Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2009, Síða 31

Læknablaðið - 15.12.2009, Síða 31
FRÆÐIGREINAR T I L F E L LI MÁNAÐARINS Tilfelli mánaðarins: Rautt auga sem svarar ekki meðferð Tilfelli Elín Gunnlaugs- dóttir1 læknir Ingibjörg Hilmarsdóttir2 sérfræðilæknir Eydís Ólafsdóttir1 sérfræðilæknir Lykilorð: Acanthamoeba, hornhimnusýking, rautt auga. Rúmlega tvítugur, áður hraustur, karlmaður leitaði til heimilislæknis vegna verkja og roða í vinstra auga. Hann notaði augnlinsur að staðaldri. Hafin var meðferð með augndropum sem innihéldu hýdrókortisón, terramycín og polymyxín B, í vinstra auga. Tveimur vikum síðar voru engin merki um bata og leitaði hann því aftur læknis sem ávísaði augnsmyrsli með sýklalyfjum. Einkenni létu ekki undan og var honum þá vísað til augnlæknis sem framkvæmdi nákvæma augnskoðun. Sáust þá hvítir blettir á hornhimnu (mynd 1) sem fór fjölgandi næstu vikuna og mynduðu hring á hornhimnunni (mynd 2). Hvað kallast hvítu blettirnir á hornhimnunni? Hver er líklegasta greiningin? Hverjir eru áhættu- þættir þessa sjúkdóms og besta meðferð? Mynd 1. Sjúklingur hefur nberancii slímhúðarþrota og á hornhimnu við neðri brún Ijósops sést stór hvítleitur btettur, íferð (infiltrate). Mynd 2. Hornhimnuíferðum hefur fjölgað og mynda nú heilan liring. LÆKNAblaðið 2009/95 843

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.