Læknablaðið - 15.07.2007, Page 5
LISTAMAÐUR
MÁNAÐARINS
II M R Æ Ð A 0 G F R É T T I R
553 Af sjónarhóli stjórnar: Nýr heilbrigðisráöherra:
Fjölbreytt rekstrarförm, forvarnir og vísindi í hjáverkum
Sigríður Ólína Haraldsdóttir
554 Samfélagsgeðlækningar eru forgangsverkefni
Hávar Sigurjónsson
557 Heilsa og sjúkdómar í kynjaspegli
559 Læknir matgæðingur og skvassspilari
Hávar Sigurjónsson
561 Yfir tvö þúsund læknar
564 Læknar vanmeta áhrif sín
Hávar Sigurjónsson
566 Orlofsíbúð í Stokkhólmi
567 Hlaut viðurkenningu á norrænu læknaþingi
Hávar Sigurjónsson
F A S T I R P I S T L A R
571 íðorð 200. Lungað úr nóttinni?
Jóhann Heiðar Jóhannsson
572 Einingaverð og taxtar
574 Sérlyfjatextar
582 Ráðstefnur og fundir
Sumarlokun á skrifstofu
læknafélaganna
Lokað frá og með 16. júlí til 7. ágúst
vegna sumarleyfa starfsfólks.
Furðulegar andstæður kallast á í því
verki sem varð fyrir valinu á forsíðu blaðs-
ins að þessu sinni. Fyrst er um að ræða
ólíka tæknilega útfærslu inni á sama mynd-
fletinum, en einnig er spennandi togstreita
í inntakinu. Verkið er unnið á striga annars
vegar með hefðbundinni málunartækni þar
sem litunum er ekki blandað, heldur eru
þeir aðskildir hver um sig á sínum fleti í ýktri
tvívídd. Hins vegar er nostursamlega unnin
blýantsteikning sem mótar þrívídd með
skuggum, blæbrigðum og hárnákvæmu
Ijósmyndaraunsæi. Málningin mótar lög
af seigfljótandi efni sem eins og lekur yfir
teikninguna þannig að fyrsta kastið kann
að vera erfitt að greina hvað hún sýnir.
Búkar vaxtarræktarmanna renna saman í
óljósan klasa hnykklaðra vöðva, svo greina
má brjóst- og magavöðva en ekki sést í
höfuð eða útlimi.
GuðmundurThoroddsen (f. 1980) held-
ur um þessar mundir sína fyrstu einkasýn-
ingu í Gallerí 101 sem hann kallar Rjómaís-
land. Þar eru verk í anda þess sem hér um
ræðir, teikningar af tröllvöxnum körlum og
ævintýralandslagi og yfir allt lekur bráðn-
andi ís. Flestar myndirnar sýna fjallaform
og þannig blandar Guðmundur íslensku
landslagshefðinni í verk sín á heldur óhefð-
bundinn hátt. I stað snjóalaga og jökla eru
á tindum rjómaís í mismunandi bragðteg-
undum ef marka má mjólkurlitina.
Að túlka verkið er enginn hægðarleikur,
það sem listamaðurinn setur fram er í senn
fáránlegt og heillandi. Til hugar kemur
undarleg blætidsýrkun þegar vöðvastæltir
karlmenn löðrandi í rjómaís eru annars
vegar en í verkinu sýnist Ijóst að þetta
tvennt fer engan veginn saman, teikningin
og málningin eru allt annars eðlis og al-
gjörlega aðskilin. Hugsanlega er á ferðinni
pólitískur undirtónn með tilvísun í bráðnun
jökla og karllægan sperring framámanna
sem ýtir undir losun gróðurhúsaloftteg-
unda. Guðmundur hefur áður sýnt í verkum
sínum fantasíukennda frásagnarlist, til að
mynda með uppáklæddum dýrum, lifandi
skemmtigarðaleiktækjum og ástleitnum
íþróttamönnum.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið 2007/93 529