Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 25

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 25
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Hver eru viðhorf íslendinga til þunglyndislyfja og hvaða þættir ráða mestu um mótun þeirra? Engilbert Sigurðsson12 geðlæknir Þórdís Ólafsdóttir3 lyfjafræðinemi Magnús Gottfreðsson2’4 smitsjúkdómalæknir Lykilorð: þunglyndislyf, þunglyndi, meðferð, könnun, þýðismiðuð. Tvíbirting greinar sem birtist í Nordic Journal of Psychiatry 2008; 62: 374-8. Greinin birtist hér í styttri útgáfu með leyfi útgefanda. 1Geðsviði Landspítala 2læknadeild HÍ, 3Lyfjafræði HÍ 4lyflækningasviði Landspítala. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Engilbert Sigurösson, geðsviði Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. engilbs@landspitali.is Ágrip Inngangur: Sala þunglyndislyfja jókst úr átta skilgreindum dagskömmtum (defined daily doses - DDD) á hverja 1000 íbúa árið 1975 í 95 DDD/1000 íbúa árið 2005. Markmið: Að kanna viðhorf íslendinga til meðferðar þunglyndis og greina þá þætti sem hafa ráðið mestu við mótun viðhorfa hvers og eins til notkunar þunglyndislyfja. Efniviður og aðferðir: Spurningakönnun þar sem viðhorfin voru könnuð í slembiúrtaki 2000 íslendinga á aldrinum 18 til 80 ára. Niðurstöður: Svarhlutfall var 47,3%. Níu af hverjum tíu trúðu á virkni reglulegrar líkamsrækt- ar í meðferð þunglyndis (92,6%) en stuðningsvið- töl voru í öðru sæti (82,3%). Sjö af hverjum tíu töldu þunglyndislyf virka meðferð og sama hlutfall svarenda var reiðubúið að nota þunglyndislyf ef þunglyndi herjaði á þá. Sá þáttur sem réð langmestu um vilja þátttakenda til að nota þunglyndislyf gegn þunglyndi var eigin reynsla af notkun slíkra lyfja (líkindahlutfall, OR 6.9, 95% CI 3.4 to 13.8) eða náin kynni af einhverjum sem hafði verið á þunglyndislyfjum (OR 2.3, 95% CI 1.6 to 3.3). Átta af hverjum 100 voru á lyfjameðferð við þunglyndi og 8,3% af höfðu einhvern tíma tekið slík lyf í að minnsta kosti sex vikur samfellt. Meðal þeirra sem voru á eða höfðu verið á þunglyndislyfjum töldu 77% kostina við meðferðina vega þyngra en þá ókosti eða aukaverkanir sem henni fylgdu. Meiri þekking á meðferð þunglyndis með þunglyndislyfjum hélst í hendur við jákvæð viðhorf til notkunar þunglyndislyfja (p=0,007). Ályktun: Meirihluti fullorðinna íslendinga er reiðubúinn til að taka þunglyndislyf við þung- lyndi. Þeir þættir sem mestu ráða um viðhorf þeirra til lyfjameðferðar er persónuleg reynsla og reynsla nákominna af notkun slíkra lyfja. Inngangur Bætt aðgengi að greiningu og virkri meðferð þunglyndis í heilsugæslu er eitt mikilvægasta verkefni heilbrigðisþjónustunnar um víða veröld. Á íslandi hefur sala þunglyndislyfja aukist úr átta skilgreindum dagskömmtum, DDD, á hverja þúsund íbúa árið 1975 í 95 DDD/1000 árið 2005.1 Það er er meiri sala en í nokkru öðru Evrópulandi. Ósennilegt er að þessa aukningu megi rekja til aukins algengis þunglyndis og kvíðaraskana hér á landi.2 Tryggingastofnun ríkisins (TR) greiðir um 60% af kostnaði þunglyndislyfja á íslandi. TR hefur endurtekið vakið athygli á stöðugri aukningu ávísana á tauga- og geðlyf í fréttatilkynningum og árskýrslum, stundum með áherslu á þunglyndislyf.3 Nýgengi sjálfsvíga og algengi örorku vegna þunglyndis hefur ekki dregist saman á tímabilinu 1975-20044 þrátt fyrir tíföldun í sölu þunglyndislyfja. Sjálfsvíg og örorka eru hins vegar flókin fyrirbæri þar sem margir félagslegir þættir og sálrænir aðrir en þunglyndi koma við sögu og henta því ekki vel til að meta gagnsemi lyfja gegn þunglyndi. Á síðustu þrem áratugum hefur ábendingum fyrir þunglyndislyf einnig fjölgað. Þar má nú finna lotugræðgi, tíðatengda vanlíðan og helstu kvíðaraskanir sem til samans eru ámóta algengar eða algengari en þunglyndi. Notkun utan skilgreindra ábendinga hefur einnig færst í vöxt, meðal annars þegar verkir og athyglisbrestur og ofvirkni eru til staðar. Ymsir sem hafa glímt við þunglyndi hafa lýst sektarkennd og vanlíðan vegna þess sem þeir telja neikvæða og einhliða umfjöllun fjölmiðla og TR um þennan lyfjaflokk. Viðhorf íslendinga til þunglyndislyfjameðferðar eru lítt þekkt. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna viðhorfin og hvað móti þau helst. Einnig vildum við kanna hvaða þættir spá best fyrir um vilja íslendinga á aldrinum 18 til 80 ára til að nota slík lyf við þunglyndi. Efniviður og aðferðir Við hönnuðum og forprófuðum spurningalista í þrem hlutum með alls 31 spumingu. Listinn var saminn til að kanna viðhorf og þekkingu á þunglyndislyfjameðferð. Jafnframt var upplýs- ingum um aldur, kyn, búsetu og menntun safnað LÆKNAblaðið 2009/95 837
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.