Fréttatíminn - 05.09.2014, Side 72
Í takt við tÍmann Sindri JenSSon
Hef ástríðu fyrir fótbolta og fötum
S indri er markvörður og hefur leikið með Þrótti, Val og nú síðast KR. „Ég stefni á að
spila í átta til tíu ár í viðbót enda
er þetta eina leiðin sem ég kann til
að halda mér í formi,“ segir hann.
Sindri hefur starfað í tískuverslun-
um síðan hann var 17 ára, lengst
af sem verslunarstjóri í Gallerí
Sautján. Hann bjó í eitt og hálft ár
í Kaupmannahöfn fyrir skemmstu
og var þá verslunarstjóri í Street
Machine sem er gömul og rótgróin
tísku- og hjólabrettaverslun. Sindri
er nú að opna eigin verslun, Húrra
Reykjavík, við Hverfisgötu. „Þetta
er herrafataverslun og við einblín-
um á vandaðan hversdagsfatnað.
Við verðum með allt frá toppi til
táar nema formlegan klæðnað.“
Staðalbúnaður
Fatastíllinn minn einkennist af
einföldum flíkum og einfaldleika
í sniðum. Ég er mikið í dökk-
bláum flíkum og bláum, gallabux-
um í bland við strigaskó, leðurskó
eða rússkinnsskó. Þetta er svona
skandinavískur stíll þar sem gæði
í bæði efnum og sniðum eru í fyr-
irrúmi. Ég hef mesta ástríðu fyrir
fótbolta og fötum í lífinu. Bæði að
spila og horfa á fótbolta og skoða
föt, selja þau, kaupa þau og spá í
þau. Svo er ég auðvitað áhugamað-
ur um kvenþjóðina og reyni að fara
á stefnumót eins oft og hægt er.
Hugbúnaður
Um þessar mundir horfi ég aldrei
á sjónvarp og fer örsjaldan í bíó.
Í febrúar, þegar við ákváðum
að opna búðina og ég vildi halda
áfram í fótboltanum, tók ég ákvörð-
un um að hætta alfarið að drekka
áfengi. Ég fer því örsjaldan út á lífið
en þegar það gerist finnst mér best
að fara með félögunum á þægilega
staði eins og Bunk og Kex. Mér
finnst rosa gott að fara á kaffihús
og Stofan er í miklu uppáhaldi. Ég
er mikill sælkeri og finnst gott að
fara út að borða. Ég fæ mér Grænu
þrumuna á Manni lifandi á morgn-
ana og er mikill aðdáandi Gló. Svo
borða ég oft á Local í Borgartúni
og er hrifinn af Cuckoos Nest úti
á Granda.
Vélbúnaður
Ég er með Apple-bakteríu eins
og margir, enda eru þetta einföld
og falleg tæki. Ég er með iMac,
iPad og iPhone 5. Í símanum nota
ég þessi vinsælu öpp; Instagram,
Facebook og Twitter en líka Lives-
core og Forza Football sem ég nota
til að fylgjast með fótboltanum.
Aukabúnaður
Ég get eldað allt þetta helsta en
ég er þó hrifnari af því að láta fag-
menn elda ofan í mig og greiða
þeim fyrir. VIð erum með svo
flotta matarmenningu á Íslandi og
frábært úrval af stöðum. Ég hef
sérhæft mig í að búa til pítsur en
ég er líka búinn að mastera kjúk-
lingaréttinn Búró sem er á boð-
stólum þegar við hittumst öll í fjöl-
skyldunni. Þegar ég flutti heim frá
Köben ætlaði ég að vera bíllaus en
það er hægara sagt en gert,
sama hvað mig langar.
Ég reyni að hjóla sem
mest og Jón Davíð, við-
skiptafélagi minn, er
á bíl en annars fæ
ég liðsfélagana til að
skutla mér eftir æf-
ingar. Þeir eru sumir
orðnir pínu þreyttir
á mér en nokkrir
eru á bíl frá KR og
eiga bara að taka
við skipunum frá
mér. Við KR-ing-
arnir erum átta
saman í svoköll-
uðum hádegis -
klúbbi þar sem
við förum daginn eftir
leik út að borða. Það er
dregið út hvaða veitinga-
staður verður fyrir valinu og
svo gefum við honum einkunn
eftir á. Strákarnir eru byrjaðir
að hanna app upp úr þessu sem
kallast Food Roulette.
Ljósm
ynd/H
ari
Sindri Jensson er 28 ára fótboltamaður og fagurkeri. Hann
opnar herrafataverslunina Húrra Reykjavík í dag á Hverf-
isgötu ásamt félaga sínum. Sindri nýtur þess að fara út að
borða og er áhugamaður um kvenþjóðina.
Sætar franskar
frá McCain
Sætu kartöflurnar frá McCain eru ómótstæðilega
bragðgóðar. Þú skellir þeim í ofninn og áður en þú
veist af hefurðu töfrað fram girnilegt og gómsætt
meðlæti. Prófaðu núna!
Vinsælar hjá Íslendingum í mörg ár
appafengur
Yelp
App vikunnar er lífsnauðsynlegt þeim sem
kannast við það að labba um í ókunnugri
borg í leit að góðum veitingastað. Yelp
virkar einfaldlega á þann hátt að þú skráir
inn borgina, hverfið og hvernig mat þú vilt
borða og Yelp
leiðir þig áfram
og fullkomnar
kvöldið.
Forr it ið er
þannig búið að
nánast allir veit-
ingastaðir sem
skráðir eru á
einhvern hátt á
veraldarvefinn
fara sjálfkrafa
inn á Yelp. Mjög
mikilvægt er
að skrá komur
sínar á veitinga-
staðina og gefa
þeim einkunn,
og jafnvel henda
inn einn mynd af
matnum. Svona
um leið og mað-
ur hendir inn á
Instagram. Með
þessu eykur
maður allt upp-
lýsingaflæði
hvers veitinga-
húss og gerir
það að verkum
að maður treyst-
ir betur þeim
veitingahúsum
sem hafa fengið
góða umsögn og
girnilega mynd.
Einnig er gott að vafra um appið áður en
haldið er af stað, ef maður er óákveðinn um
hvar eigi að snæða. Sparar tíma og fyrir-
höfn.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
72 dægurmál Helgin 5.-7. september 2014