Læknablaðið - 15.07.2007, Page 58
MINNISBLAÐIÐ
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir
handrita til ritstjórnar Lækna-
blaðsins, Hlíðasmára 8,201
Kópavogi. Annað án nafna
höfunda, stofnana og án þakka
sé um þær að ræða. Greininni
fylgi yfirlýsing þess efnis að
allir höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir
afsali sér birtingarrétti til
blaðsins.
Handriti skal skilað með tvö-
földu línubili á A-4 blöðum.
Hver hluti skal byrja á nýrri
blaðsíðu í eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Agrip og heiti greinar á ensku
• Agrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og myndir skulu vera
á ensku eða íslensku, að vali
höfunda.
Tölvuunnar myndir og gröf
komi á rafrænu formi ásamt
útprenti.Tölvugögn (data) að
baki gröfum fylgi með, ekki
er hægt að nýta myndir úr
PowerPoint eða af netinu.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi með
útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
www.laeknabladicl.is/bladid
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. undanfarandi mánaðar
nema annað sé tekið fram.
Ráðstefnur og fundir
8.-11. ágúst
Askja, nátturufræðahús Háskóla íslands
Heiti: Cerebral amyloid angiopathy: emerging
concepts.
www.yourhost.is/caa2007
21.-23. september
Vín, Austurríki.
5. heimsþingið um: Men’s Health
and Gender WCMH.
www.wcmh.info
31. júlí til 4. ágúst
í Akkra í Gana
Alþjóðleg ráðstefna sem
félagið Ghana Women’s Medical and Dental
Practitioners stendur fyrir og ber
heitið “Women in the world of medicine”.
www.mwiainghana.org/index.html
12.-15. september
Reykjavík.
Norræn gigtlækningaráðstefna:
www.reuma2007.com
6. október
Akureyri.
Haustþing Læknafélags Akureyrar og
Hjúkrunarfélags íslands, Norð-austurdeildar.
Smitsjúkdómar
18.-21. maí 2008
Reykjavík.
Norræn ráðstefna um illa meðferð á börnum:
Börn og vanræksla: Þarfir - skyldur - ábyrgö.
www.congress.is/nfbo2008
Tilkynning um breytingu á stjórn Félags íslenskra barnalækna.
Á aðalfundi Félags íslenskra barnalækna sem haldinn var 7. maí 2007, lét Sigurveig Þ.
Sigurðardóttir af formennsku. Nýr formaður er Ragnar Bjarnason. Áfram í stjórn sitja Hörður
Harðarson ritari og Ragnheiður Elísdóttir gjaldkeri.
Netföng stjórnarmeðlima eru eftirfarandi:
Ragnar Bjarnason formaður ragnarb@Umdspimli.is
Hörður Harðarson ritari hordursh@landspitalLis
Ragnheiður Elísdóttir gjaldkeri ragnheidur.elisdoUir@mhb.hg.is
Sumarlokun á skrifstofu
Læknablaðsins
Ritstjórnarskrifstofa Læknablaðsins verður lokuð frá og með 6. júlí - 8. ágúst
vegna sumarleyfa starfsfólks.
Næsta blað kemur út byrjun september.
www.laeknabladid.is
582 Læknablaðið 2007/93