Læknablaðið - 15.09.2009, Blaðsíða 38
FRÆÐIGREINAR
Y F 1 R L 1 T
Mynd 4. FLAIR myndröð (A) sýnir stóra virka bletti, með bjúg umhverfis og T1 mynd
(B) sýnir hálfhringlaga skuggaefnisupphleðslu íjöðrum sömu bletta eftir gjöf Gadolinium
skuggaefnis í æð.
Mynd 5. FLAIR mynd (A)
sýnir dæmigerða dreifingu
bletta hornrétt á hliðarhólf
og T1 mynd (B) sýnir að
hluta til að um "black holes"
eða gamla bletti er að ræða.
myndum. Ekki eru sterk tengsl á milli fjölda
breytinga og líkamlegrar fötlunar.37 MRI-rann-
sóknin getur staðfest útbreiðslu MS-bletta í bæði
tíma og rúmi.
Stundum finnast dæmigerðar MS-breyting-
ar á MRf hjá þeim sem eru rannsakaðir vegna
óskyldra sjúkdóma (til dæmis höfuðverkja). Nýleg
rannsókn38 fylgdi 30 slíkum eftir í fimm ár og á
þeim tíma fengu 37% (11/30) þeirra dæmigerð MS
einkenni.
2. Sjónhrifrit endurspeglar leiðni í sjóntaugum
og sýnir dæmigerða töf í kjölfar sjóntaugabólgu.
Þegar merki finnast við skoðun um eirin MS-blett
(til dæmis í heilastofni eða mænu) getur óeðlilegt
sjónhrifrit staðfest tilvist annars bólgubletts
(útbreiðsla í rúmi). Sjónhrifrit25 er gagnlegast
við greiningu MS þegar um er að ræða primary
progressive sjúkdómsmynd og þurfa þá einnig að
sjást MRI-breytingar.
3. Mænuvökvi. Oligoclonal-bönd (sem ekki eru í
serum) sjást við hvers konar bólgu í miðtaugakerfi
og finnast hjá um 90% sjúklinga með MS.39 Böndin
hafa mesta þýðingu við greiningu MS, eftir aðeins
eitt kast (CÍS) og við primary progressive MS.25
Rannsókn á 52 sjúklingum með CIS40 fann að 63%
(33/52) voru með oligolonal-bönd og sex árum
síðar hafði MS greinst hjá 97% (32/33) þeirra, í
samanburði við 16% (3/19) þeirra sem ekki voru
með böndin. Rannsókn á sjúklingum með primary
progressive sjúkdómsmynd41 (n=943) sýndi að 79%
höfðu jákvæðan mænuvökva (oligoclonal bönd,
aukin IgG index eða aukirtn myndxmarhraði IgG)
við eða skömmu eftir greiningu.
4. Blóðprufur hjálpa við útilokun á öðrum
sjúkdómum, þegar einkenni eru ódæmigerð fyrir
MS32 eða önnur einkenni sjást (útbrot, liðeinkenni
og fleira).
Gangur sjúkdómsins
Algeng flokkun MS byggir á alvarleika, tíðni
einkenna og hve hratt sjúkdómurinn versnar.
Þannig er MS skipt í tvo meginflokka, relapsing
remitting1 og chronic progressive.2-4 Horfur MS-
sjúklinga tengjast þessum flokkum og þeir
hafa verið notaðir til að velja einstaklinga í
lyfjarannsóknir.42
1) Relapsing remitting MS - endurtekin köst, einkennin jafna
sig að hluta eða öllu leyti og versna ekki milli kasta.
2) Secondary progressive MS - byrjar sem relapsing remitting en
svo tekur við stöðug versnun, með eða án kasta.
3) Progressive relapsing MS - stöðug versnun einkenna frá
upphafi sjúkdómsins með köstum á milli. Versnun heldur
áfram milli kastanna.
4) Primary progressive MS - einkennin versna jafnt og þétt
frá byrjun, án kasta. Greining á þessari mynd sjúkdómsins
er erfiðust og mikilvægt er að mænuvökvi sýni merki um
bólgu í miðtaugakerfi (oligoclonal bönd) og sýna þarf fram á
bæði dreifingu í rúmi (MRI-skilmerki uppfyllt eða óeðlilegt
sjónhrifrit) og í tíma (MRI-skilmerki uppfyllt eða vaxandi
fötlun í eitt ár).43
Greiningarskilmerki
Alþjóðleg greirdngarskilmerki hafa verið þróuð
á síðustu áratugum og eru mjög gagnleg
við rannsóknir á MS. Þau nýjustu eru frá
2001 (McDonald Criteria)25- 44 og byggja þau á
einkennum sjúkdómsins og taka einnig með MRI-
breytingar, og gera meðal annars kleift að greina
MS eftir aðeins eitt klínískt kast (CIS). McDonald-
skilmerki byggjast á því að bæði sé hægt að
staðfesta útbreiðslu sjúkdómsins í tíma og í rúmi.
Alltaf er mikilvægt að tryggja að aðrir sjúkdómar
séu ólíklegir.
a) Útbreiðsla í rúmi er staðfest ef að minnsta kosti þrjár af
eftirtöldum fjórum gerðum MS-bletta sjást á MRI: i) einn
blettur sem hleður gadolinium eða níu T2-blettir, ii) einn
blettur neðan tentorium, iii) einn blettur aðlægt cortex, iv)
þrír blettir aðlægt heilahólfum. Einn blettur í mænu jafngildir
586 LÆKNAblaðið 2009/95