Læknablaðið - 15.09.2009, Side 9
RITSTJÓRNARGREI
N A R
Siðfræðidálkur
Ástríður
Stefánsdóttir
astef@hi.is
Stefán
Hjörleifsson
stefan. hjorleifsson@isf. uib. no
Ástríður er læknir
og M.A. í heimspeki við
menntavísindasvið HÍ.
Stefán er heimilislæknir,
Dósent vid háskólann í Björgvin
og aðjúnkt við HÍ.
Ethical case
discussion
Ástríður Stefánsdóttir,
MD, MA
Associate professor
University of lceland
Stefán Hjörleifsson,
MD, Phd,
University of Bergen
Ritstjórn Læknablaðsins hefur hug á að efla umræðu
innan stéttarinnar um siðferðileg álitamál. í því
skyni voru undirrituð fengin til að hrinda úr vör
og ritstýra siðfræðidálki sem ætlunin er að birtist í
nokkrum tölublöðum á ári fyrst um sinn.
Uppsetning siðfræðidálksins verður með þeim
hætti að fyrst verður kynnt tilfelli í stuttu máli
en síðan fylgja hugleiðingar sem hafa almenna
siðfræðilega og læknisfræðilega skírskotun en
vísa jafnframt beint eða óbeint í tilfellið sem kynnt
hefur verið. Þetta fyrirkomulag er sambærilegt
við það sem lesendur þekkja úr dálkunum Tilfelli
mánaðarins og Sjúkratilfelli með yfirliti.
Tilfellin munu vonandi flest koma frá íslenskum
læknum og viljum við hvetja lesendur til að
miðla okkur reynslusögum sem veita tilefni til
siðfræðilegrar umræðu. Sönnum tilfellum verður
breytt til að tryggja persónuvernd læknis og
sjúklings. Af sömu sökum verður heimildarmaður
hvers tilfellis ekki nafngreindur. Einnig má
búast við að skáldaleyfi verði stundum nýtt í
framsetningu tilfellanna umfram það sem þarf
til að tryggja nafnleynd ef það stuðlar að auknu
fræðslu- og umræðugildi. Við leggjum þó áherslu
á samvinnu og samráð við heimildarmann í allri
úrvinnslu. Verklagsreglum Læknablaðsins varðandi
nafnleynd verður að sjálfsögðu fylgt. Hugleiðing
sem fylgir tilfellinu er á hinn bóginn skrifuð af
lækni eða öðrum sem varpað geta ljósi á söguna
og birtist hún undir nafni.
Þessum dálki er ætlað að efla málefnalega
umræðu um siðferðilegar hliðar læknisstarfsins.
Er það gert til að vekja lækna til umhugsunar um
þau fjölmörgu siðferðilegu álitamál sem mæta
þeim í daglegu starfi. Umfjöllun sem þessi er
einnig leið fyrir starfandi lækna til að miðla sín
á milli hugsunum og reynslu af erfiðum málum
í daglegu starfi. Mun slíkt vonandi stuðla að
góðu siðferði meðal íslenskra lækna og góðum
lækningum. Það þýðir þó ekki að ritstjórar
dálksins eða höfundar hugleiðinganna sem fylgja
hverju tilfelli geti leyst öll þau siðferðilegu álitamál
sem fjallað verður um. Sjónarmið þau sem kynnt
verða hljóta að vera umdeilanleg. Engu að síður
er mikilvægt fyrir lækna að hafa vettvang þar sem
hægt er að miðla hugmyndum og þróa áfram í
opinni umræðu þann sameiginlega siðferðilega
grunn sem starf okkar hlýtur að byggja á. Veitið
þeim sem hefja umræðuna því málefnalegar
móttökur, skarpskyggni okkar allra og mannúð til
framdráttar!
Fyrsta tilfellið sem kynnt er í þessu tölublaði
Læknablaðsins var valið með það fyrir augum að
vekja athygli lesenda á auknu algengi keisara-
skurðar og þeim vanda sem upp kemur þegar
faglegt mat læknisins annars vegar og ósk sjúkl-
ings hins vegar fara ekki saman.1 í hugleiðingun-
um sem fylgja tilfellinu hefur verið kosið að beina
athyglinni ekki aðeins að þeim hættum sem þessi
aðgerð hefur í för með sér heldur ekki síður að
álitamálum varðandi samskipti læknis og sjúkl-
ings þegar rætt er hvort keisaraskurður skuli
framkvæmdur eða ekki.
Þessar áherslur eru til marks um þá sannf æringu
ritstjóra siðfræðidálksins að lækningar séu í eðli
sínu siðferðileg iðja, að sérhvert verk sem læknar
inni af hendi reyni á siðferðilega dómgreind
þeirra, og að siðfræðin eigi erindi irtn í alla
afkima læknisfræðinnar. Við tökum undir orð
heimspekingsins Vilhjálms Árnasonar í bókinni
Siðfræði lífs og dauða: „Heilbrigðisþjónusta er
siðferðileg í grunninn en ekki aðeins vegna
tilfallandi vandamála sem kunna að steðja að
vegna tækninýjunga"2 og þá skoðun Vilhjálms að
hlutverk siðfræðinnar gagnvart læknisfræðinni
sé ekki síður að fjalla um siðferðileg álitamál sem
varða „dagleg samskipti starfsfólks og sjúklinga"
heldur en „stóru málin" sem oftar er slegið upp í
fjölmiðlum.2
Jafnframt eru þessar áherslur í samræmi við
þá stefnu sem tekin hefur verið varðandi siðfræði
við læknadeild Háskóla íslands, en þar fer
siðfræðikennsla fyrir læknanema nú fram innan
nýs og metnaðarfulls námskeiðs í samskiptafræði
og klínískri aðferð3 þar sem gengið er út frá því
að færni í samskiptum og beiting siðferðilegrar
dómgreindar séu órjúfanlegir þættir í klínískri
læknisfræði.
Heimildir
1. Steingrímsdóttir Þ, Stefánsdóttir Á. Siðfræðidálkur.
Læknablaðið 2009; 95: 613-5.
2. Árnason V. Siðfræði lífs og dauða. 2 ed. Háskólaútgáfan,
Reykjavík 2004.
3. Sigurjónsson H. Læknavísindin eru hluti af læknislistinni.
Viðtal við Bryndísi Benediktsdóttur. Læknablaðið 2008; 94:
397-9.
LÆKNAblaðið 2009/95 557