Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 4

Læknablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 4
EFNISYFIRLIT Frágangur fræðilegra greina Höfundar sendi tvær gerðir handrita til ritstjórnar Læknablaðsins, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi. Annað án nafna höfunda, stofnana og án þakka sé um þær að ræða. Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis að allir höfundar séu samþykkir lokaformi greinar og þeir afsali sér birtingarrétti til blaðsins. Handriti skal skilað með tvöföldu línubili á A-4 blöðum. Hver hluti skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtal- inni röð: • Titilsíða: höfundar, stofnanir, lykilorð á ensku og islensku • Ágrip og heiti greinar á ensku • Ágrip á íslensku • Meginmál • Þakkir • Heimildir Töflur og myndir skulu vera bæði á ensku og íslensku. Tölvuunnar myndir og gröf komi á rafrænu formi ásamt útprenti. Tölvugögn (data) að baki gröfum fylgi með, ekki er hægt að nýta myndir úr PowerPoint eða af net- inu. Eftir lokafrágang berist allar greinar á tölvutæku formi með útprenti. Sjá upplýsingar um frágang fræði- legra greina: www.laeknabladid.is/fragangur- greina Umræðuhluti Skilafrestur efnis í næsta blað er 20. hvers mánaðar nema annað sé tekið fram. 816 LÆKNAblaðið 2009/95 RITSTJÓRNARGREINAR Páll Matthíasson Viðhorf íslendinga til þunglyndis- meðferðar - tilefni til bjartsýni Viðhorf (slendinga til meðhöndlunar þunglyndis með lyfjum virðist almennt jákvæð og því jákvæðari sem fólk er betur upplýst um þunglyndismeðferð. 819 Sigurður Thorlacius Heilsufar íslenskra bænda 821 Niðurstöður þessarar rannsóknar geta verið notadrjúgar við endurskoðun á menntun bænda og slysavörnum í land- búnaði. FRÆÐIGREINAR Húnbogi Þorsteinsson, Steinn Jónsson, Hörður Alfreðsson, 823 Helgi J. ísaksson, Tomas Guðbjartsson Árangur lungnabrottnámsaðgerða við lungnakrabbameini á íslandi Hérlendis eru hvorki til rannsóknir á árangri lungnabrottnámsaðgerða né er þekkt hlutfall þeirra af heildarfjölda sjúklinga með lungnakrabbamein. Kannaður var árangur aðgerðanna, einkum snemmkomna fylgikvilla og afdrif sjúklinganna. Gunnar Guðmundsson, Kristinn Tómasson 831 Vinnuslys íslenskra bænda. Mat á áhættuþáttum með spurningalista Rannsókn þessi sýndi að vinnuslys voru algeng hjá bændum. Langar fjarvistir frá vinnu voru algengar hjá bændum sem orðið höfðu fyrir vinnuslysum. Niðurstöðurnar kalla á sértækar aðgerðir í heilsugæslu fyrir bændur. Engilbert Sigurðsson, Þórdís Ólafsdóttir, Magnús Gottfreðsson Hver eru viðhorf íslendinga til þunglyndislyfja og hvaða þættir ráða mestu um mótun þeirra? Meirihluti fullorðinna fslendinga er reiðubúinn til að taka þunglyndislyf við þunglyndi. Þeir þættir sem mestu ráða um viðhorf þeirra til lyfjameðferðar er persónuleg reynsla og reynsla nákomin- na af notkun slíkra lyfja. Elín Gunnlaugsdóttir, Ingibjörg Hinriksdóttir, Eydís Ólafsdóttir Tilfelli mánaðarins: Rautt auga sem svarar ekki meðferð 843 Valgarður Egilsson, Hannes Petersen Samvaxnir tvíburar á íslandi 847 Sagt er frá nokkrum dæmum um samvöxt tvíbura fæddra á íslandi; um fern pör mega heimildir kallast ótvíræðar; sterkar líkur benda til hins fimmta. Öll þessi fimm dæmi eru um samvöxt á búk.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.