Læknablaðið - 15.07.2007, Qupperneq 13
FRÆÐIGREINAR / HERSLISMEIN
Efni og aðferðir
Sjúklingar með herslismein voru fundnir í
skrám gigtardeildar Landspítala háskólasjúkra-
húss (LSH) og einnig var leitað kerfisbundið í
sjúkdómaskrám LSH samkvæmt IDC kóðum.
Kynningarbréf var sent til allra sjúklinga sem
fundust í fyrrnefndum gagnagrunnum og voru lif-
andi 31/12 2003. í kjölfarið var haft símasamband
við allan hópinn og þeir sem samþykktu þátttöku
voru boðaðir til viðtals og beinþéttnimælingar (sjá
nánar að neðan).
Viðtal og skoðun
Við komu á beinþéttnimóttöku LSH var fram-
kvæmt staðlað viðlal sem tók til áhættuþátta fyrir
beinþynningu, ættarsögu og einnig var spurt um
neysluvenjur með lilliti til kalks og D-vítamín
inntöku. Einnig var spurt um líkamshreyfingu og
íþróttaiðkun þátttakenda. Þá var framkvæmd lík-
amsskoðun með tilliti til útbreiðslu herslisbreyt-
inga í húð, þar sem yfirborði húðarinnar var skipt
í 24 svæði og gefin stig frá núll upp í þrjá, allt eftir
alvarleika herslimeinsbreytinganna. Möguleg húð-
stigaeinkunn var því frá 0 upp í 72 stig. í kjölfarið
voru þátttakendur flokkaðir í tvo hópa eftir
alþjóðlegri flokkun eftir því hvort þeir væru með
takmarkað eða dreift herslismein í húð (17).
Tafla 1. Yfirlit yfir helstu beinvísa sem mældir eru í rannsókninni með tilliti til efnafræðilegrar samsetningar, uppruna og hlutverks.
Beinvísir Efnafrœöileg samsetning Uppruni Hlutverk
Osteókalsín Lítiö prótein: 49 amínósýrur Beinkímfrumur og tannbeinskim- frumur Endurspeglar nýmyndun beina
Paratýrín (PTH) Hormón: 84 amínósýrur Kalkkirtlar Stýrir kalk- og fosfatjafnvasgi líkamans.
CrossLaps Lítið nióurbrots-prótein úr kollageni Bein og aðrir vefir (kollagen 1) Endurspeglar niðurbrot beina.
Cystatin-C Prótein: 121 amínósýra Allar kyrni frumur Hamla virkni ákveðinna próteasa. Endurspeglar nýrnastarfsemi
IGF-1 Prótein: 70 amínósýrur 80% af IGF-1 í blóöi kemur frá lifur, afgangur frá beinum og öðrum vefum Hvetur skiptingu og þroska bein-og brjóskfrumna og eykur framleiðslu efna sem fara í beinkvoöu (matrix constituents).
PINP (Procollagen type 1 N- terminal propeptide) Prótein: 51 amínósýrur Bein og mjúkvefir (kollagen 1) Endurspeglar. nýmyndun kollagens
Sjá nánar heimildir( 19-21).
Meðferð lífsýna og mæling lífefna
Öll lífsýnataka og meðferð sýna fylgdi stöðluðum
verkferlum. Morgunþvagsýni og fastandi blóðsýni
voru tekin fyrir kl 10:00 að morgni vegna dæg-
ursveiflu margra lífefna sem mæld voru. Blóðhagur
var mældur með Cell Dyn 3200, en blóðsölt,
kreatínín, heildarmagn alkalísks fosfatasa, albúm-
ín og kolsýra í blóði var mælt jafnóðum með
Vitros 950 tæki (Vitros) og hvarfefnum frá Ortho
Clinical Diagnostics (Rochester, Bandaríkjunum).
Einnig var mælt jóniserað kalsíum með jóna-
sértækum rafskautum (ion-selective electrodes)
með Radiometer 720 tæki (Kaupmannahöfn,
Danmörku). Þá var mælt osteókalsín, paratýrín,
CrossLaps, PINP, týrótrópín (TSH), östradíól.
testósterón, frítt T4 og frítt T3 í blóði með hjálp
mótefna og rafefnaljómunar (electrochemilumins-
cence immunoassay) með Elecsys tæki frá Roche
Diagnostics GmbH (Mannheim, Þýskalandi).
Styrkur 25-OH vítamíns D var mældur með hjálp
mótefna og geislavirks joðs (DiaSorin,Stillwater,
Bandaríkjunum). Insulin-like Growth Factor-1
(IGF-1) var mældur með mótefnum og geislavirku
joði (radioimmunoassay) og komu hvarfefnin
frá Diagnostic System Laboratories (Webster,
Bandaríkjunum). Cystatin-C var mælt með grugg-
mælingu og hjálp mótefna frá DAKO (Glostup,
Danmörku) á Vitros 30 tæki.Tafla I gefur yfirlit um
uppruna og hlutverk helstu beinvísa sem mældir
eru í þessari rannsókn.
Sjúklingarnir voru beðnir að kasta af sér þvagi
heima snemma morguns, þ.e. áður en þeir komu
til rannsóknar og skrá tímann hjá sér. Þegar þeir
komu til rannsóknar var tekið þvagsýni. Magn og
tíminn frá því þeir höfðu þvaglát um morguninn
var skráð og 10 ml sendir til rannsóknarstofu. I
þessu sýni var mældur styrkur kalíum, kalsíum og
kreatíníns. Reiknaður var útskilnaður þessara efna
á sólarhring sem og kreatínín úthreinsun (creat-
inine clearance), ásamt hlutfalls kalsíums og kreat-
íníns í þvagi.
Beinþéttnimœlingar
Beinþéttni þátttakenda var mæld með QDR 4500
Elite beinþéttnimæli. Tækið mælir magn steinefna
í beinum (bone mineral content (BMC)) og gefur
það upp sem steinefnainnihald á flatarmálseiningu
(bone mineral density (BMD)). Sú niðurstaða er
síðan umreiknuð í T-gildi (18) og eru þær tölur
notaðar til kynningar á niðurstöðum. Mæld var
beinþéttni í lendarliðum (L1-L4), lærleggsháls,
mjöðm ásamt líkamanum í heild.
Tveir þátttakendur áttu ekki möguleika að
koma til Reykjavíkur lil beinþéttnimælingar. Þeir
voru mældir með Hologic 2000 DEXA-mæli sem
Læknablaðið 2007/93537