Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 20

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 20
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Tafla I. Vinna sem unnin var þegar slys átti sér stað (prósentur). Gerð búskapar Sauðfé Kýr Blandað Annað Viðhald véla 11,4 10,3 7,4 16,1 Hreinsun útihúsa 3 2,1 1,7 0 Meðhöndlun efna og vara 3 4,1 2,5 3,2 Gengið um vinnusvæði 5,1 3,1 5,0 6,5 Viðhald og endurnýjun 15,7 24,8 15,7 9,7 Meðhöndlun búpenings* 39,8 51,5 59,5 41,9 Annað" 22 4,1 8,2 22,6 • x2 =13,6 df=3, p=0,004, "x2 =20,2, df=3, p=0,000153. læknisheimsóknar vegna, við kyn, aldur, tegund búskapar og hvort bændur hefðu einhvern tímann notað áfengi við störf. Rannsóknin var samþykkt af Vísindasiðanefnd (03-082 Heilsufar og vinnuumhverfi íslenskra bænda) og vísindasiðanefnd Háskólans í Iowa og tilkynnt til Persónuverndar. Niðurstöður Lýðfræðilegum þáttum bænda (n=1107) hefur áður verið lýst.2-3 Algengast var að um væri að ræða karlmenn (87%) yfir 50 ára aldri (51%) og voru reykingar sjaldgæfar meðal þeirra (13%). Þeir voru flestir í sambúð (83%) og 44% maka starfaði utan heimilis. Sauðfjárbændur voru 47% af hópnum, kúa- bændur 17%, með blandaðan kúa- og sauðfjár- búskap voru 21% og 15% með aðra gerð bú- skapar. Það voru svínabændur, skógarbændur og hrossabændur. Vinnuslys meðal bænda sem leiddu til þess að leitað var læknisaðstoðar voru algeng þar sem þau komu fyrir hjá 48,6% bænda. Algengust voru þau hjá þeim sem voru með blandaðan kúa- og sauðfjárbúskap (51,3%), þá hjá kúabændum (50,3%) og sauðfjárbændum (45,6%) en fátíðust hjá þeim sem voru með annan búskap (19,3%) (x2 =48,7, frelsisgráður=3, p<0,0001). Mynd 1 sýnir fjarvistir frá vinnu meira en tvær vikur vegna alvarlegasta vinnuslyssins sem bóndinn hafði orðið fyrir. Að meðaltali höfðu 18,3% bænda verið lengur en tvær vikur fjarverandi vegna vinnuslyss. Algengast var að Tafla II. Læknisheimsóknir síðustu 12 mánuði vegna nokkurra heilsufarsvandamála (prósentur). Ekki vinnuslys Vinnuslys Vöðvabólgur 17,7 24,3 X2 =5,9, df=1, p=0,015 Vefjagigt 2,4 4,7 ómarktækt Bakverkir 18,0 27,2 X2 =10,7, df=1, p<0,001 Siþreyta 4,8 7,8 ómarktækt Verkir 16,6 25,3 X2 =10,2, df=1, p<0,001 sauðfjárbændur yrðu fyrir slysum sem leiddu til svo langra fjarvista (x2 =22,6, frelsisgráður=9, p=0,0007). Tafla I sýnir við hvaða vinnu algengast var að slys yrðu hjá bændum. Meðhöndlun skepna var langalgengasta gerð vinnu sem olli slysi hjá öllum fjórum hópum bænda. Hún var algengari hjá þeim sem voru eingöngu með kúabúskap eða blandaðan búskap með kýr og kindur, það er bændur með stórgripi, en hjá þeim sem stunduðu eingöngu sauðfjárbúskap (x2 =13,6, frelsisgráður=3, p=0,004). Tafla II ber saman þá sem höfðu slasast við vinnu og þá sem ekki höfðu orðið fyrir slysum við vinnu og leituðu læknishjálpar með tilliti til ýmissa stoðkerfiseinkenna og verkja. Reyndust þeir sem höfðu slasast við vinnu oftar hafa leitað til læknis vegna þessara einkenna. Enginn munur var á hópunum með tilliti til læknisheimsókna vegna annarra slysa, þar með talið umferðarslysa, hjarta- og lungnasjúkdóma og gigtsjúkdóma. Einnig var enginn munur á geðrænum vandamálum, þar á meðal áfengissýki. Þeir sem höfðu orðið fyrir slysum voru líklegri en aðrir til að meta líkamlega heilsu lakari á Likert-kvarða 7,7 (staðalfrávik 1,7) miðað við 7,3 (staðalfrávik 1,7) t=2,94, frelsisgráður=979, p=0,003). Það sama gilti fyrir geðheilsu mælda með sömu aðferð (t=2,345, frelsisgráður=977, p=0,019). Geðheilsa var einnig verri hjá þeim sem orðið höfðu fyrir slysum þegar mælt var með GHQ-12 kvarðanum og var munur að meðaltali 0,6 (t=-2,017, frelsisgráður=966, p=0,044). Um 21% af bændum sögðust einhvern tímann hafa verið ölvaðir við störf, en það skiptist þannig að þeir sem lent höfðu í vinnuslysum höfðu verið ölvaðir við störf í 27% tilvika borið saman við að 16% þeirra sem aldrei höfðu lent í vinnuslysi höfðu einhvern tímann verið ölvaðir við störf sín (X2 =20,4, df=l, p<0,0001). Það var hins vegar ekki munur á lengd fjarveru frá vinnu í alvarlegasta slysinu eftir því hvort menn höfðu verið ölvaðir við störf eða ekki. Tafla III sýnir samband milli vinnuslysa, aldurs, tegund búskapar og hvort menn hafi unnið undir áhrifum áfengis framkallað með lógistískri aðhvarfsgreiningu. Taflan undirstrikar þrennt. Það voru bændur á aldrinum 40 til 69 ára, á búum með stórgripi og sauðfé sem voru líklegastir til að lenda í þessum slysum. Ekki var munur á körlum og konum. Að teknu tilliti til aldurs og tegundar búskapar er ljóst að þeir sem hafa verið ölvaðir einhvern tímann við störf sín eru líklegri til að lenda í slysum. 832 LÆKNAblaðið 2009/95
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.