Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2007, Blaðsíða 29

Læknablaðið - 15.07.2007, Blaðsíða 29
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ ■ Fjölbreytt rekstrarform, forvarnir og vísindi í hjáverkum Nýr heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, hefur tekið við embætti. í stjórn- arsáttmálanum kemur fram að ríkisstjórnin hefur í hyggju að auka möguleika á fjölbreyttari rekstrarformum í heilbrigðiskerfinu. Þá hlýtur að vera komið að þvíað heimilislæknar fái að stunda stofurekstur eins og aðrir sérfræðingar og geri samning við ríkið um þá þjónustu sem þeir skuldbunda sig til að veita. Þjónustan ætti að vera sú sama og nú fer fram á öllum heilsugæslustöðv- um landsins. Fjöldi fólks á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki heimilislækni og er það ótækt.Von er til að heilbrigðisráðherrann stigi þetta skref, þ.e. að leyfa sérfræðingum í heimilislækningum að reka eigin stofur, sem mundi gera fleirum kleift að hafa heimilislækni og er jafnframt sjálfsagt réttlætismál. Hvers vegna eiga ekki allir sérfræðingar í lækn- isfræði að sitja við sama borð í þessum efnum? Líta má til Noregs í þessu sambandi, en þar starfa heilsugæslustöðvar reknar af ríki/bæjarfélagi og læknum hlið við hlið. Guðlaugur Þór sagði í fjölmiðlum að hann hefði sérstakan áhuga á forvörnum. Því ber að fagna. Við þurfum í mun meira mæli að beina sjónum okkar að öllum forvörnum.Tóbaksvarnar- ráð er fagráð sem á að gefa Lýðheilsustöð ráð- leggingar um hvernig standa skuli að forvörnum varðandi reykingar. Ráðið á einnig að fylgjasl með því hvernig því fé, sem nota á til tóbaksvarna, er varið en skylt er að verja 0,9% af brúttósölu tóbaks til tóbaksvarna. Ég var skipuð formaður tóbaks-varnarráðs í janúar sl. og gilti skipunin til 1. júní sl. Tóbaksvarnarráð heldur fundi með starfs- mönnum Lýðheilsustöðvar og þar hefur verið farið yfir mál sem tengjast tóbaksvörnum. Ég hef látið í ljós áhyggjur mínar vegna reykinga ungmenna á þessum fundum. Enn reykja um 10% 10. bekkinga að staðaldri. Það er alltof mikið. Vímuefnafræðsla hefur verið af mjög skornum skammti hingað til, nemendur grunnskóla fá einu sinni á vetri heim- sókn fyrrum fíkils sem fræðir þau um bölið sem fylgir vímuefnum. Lýðheilsustöð hefur í samvinnu við skólaheilsugæslu og Miðstöð heilsuverndar barna þýtt og staðfært fræðsluefni um heilsu fyrir börn í grunnskóla. Skólahjúkrunarfræðingar eiga að sjá um fræðsluna. Ég sé fyrir mér að í sumum skólum verði þetta mjög virkt, öðrum ekki. Það er á valdi skólastjórnenda hvort skólahjúkrunar- fræðingar fá tíma í stundatöflu til að kynna þetta fyrir nemendum. Heilbrigðisráðherra og menntamálaráðherra ættu að taka höndum saman og gera forvarnir að sérstakri námsgrein, sem ætti sinn stað í stundaskrá grunnskólanema. Að einn af hverjum tíu 15-16 ára unglingum reykir sýnir að fræðsla um skaðsemi reykinga hefur ekki náð til þeirra. Betur má ef duga skal. Háskóli íslands hefur sett sér að verða í fremstu röð háskóla í heiminum. Hluti af því markmiði er að fjölga þeim sem ljúka doktorsprófi. Hjá Landspítala-háskólasjúkrahúsi (LSH) er enginn sveigjanleiki í vinnutíma þannig að þeir sem vinna þar geti unnið að rannsóknum. Við erlend háskólasjúkrahús eru víða launaðar sérstakar stöður doktorsnema í læknisfræði, t.d. þriggja ára stöður þar sem unnið er að rannsóknum með það að markmiði að ljúka doktorsprófi. Þessir læknar skila einnig klínískri vinnu, t.d. með vinnu á göngu- deild og annast kennslu læknanema og annarra heilbrigðisstétta. Á LSH ættu að vera gríðarlegir möguleikar hvað varðar rannsóknarvinnu. Efla þarf tengslin við háskólann þannig að allir starfs- menn eigi kost á að nýta sér möguleikana sem felast í því að vinna á háskólasjúkrahúsi. Það á að vera eftirsóknarvert að vinna á LSH, þar ættu að vera möguleikar á að þróast í starfi, að vinna að rannsóknum og launin ættu að vera sambærileg við það sem tíðkast á markaðnum fyrir sambæri- leg störf. Einkennismerki sjúkrahússins ber það ekki með sér að spítalinn tengist Háskóla Islands. Á enska bréfsefninu er krossinn efstur og undir honum stendur með mjög smáu letri að um sé að ræða háskólasjúkrahús. Hjá mörgum öðrum háskólasjúkrahúsum erlendis er merki háskólans í öndvegi og þannig er Iögð áhersla á tengsl þessara stofnana. Sigríður Ólína Haraldsdóttir í pistlunum Af sjónarhóli stjornar birta stjórnarmenn LÍ sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Læknablaðið 2007/93 553
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.