Læknablaðið - 15.09.2009, Blaðsíða 46
UMRÆÐUR O G
ENDURHÆFIN
G
F R
í
É T T I R____
STYKKISHÓLMI
Markmiöið er að virkja sjúklinginn
Við St.Franciskusspítala í Stykkishólmi hefur teymi fagfólks
starfrækt háls- og bakdeild um tveggja áratuga skeið. Teymið
lýtur faglegri stjórn þeirra Jóseps Blöndal yfirlæknis og
Hrefnu Frímannsdóttur yfirsjúkraþjálfara en auk þeirra
eru í því fimm sjúkraþjálfarar, deildarhjúkrunarfræðingur,
geðhjúkrunarfræðingur í hlutastarfi, læknir í hlutastarfi og
starfsmaður á deild. Þá aðstoða hjúkrunarfræðingur og sjúkraliði
á skurðstofu við alla sprautumeðferð. Sjúkraþjálfaramir sinna
einnig meðferð sjúklinga á öðrum deildum spítalans auk
göngudeildarstarfsemi. Deildin hefur getið sér gott orð og margir
hafa fengið bót meina sinna eftir að hafa átt í langri baráttu við
þráláta háls- og bakverki sem hindrað hafa eðlileg lífsgæði.
Blaðamaður Læknablaðsins heimsótti Stykkishólm
í byrjun sumars og fræddist um starfsemina undir
leiðsögn þeirra Jóseps og Hrefnu. Það er greinilegt
að á milli þeirra er gott samstarf enda leggja
þau áherslu á að starfið sem unnið er á háls- og
bakdeildinni byggist fyrst og fremst á teymisvinnu
allra sem að koma og í því sé árangurinn fólginn.
Það eru því engin óútskýranleg kraftaverk urrnin
í Stykkishólmi þó sjúklingar fái margir hverjir
lausn, ýmist tímabundna eða varanlega.
Aðferðirnar sem beitt er em þrautreyndar
°g byggjast á alltraustum vísindalegum grunni.
Grundvöllurinn felst í endurhæfingu og þjálfun
undir stjóm sjúkraþjálfara að undangengnu mati
Jóseps sem setur upp meðferðaráætlun í lok
fyrstu heimsóknar sjúklingsins á deildina. Sjálfur
sinnir Jósep að auki fræðslu og sprautumeðferð
og stöku sinnum hnikmeðferð/hnykkingum sem
draga iðulega úr einkennum tímabundið og
auðvelda þannig sjúklingunum að stunda æfinga
prógrammið af fullum krafti. Þrettán rúm eru
í sjúkrahúsinu fyrir bakmeðferðina og eru þau
fullnýtt árið um kring og á biðlista eru stöðugt um
300 manns.
„Endurhæfingin hér gengur að miklu leyti
útá að virkja stoðvöðva hryggsúlunnar sem geta
verið að meira eða minna leyti óvirkir hjá fólki
með bak- og hálsverki. Þetta er kúnst og í það þarf
Hávar sjúkraþjálfara með reynslu. Okkar sjúkraþjálfarar
Sigurjónsson nota meðal annars sónartæki til að meta virkni
þessara vöðva. Við erum að nota aðferðir við
þjálfunina sem við höfum dregið að okkur víða
úr heiminum og megineinkennið á nálgun
okkar er opinn hugur fyrir öllu sem virkar og er
vísindalega undirbyggt og hentar því módeli sem
vinnum eftir. Við byggjum á módeli sem gengur út
frá ákveðinni sjúkdómsþróun; við getum kannski
ekki fullyrt að skilningur okkar sé hárréttur en
hann virðist gefa góða raun," segja þau.
Franciskusspítalinn í Stykkishólmi byggir
á nokkuð öðrum grunni en hefðbundin
landsbyggðarsjúkrahús þar sem það voru St.
Franciscusnunnur sem byggðu og ráku spítalann
upphaflega. Byggingin var reist á árunum 1933-
1935 og um árabil ráku nunnurnar hann einar en
síðar tóku heilbrigðisyfirvöld þátt í rekstrinum.
Nunnurnar slepptu þó ekki hendinni af honum og
unnu við spítalann endurgjaldslaust langt fram á
10. áratug síðustu aldar.
Byggingin sjálf ber metnaði vitni, sex hæðir
með heilsugæslu, skurðstofu, endurhæfingarrými,
langlegudeild fyrir 27 sjúklinga sem jafnframt
er bráðadeild, fullkominni rannsóknarstofu,
röntgendeild og skiptistofu, auk 13 rúma bak-
meðferðardeildarinnar. Tveir læknar starfa við
heilsugæsluna en Jósep starfar eingöngu við
sjúkrahúsið. Þá eru heilsugæslulæknamir í hluta-
starfi við báðar deildir sjúkrahússins og annast
bráðaþjónustuna að verulegu leyti. í allt starfa
um 70 manns við sjúkrahúsið, sem er langstærsti
vinnustaðurinn í Stykkishólmi, þótt Róbert
Jörgensen framkvæmdastjóri sjúkrahússins bendi
réttilega á að grunnskólinn sé fjölmennari og að
velta fiskvinnslufyrirtækja sé talsvert meiri þegar
hæst stendur.
Eitt dýrasta heilbrigðisvandamálið
A göngu okkar um hæðir og ganga sjúkrahússins
hefur Jósep orð á því að vinnuandinn sé einstaklega
góður og starfsaldur flestra talinn í árum ef ekki
áratugum. „Það myndast sérstakt andrúmsloft
trausts og skilnings þegar svo er," segir hartn og
heilsar sjúklingum og starfsfólki á báða bóga um
leið og hann útskýrir hver fylgdarsveinninn sé.
Bakvandamál era algengust hjá fólki á aldrinum
594 LÆKNAblaðið 2009/95