Læknablaðið - 15.07.2007, Side 29
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ ■
Fjölbreytt rekstrarform, forvarnir
og vísindi í hjáverkum
Nýr heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór
Þórðarson, hefur tekið við embætti. í stjórn-
arsáttmálanum kemur fram að ríkisstjórnin
hefur í hyggju að auka möguleika á fjölbreyttari
rekstrarformum í heilbrigðiskerfinu. Þá hlýtur
að vera komið að þvíað heimilislæknar fái að
stunda stofurekstur eins og aðrir sérfræðingar og
geri samning við ríkið um þá þjónustu sem þeir
skuldbunda sig til að veita. Þjónustan ætti að vera
sú sama og nú fer fram á öllum heilsugæslustöðv-
um landsins. Fjöldi fólks á höfuðborgarsvæðinu
hefur ekki heimilislækni og er það ótækt.Von er til
að heilbrigðisráðherrann stigi þetta skref, þ.e. að
leyfa sérfræðingum í heimilislækningum að reka
eigin stofur, sem mundi gera fleirum kleift að hafa
heimilislækni og er jafnframt sjálfsagt réttlætismál.
Hvers vegna eiga ekki allir sérfræðingar í lækn-
isfræði að sitja við sama borð í þessum efnum?
Líta má til Noregs í þessu sambandi, en þar starfa
heilsugæslustöðvar reknar af ríki/bæjarfélagi og
læknum hlið við hlið.
Guðlaugur Þór sagði í fjölmiðlum að hann
hefði sérstakan áhuga á forvörnum. Því ber að
fagna. Við þurfum í mun meira mæli að beina
sjónum okkar að öllum forvörnum.Tóbaksvarnar-
ráð er fagráð sem á að gefa Lýðheilsustöð ráð-
leggingar um hvernig standa skuli að forvörnum
varðandi reykingar. Ráðið á einnig að fylgjasl
með því hvernig því fé, sem nota á til tóbaksvarna,
er varið en skylt er að verja 0,9% af brúttósölu
tóbaks til tóbaksvarna. Ég var skipuð formaður
tóbaks-varnarráðs í janúar sl. og gilti skipunin til 1.
júní sl. Tóbaksvarnarráð heldur fundi með starfs-
mönnum Lýðheilsustöðvar og þar hefur verið farið
yfir mál sem tengjast tóbaksvörnum. Ég hef látið
í ljós áhyggjur mínar vegna reykinga ungmenna á
þessum fundum. Enn reykja um 10% 10. bekkinga
að staðaldri. Það er alltof mikið. Vímuefnafræðsla
hefur verið af mjög skornum skammti hingað til,
nemendur grunnskóla fá einu sinni á vetri heim-
sókn fyrrum fíkils sem fræðir þau um bölið sem
fylgir vímuefnum. Lýðheilsustöð hefur í samvinnu
við skólaheilsugæslu og Miðstöð heilsuverndar
barna þýtt og staðfært fræðsluefni um heilsu fyrir
börn í grunnskóla. Skólahjúkrunarfræðingar eiga
að sjá um fræðsluna. Ég sé fyrir mér að í sumum
skólum verði þetta mjög virkt, öðrum ekki. Það
er á valdi skólastjórnenda hvort skólahjúkrunar-
fræðingar fá tíma í stundatöflu til að kynna
þetta fyrir nemendum. Heilbrigðisráðherra og
menntamálaráðherra ættu að taka höndum saman
og gera forvarnir að sérstakri námsgrein, sem ætti
sinn stað í stundaskrá grunnskólanema. Að einn af
hverjum tíu 15-16 ára unglingum reykir sýnir að
fræðsla um skaðsemi reykinga hefur ekki náð til
þeirra. Betur má ef duga skal.
Háskóli íslands hefur sett sér að verða í fremstu
röð háskóla í heiminum. Hluti af því markmiði
er að fjölga þeim sem ljúka doktorsprófi. Hjá
Landspítala-háskólasjúkrahúsi (LSH) er enginn
sveigjanleiki í vinnutíma þannig að þeir sem
vinna þar geti unnið að rannsóknum. Við erlend
háskólasjúkrahús eru víða launaðar sérstakar
stöður doktorsnema í læknisfræði, t.d. þriggja ára
stöður þar sem unnið er að rannsóknum með það
að markmiði að ljúka doktorsprófi. Þessir læknar
skila einnig klínískri vinnu, t.d. með vinnu á göngu-
deild og annast kennslu læknanema og annarra
heilbrigðisstétta. Á LSH ættu að vera gríðarlegir
möguleikar hvað varðar rannsóknarvinnu. Efla
þarf tengslin við háskólann þannig að allir starfs-
menn eigi kost á að nýta sér möguleikana sem
felast í því að vinna á háskólasjúkrahúsi. Það á að
vera eftirsóknarvert að vinna á LSH, þar ættu að
vera möguleikar á að þróast í starfi, að vinna að
rannsóknum og launin ættu að vera sambærileg
við það sem tíðkast á markaðnum fyrir sambæri-
leg störf. Einkennismerki sjúkrahússins ber það
ekki með sér að spítalinn tengist Háskóla Islands.
Á enska bréfsefninu er krossinn efstur og undir
honum stendur með mjög smáu letri að um sé
að ræða háskólasjúkrahús. Hjá mörgum öðrum
háskólasjúkrahúsum erlendis er merki háskólans í
öndvegi og þannig er Iögð áhersla á tengsl þessara
stofnana.
Sigríður Ólína
Haraldsdóttir
í pistlunum Af sjónarhóli
stjornar birta stjórnarmenn
LÍ sínar eigin skoðanir en
ekki félagsins.
Læknablaðið 2007/93 553