Læknablaðið - 15.07.2007, Page 42
UMRÆÐA & FRÉTTIR / THE LANCET
mjög mikilli og sérhæfðri þekkingu, það er
hlustað á þá þegar þeir tjá sig en í þessum efnum
hafa læknar stórlega vanmetið möguleg áhrif sín.
Með því að einkavæða heilbrigðisþjónustu eru
stjórnvöld að ýta læknum enn lengra út á kant-
inn í þjóðfélagsumræðunni og draga úr mikilvægi
hlutverks þeirra í að viðhalda þeim félagslega
samningi sem verður að vera í gildi milli þegn-
anna og stjórnvalda á hverjum tíma.”
Finnst þér að leggja ætti meiri áherslu á sið-
ferðilega og mannlega þáttinní menntun lækna?
„Ég get að sjálfsögðu ekki svarað því hvernig
menntun lækna á íslandi er háttað hvað þetta
varðar en sannarlega í öðrum Evrópulöndum þar
sem ég þekki til er þessu verulega ábótavant og
áherslan á tæknilegan og vísindalegan þátt lækn-
isfræði er á kostnað annarra þátta. Læknisfræði
byggir á vísindalegri þekkingu en hún er jafn-
framt annað og miklu meira. Læknisfræði snýst
um sjónarhorn á umheiminn. Læknisfræði snýst
um siðferðilega og heimspekilega sýn okkar
á veröldina. Læknisfræði er miklu víðari vís-
indagrein en svo að rannsóknarstofuvísindin eigi
að hafa þar þá yfirburðastöðu sem þeim hefur
hlotnast á undanförnum árum. Það eru mistök.”
Þú hefur tjáð andstöðu þína við stríðsrekst-
urinn í írak og skrifað greinaríThe Lancet um
þetta efni. í hverju er andstaða þín fólgin?
„Lancet er læknisfræðilegt rit og stefna okkar
er að birta niðurstöður rannsókna í læknavís-
indum. Þegar niðurstöðurnar eru sannfærandi og
studdar vísindalegum rökum þá fylgjum við þeim
eftir og styðjum þær í forystugreinum. I þessu til-
felli þá birtum við tvær rannsóknarniðurstöður
frá hópi lækna við John Hopkins sjúkrahúsið
þar sem sýnt var fram á með óyggjandi rökum
að dánartíðni meðal írasks almennings hafði
hækkað skelfilega frá því innrásin var gerð 2003. í
mínum augum er það eðlilegt skref fyrir ritstjóra
Lancet að fylgja þessum niðurstöðum eftir og
vekja athygli á þeim. Það er enginn munur á því
í mínum augum að vekja athygli á rannsókn sem
sýnir fram á að tiltekið lyf hefur ákveðna verk-
un og að vekja athygli á því hvað þessi ólöglegi
stríðsrekstur hefur haft hryllileg áhrif á heilsufar
og lífslíkur heillar þjóðar. Hér ættu læknar, lækna-
samtök og stofnanir þeirra að tjá sig og síðan
spyrja í framhaldinu hvað þeir geti gert til að hafa
áhrif á stefnu stjórnvalda. Kannski ættu læknar að
hafna samstarfi við stjórnvöld þeirra landa sem
taka þátt í Írakstríðinu. Afstaða lækna gæti verið
að sinna sjúklingum eins og þeim ber en hafna að
öðru leyti samstarfi við stjórnvöld sem standa í
ólöglegum og villimannslegum stríðrekstri með
þessum afleiðingum fyrir heilsufar heillar þjóð-
ar.”
Orlofsíbúð í Stokkhólmi
Orlofssjóður lækna hefur tekið á leigu fbúð við
Hornsgatan 61 í Stokkhólmi. íbúðin skiptist í tvær
stofur (þar af ein með svefnsófa), eitt svefnher-
bergi, baðherbergi, gestabaðherbergi og eldhús.
Sængur og koddar ásamt sængurverum eru fyrir
fjóra (svefnsófi og dýna í stofu meðtalin).Öll
venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, handklæði
og rúmföt fylgja íbúðinni.í íbúðinni er sjónvarp
með mörgum stöðvum.Þráðlaust internet er í
íbúðinni.
íbúðin er leigð frá 7. júlí til 1. september 2007
í viku í senn frá kl. 17 á laugardegi til kl. 15 næsta
laugardag á eftir. Vikan kostar 35 þúsund og 36
orlofspunkta. Lyklar eru afhentir á skrifstofu
læknafélaganna Hlíðasmára 8 Kópavogi.
Leigutaki skuldbindur sig til að fara vel og
þrifalega með hið leigða húsnæði. Ekki er heimilt
að reykja í íbúðinni og virða skal almennar hús-
reglur eins og að læsa ávallt útidyrum og ekki vera
með hávaða seint á kvöldin o.s.frv.
í búðin er vel staðsett á Södermalm í Stokkhólmi,
hún er umkringd kaffihúsum, veitingahúsum og
verslunum.Hún er í göngufæri við neðanjarðarlest
(Mariatorget), baðströnd (langholmen) og Gamla
Stan.Hún er nálægt Södersjukhuset (10 mín.
ganga), 7 km frá Karolinska og 20 km frá hudd-
inge Universitessjukhuset.
Hægt er að panta íbúðina á orlofsvefnum einn-
ig er hægt að hafa samband við skrifstofu lækna-
félaganna ef þið getið nýtt ykkur þennan kost en
fyrstur kemur fyrstur fær.
566 Læknablaðið 2007/93