanilla
Jim Grubb
Cisco Systems
Theódór Gíslason
Syndis
Halla Helgadóir
Hönnunarmiðstöð
Íslands
Jesper Ritsmer Stormholt
Google
Sérfræðingar
spá í framtíðina
Haustráðstefna Advania í Hörpu 12. september 2014
Íris Dröfn Árnadó ir
Meistaranemi í
heilbrigðisverkfræði
Ætlar þú að missa af þessu? Hélt ekki.
tíma. Kennararnir í FG voru samt
frábærir og gamli skólastjórinn
minn, hann Þorsteinn, líka. Mér
var sagt að Garðaskóli hefði sent
bréf um mig þar sem mælst var til
þess að losna við mig sem fyrst úr
skólanum. Það var áður en ég hóf
nám þar. Skólastjórinn og kennar-
arnir reyndust mér samt vel. Þeir
hrósuðu mér þegar ég gerði vel
og reyndu allt sem þau gátu til að
gera mig að manni. Því miður hafði
ég ekki þroska til að hlusta. Anna
Sjöfn, kennari í FG, benti mér líka
á fyrst manna að ég væri örugglega
með námsörðugleika sem hægt
væri að greina og það kom á dag-
inn, 15 árum síðar, þegar ég loksins
fór og lét kanna það,“ segir Máni
sem lauk stúdentsprófi á afmælis-
daginn sinn 2012 og var sama dag
skipaður í skólanefnd skólans.
„Ég er mjög stoltur af því að hafa
útskrifast úr FG. Enda mætti ég
galvaskur með húfuna í útskriftina
lang elstur,“ segir Máni
„Ég ritstýrði skólablaðinu í FG
árin 95-96 ásamt Frosta og fleiri
snillingum og við vorum bara að
ögra. Við fjölluðum um skaðsemi
íþrótta, tókum viðtal við morðingja
frá Noregi sem brenndi kirkjur
og þar fram eftir götunum. Ég var
búinn að vera í nemendafélaginu og
í gríðarlegri óreglu, þrátt fyrir að
koma frá mjög reglusömu heimili,
ég vann í Lottóinu þegar mér var
úthlutað foreldrum við fæðingu.
En þetta endaði með því að mér
var vikið úr skólanum. Það var
mér mikið áfall. Maður getur alltaf
haft einhverjar hugmyndir um að
gera eitthvað í lífinu, en þeir gerast
ekki af sjálfu sér. Maður getur
setið inni í herbergi og reykt hass
og hugsað um allskonar hluti sem
maður ætlar að afreka í framtíðinni
en það er alger misskilningur að
halda það að einhver sé að fara að
banka upp á og segi „nú átt þú að
meika það, við vorum bara að spá í
það og nú er komið að þér.“ Lífið er
ekkert Nígeríubréf. Ef þú ætlar að
afreka eitthvað getur þú bara treyst
á sjálfan þig og þú verður að standa
upp og gera eitthvað. Á þessum
árum gat ég klúðrað öllu. Ég meira
að segja klúðraði því að vinna í kex-
verksmiðju eftir að mér var vikið
úr skólanum. Þá fór ég í meðferð,
20 ára gamall. Ég fann hvað ég var
með mikið andlegt mein og bilaður
á mörgum sviðum. Síðan eru að
verða 18 ár og ég hef aldrei stigið
feilspor.“
Kvíðinn bankar upp á
Máni hefur unnið sem umboðs-
maður fyrir margar hljómsveitir
og listamenn eins og Ólaf Arnalds,
Ensími, BangGang, Erp, Diktu og
lengst af var hann umboðsmaður
harðkjarnasveitarinnar Mínus, sem
fóstbróðir hans, Frosti, var með-
limur í.
„Ég hef alltaf haft gríðarlega
skoðun á músík og eins og margir
sem verða umboðsmenn þá hef ég
aldrei kunnað neitt á hljóðfæri og
gæti ekki bjargað lífi mínu með
söng. Margir héldu að það yrði
minn fallstígur að vinna í þessum
bransa og vera með Mínus, en það
hafa allir borið mikla virðingu fyrir
minni edrúmennsku,“ segir Máni.
„Margir spurðu hvort það yrði ekki
erfitt að vera edrú á tónleikaferða-
lagi eða á þjóðhátíð? Ég hafði aldrei
verið fullur á þjóðhátíð, svo það var
eðlilegra fyrir mig að vera edrú.
Þetta var aldrei vandamál, eigin-
lega þvert á móti. Á Mínustíma-
bilinu stofnaði ég umboðsskrifstofu
sem ég nefndi Paxal, í höfuðið á
kvíðalyfjum sem ég var kunnugur á
þeim tíma. Svo kvíðinn hefur aldrei
verið langt undan.“
Máni hefur þurft að glíma við
margan djöfulinn í gegnum tíðina
og einn af þeim er kvíðinn. Hann
er þó að mestu búinn að vinna bug
á honum, en veit að hann er alltaf
nálægt.
„Kvíði er algengur hjá þeim sem
halda að þeir geti gert betur í lífinu.
Þegar ég fann fyrir kvíða fyrst þá
var ég kapítalisti að selja auglýsing-
ar með betri laun en foreldrar mín-
ir, menntað fólkið. Allt gekk rosa-
lega vel en ég var 100 kíló og leið
illa. Ég var kapítalisti og kunni bara
ekki vel við það. Það gaf mér ekki
neitt. Svo byggði ég skápa heima
hjá mér sem voru allir rammskakk-
ir en mér leið miklu betur að fást
við það, svo ég sagði upp. Ég upp-
lifði einnig mikinn kvíða þegar ég
fékk stærsta hlutverk lífsins og
varð faðir. Þá fékk ég kvíðakast í
bæði skiptin,“ segir Máni sem á
tvo syni, þá Pétur Mána 14 ára og
Róbert Frosta 9 ára. „Þegar sá eldri
kom og ég lá við hlið hans fékk ég
kvíðakast. Lífið breyttist, þú ert
ekki lengur það mikilvægasta sem
heimurinn hefur skapað. Ég fattaði
hvað er mikilvægast í lífinu. Það er
hægt að klúðra öllum störfum, en
ekki foreldrastarfinu. Mér er alveg
sama um að vera rekinn og alveg
sama hvað fólki finnst, en ef maður
klúðrar uppeldi barnanna sinna þá
er þetta búið.“
Duglegur að rífa kjaft
Árið 1998 byrjaði Máni í útvarpinu
og árið 2008 byrjuðu þeir Frosti
með þáttinn Harmageddon.
„Þátturinn var búinn að vera 4
mánuði íloftinu þegar Geir Haarde
bað guð um að blessa Ísland. Við
vorum reknir í hruninu 2008. Við
vildum samt ekki gefast upp og tók-
um þá ákvörðun um að fara ekki.
Við sömdum við yfirmenn okkar
um að greiða okkur lágmarkslaun,
til þess að geta borgað af íbúðunum
okkar og hófumst handa við að
byggja upp stöðina. Við fórum bara
að búa til tekjur utan vinnunnar. Ég
var í umboðsmennskunni og Frosti
fór í Háskólann. Síðan höfum við
margfaldað tekjur stöðvarinnar og
laun og fólk var bara mjög ánægt
með þetta framtakið og í rauninni
þakklátt fyrir það. Ágúst Héðinsson
dagskrárstjóri var okkur hliðhollur
og studdi við bakið á okkur,“ segir
Máni.
Er einhver sem þú getur ekki
rifið kjaft við?
„Nei, það er enginn, ég get alltaf
fundið einhvern flöt sem ég get
rifið kjaft um, það er mjög auðvelt.
Ég hef bara gaman af því að rífa
kjaft. Ég er alinn upp í móður- og
föðurfjölskyldum þar sem er mikið
rökrætt og rifist, þó í bróðerni.
Allir bræður hans pabba halda
með sitt hverju fótboltaliðinu og
kjósa sitt hvern flokkinn í pólitík
svo það er hægt að rífast endalaust.
Báðar mínar fjölskyldur eru mikið
rökfærslufólk. Sumir halda að ég
sé miklu reiðari en ég er. Oft er ég
bara að skrifa eitthvað á Twitter
eða Facebook sem mér finnst
kaldhæðnislegt eða fyndið og það
er ekkert betra en að segja eitthvað
sem æsir fólk upp.“
Er ekki erfitt að vera alltaf
kominn upp við vegg? „Ég upplifi
það ekki, ég upplifi að ég sé búinn
Framhald á næstu opnu
viðtal 33 Helgin 5.-7. september 2014