Læknablaðið - 15.07.2007, Side 43
UMRÆÐA.& FRÉTTIR / VIÐURKENNING
Islenskur læknanemi
Hlaut viðurkenningu á
norrænu lungnalæknaþíngi
Læknaneminn Ólöf Birna Margrétardóttir hlaut
verðlaun á þingi norrænna lungnalækna í Uppsala
í Svíþjóð dagana 26.-28. apríl fyrir veggspjald er
hún gerði um langvinna lungnateppu og CRP en
hún vann verkefnið undir stjórn lungnalæknanna
Þórarins Gíslasonar og Gunnars Guðmundssonar,
Bryndísar Benediktsdóttur heimilislæknis og
ísleifs Ólafssonar, yfirlæknis rannsóknarstofu
LSH.Sambýlismaður Ólafar, Sigurður James
Þorleifsson, sem einnig er læknanemi, var höf-
undar annars veggspjalds er sýnt var á þinginu
og er unnið upp úr sömu rannsókn. „Hann hefði
nú alveg eins getað unnið verðlaunin,” segir Ólöf
og vill að það komi skýrt fram að þau hafi unnið
saman að rannsóknarverkefninu og eigi jafnan
þátt í niðurstöðunum.
Ólöf og Sigurður James voru að ljúka 4. ári
í læknisfræði í vor en þetta var 3. árs rannsókn-
arverkefnið þeirra.
Benda má á að í síðasta tölublaði Læknablaðs-
ins voru birtar niðurstöður rannsóknar þeirra Þór-
arins, Bryndísar og Gunnars en Ólöf og Sigurður
voru starfsmenn við rannsóknina og fengu að sögn
Ólafar að nota gögn úr rannsókninni til að vinna
veggspjöldin. „Við byrjuðum að vinna við þessa
rannsókn þegar við vorum á 2. ári og þetta hefur
verið ótrúlega góður og lærdómsríkur skóli og
frábært að vinna undir leiðsögn þeirra Þórarins
og Bryndísar. Þau hvöttu okkur áfram og leyfðu
okkur síðan að kynna niðurstöðurnar á heim-
ilislæknaþingi í nóvember í fyrra og síðan vorum
við með fyrirlestur á þingi um líf- og heilbrigðisvís-
indi í janúar og loks veggspjöldin tvö í Uppsala í
aprfl. Við Siggi gerðum einnig saman veggspjald
sem sýnt var í þingi amerískra lungnalækna í San
Francisco í maí en þá gátum við ekki farið því við
vorum á kafi í prófum.”
Ólöf segir að það hafi sannarlega verið gaman
að hljóta verðlaunin á þinginu í Uppsala. „Þetta
var alveg óvænt en þarna voru sýnd 27 vegg-
spjöld og þrjú þeirra voru valin til viðurkenning-
ar. Dómnefndin var skipuð þremur læknum frá
Norðurlöndunum en við vissum ekki að stæði til
að veita verðlaun fyrr en við komum á staðinn.”
Vinna Ólafar og Sigurðar við rannsóknina
við langvinnri lungnateppu fólst í að taka blóð-
prufur, taka blásturspróf og leggja spurningalista
fyrir þátttakendur.„Okkur stóð til boða að nota
blóðprufurnar og blástursprófin við rannsókn-
arverkefni okkar og unnum það undir handleiðslu
Þórarins og Bryndísar.
Rannsóknarverkefni okkar sérstaklega var að
mæla CRP og Interleukin-6, frumuboðefni í blóð-
sermi, sem við fengum mælt fyrir okkur úr þeim
prufum sem teknar höfðu verið vegna lungna-
teppurannsóknarinnar.Við lásum síðan heilmikið
af greinum og öllu efni sem við komumst yfir til að
vinna verkefnið og skila því á 3. ári.”
Sigurður segir að þau stefni að því að skrifa
grein í sumar byggðaá niðurstöðunum og fá
hana birta í góðu alþjóðlegu tímariti. „Gögnin
sem liggja fyrir eftir rannsóknina eru gríðarlega
umfangsmikil og hægt að vinna heilmikið úr þeim
ennþá,” segir Ólöf Birna að lokum.
Hávar
Sigurjónsson
Læknablaðið 2007/93 567