Fréttatíminn - 05.09.2014, Page 62
62 ferðalög Helgin 5.-7. september 2014
Aðventuferðir GirnileGir réttir í Gömlu höfuðborGinni
Góður julefrokost í Kaupmannahöfn
Hundaræktarfélags Íslands
»
»
»
»
»
»
● ● ●
● ● ● ●
hundasýning
Schønnemann
Það eru sennilega
allir helstu matgæðingar
Danmerkur sammála um
að á Schønnemann við
Hauser Plads er danskri
matarhefð gert sérstaklega
hátt undir höfði. Þess
vegna bókast borðin hratt
vikurnar sem hægt er að
snæða julefrokost staðarins
frá 7. nóvember og fram til
jóla. Í ár kosta herlegheitin
438 danskar (um 9 þúsund
íslenskar).
Julefrokost
Schønnemann:
Steikt síld í öllegi, síld í
jólaákavíti, rauðspretta
með remúlaði, grafinn lax,
hænsnasalat, grísasulta,
kálfakæfa, „flæskesteg“,
brie og stilton ostar með
púrtvínshnetum, ris a
la mande með heitri
kirsuberjasósu. www.res-
taurantschonnemann.dk
Café Sorgenfri
Á meðan flestar smurbrauð-
sjómfrúr stimpla sig út eftir
hádegismatinn þá heldur
sú á Café Sorgenfri áfram
fram eftir kvöldi. Það eru því
sennilega margir Íslendingar
sem varið hafa kvöldinu á
þessum litla, sjarmerandi
stað í Brolæggersstræde.
Þar verður auðvitað líka
boðið upp á julefrokost frá
morgni og fram á kvöld og
kostar veislan 325 danskar á
mann (um 6700 krónur).
Julefrokost Sorgenfri:
Maríneruð karrí- og krydduð
síld, reyktur lax með eggi
og aspas, fiskifillet með
rækjum, lifrarkæfa með
sveppum, hænsnasalat,
heilsteikt lund, „flæskesteg“,
ostar og vínber. www.
cafesorgenfri.dk
Sankt Annæ
Á milli Nýhafnar og Kastellet
eru nokkrir rómaðir smur-
brauðsstaðir og kannski er
Sankt Annæ þeirra fremstur.
Þeir sem borða jólaborð
ársins á þessum borgara-
lega veitingastað verða ekki
fyrir vonbrigðum og munu
alveg örugglega ekki fara
út svangir, jafnvel þó þeir
láti Det lille julebord (395
danskar) duga.
Det lille julebord
Sankt Annæ:
Maríneruð síld í kapers og
lauk, heimalöguð karrísíld
með eplum, jólasíld hússins
með appelsínu, grafinn lax,
smjörsteikt rauðspretta,
sultaðar rauðbeður, lifrar-
kæfa með beikoni og sætu
graskeri, rifjasteik, önd
með eplum og sveskjum,
ostaborð og ris a la mande.
www.restaurantsankt-
annae.dk
Told og Snaps
Leið margra ferðamanna
í Kaupmannahöfn liggur
um Nýhöfn. Í hliðargötunni
Toldbodgade er Told og
snaps til húsa og þar verður
síldin á jólaborði ársins
íslensk og reykti laxinn
kemur frá frændum okkar
í Færeyjum. Matseðilinn
kostar 435 danskar (um 9
þúsund íslenskar).
Julemenuen:
Krydduð og maríneruð
íslensk síld, karrísalat,
færeyskur reyktur lax, rauð-
spretta, lifrarkæfa með
beikoni og sultuðum
rauðbeðum, steikt medies-
terpylsa með grænkáli,
rifjasteik af glöðum grísum,
danskur lífrænn brie,
blámygluostur, rauðvíns-
sultaðar sveskjur og ristað
rúgbrauð, ris a la mande.
www.toldogsnaps.dk
Kanal Caféen
Í kjallara bak við Kristjáns-
borgarhöll er Kanal Cafeen
til húsa. Ein þekktasta smur-
brauðsstofa borgarinnar
og þangað venja víst ennþá
þingmenn komur sínar
enda stutt fyrir þá að fara
úr vinnunni. Julefrokost
hússins kostar 355 danskar
(um 7300 íslenskar).
Julebord:
Karrísíld, jólasíld hússins,
kryddsíld, rauðsprettusíld,
rauðspretta, reyktur áll,
rækjur með majónesi,
hænsnasalat, andabringa,
eplaflesk, lifrarkæfa,
rifjasteik, medisterpylsa,
heimalöguð rauðbeðusultu,
ostaborð og ris a la mande.
www.kanalcafeen.dk
Einnig má mæla með Slot-
skælderen hos Gitte Kik og
Husmans Vinstue.
Á Túristi.is má finna veg-
vísi fyrir Kaupmannahöfn
og gera verðsamanburð á
hótelum borgarinnar.
Í lok árs fjölgar ferðum Íslendinga til gömlu höfuðborgarinnar
og þá koma líklega margir við á smurbrauðsstofu. Þeir sem
ætla í þannig reisu í ár ættu að taka frá borð fyrr en síðar því
heimamenn skipuleggja sig langt fram í tímann.
Nóvember er einn vinsælasti mánuðurinn fyrir Kaupmannahafnarreisur meðal Íslend-
inga. Þá setjast margir að dönsku jólaborði. Mynd: Adrian Lazar/Copenhagen Media Center
v itið þið af hverju hjónaskiln-aðir eru svona tíðir hér í Danmörku?,“ spurði kenn-
arinn bekkinn. Þegar nemendurnir
gerðu sig ekki líklega til að svara
skrifaði hann svarið með stórum
stöfum á töfluna. „Þetta er ástæð-
an,“ sagði hann og benti á orðið JU-
LEFROKOST á töflunni.
Sennilega er þetta mikil einföld-
un á raunveruleikanum hjá kenn-
aranum en það verður þó ekki litið
framhjá því að margir Danir sleppa
fram af sér beislinu þegar vinnu-
staðurinn eða vinahópurinn safnast
saman á aðventunni til að borða ju-
lefrokost. Gleðin endar þá stundum
með leiðindum. En hvað sem þessu
líður þá munu sennilega fjölmarg-
ir Íslendingar setjast að borðum
á dönskum smurbrauðsstofum í
nóvember og desember innan um
hina glöðu Dani. Þeir sem vilja vera
alveg vissir um að fá pláss á góðum
stað ættu að panta sem fyrst því
heimamenn eru þekktir fyrir að
vera tímanlega í því.
Hér eru nokkrir af þeim stöðum
sem óhætt er að mæla með í Kaup-
mannahöfn sé stefnan sett á síld,
flæskesteg og ris a la mande að
hætti Dana í nóvember og desem-
ber.
Kristján Sigurjónsson
kristjan@turisti.is