Læknablaðið - 15.07.2007, Side 37
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÁHUGAMÁL
vegis af góðrí jómfrúarolíu - kannski 1 matskeið
var dreift yfir hrygginn og svo var muldu fersku
rósmaríni, salti og pipar dreift ríkulega yfir. Lokið
var sett á ofnpottinn og svo var hann settur í 160
gráðu heitan ofn og látinn bakast þar til kjarnhiti
fór að nálgast 60 gráður. 300 ml afvatni er svo hellt
yfir hrygginn og leyft að sjóða í ofnpottinum í smá-
tíma. Þegar kjarnhiti er kominn rétt yfir 62 gráður
er hryggurinn tekinn út úr ofninum, kveikt á grillinu
og hitinn keyrður upp. Vatninu hellt frá og notað í
sósuna. Þegar ofninn er orðinn blússheitur er auka
salti dreift yfir hrygginn og hann settur aftur inn í
ofninn án pottloksins. Puran verður þannig knass-
andi og góð. ”
http://www. ragnarfreyr. blog.is/
„Öll íslensk villibráð finnst mér frábær, hrein-
dýrakjöt, rjúpur, gæsir, endur og svartfugl. Þetta er
ótrúlega góður matur og ég hef eldað úr þessu öllu.
Hreindýrakjötið er frábær matur og var jólamat-
urinn um síðustu jól.”
Hann kveðst hafa byrjað að stunda skotveiðar
fyrir tveimur árum og það áhugamál fari vaxandi
hjá sér. „Þetta tengist því að draga í búið og elda
bráðina.”
Ragnar Freyr er svo heppinn að samhliða áhug-
anum á mat og matargerð hefur hann brennandi
áhuga á skvassi. Þar brennir hann af sér hitaein-
ingunum sem maturinn leggur honum til og veitir
kannski ekki af þar sem ítalskur matur er sjaldan í
lista í megrunarkúrum. „Þetta fer mjög vel saman
og er eina leiðin til að heyja nauðsynlega varn-
arbaráttu við hitt áhugamálið.Ég spila skvass
þrisvar til fjórum sinnum í viku,” segir hann og ein
af fyrirmyndum í þeim efnum er ekki langt undan
því Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir er í
skvasslandsliðinu „Tómas vinnur mig nánast alltaf
en heldur mér við efnið með því að ég næ að merja
eina og eina lotu. Hann rústaði mér reyndar alveg
um daginn.”
Ragnar Freyr klykkir út með því að segja að
þrátt fyrir mikla ástundun ofangreindra áhugamála
þá sé aðaláhugamálið hans læknisfræði og flest allt
annað verði að víkja þegar hún er annars vegar.
„Ég elda fyrir fjölskylduna þegar ég er ekki á vakt,
annars ekki, “ segir þessi glaðbeitti matgæðingur
sem á sex mánuðum hefur orðið ein af helstu fyr-
irmyndum þjóðarinnar í vandaðri eldamennsku.
Geri aðrir betur.
Yfir tvö
oúsund
æknar
Tvö þúsundasti læknirinn sem lækna-
deild Háskóla Islands útskrifar var í
hópi þeirra 36 nýju lækna sem útskrifast
frá deildinni í vor. Hefur deildin nú
alls útskrifað 2035 lækna frá upphafi.
Konur eru 60% hópsins og sagði Stefán
B. Sigurðsson, forseti læknadeildar,
þegar hann ávarpaði hópinn í móttöku
Læknafélags Islands, að sama hlutfall
kvenna væri í þeim hópi sem þreytti inn-
tökupróf fyrir læknadeildina í vor.
Sigurbjörn Sveinsson, formaður LÍ,
bauð þennan nýja hóp lækna velkominn í
íslenska læknastétt og sagði þessa athöfn
jafnan þá ánægulegustu sem Læknafélag-
ið stæði fyrir. Eftir ávörp Sigurbjörns
og Sigurðar, afhenti Örn Bjarnason við-
urkenningar) Hollvinafélags læknadeild-
ar sem Edda Vésteinsdóttir og Róbert
Pálmason fengu. Þá skrifuðu læknarnir
undir læknaeið Hippokratesar.
Formaður Læknafélags íslands sagði
jafnframt í ávarpi sínu að læknum
framtíðarinnar væri hætt við þær ýmsu
breytingar sem einkenndu okkar daga.
„Fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu mun
ráðast af sjúkdómum þjóðarinnar, hvern-
ig þróun verður í vísindum og tækni,
hvernig kostnaðaraukningu verður mætt,
hvort taumlaus markaðs- og einstaklings-
hyggja munu ráða öllu um veitingu
heilbrigðisþjónustu eða hvort fjöldinn
muni una því áfram að axla sameiginlega
ábyrgð,” sagði Sigurbjörn og kvaðst ekki
einvörðungu vísa hér til lækna heldur
hefðu allir limir á þjóðarlíkamanum
sitt hlutverk. „Væntingar og kröfur
ráða miklu og vandasamt er að spila úr
því sem er til skiptanna, þegar kostn-
aður eykst hraðar en aflahlutur þjóðar og
aðgengi að heilbrigðisþjónustu ákvarðar
eftirspurn. Akall um jafnræði þegnanna
er sanngjarnt við þessar aðstæður, en
þessu ákalli er oft erfitt að svara. Og þá
koma sölumenn markaðarins með lausn-
ir þar sem grundvöllurinn, mannúðin,
hefur gleymst.”
Læknablaðið 2007/93 561