Læknablaðið - 15.12.2009, Page 37
FRÆÐIGREINAR
LÆKNINGAR OG SAGA
Um samvöxt tvíbura
Samvöxtur tvíbura er sjaldgæf meðfædd
vansköpun sem vakið hefur áhuga frá örófi
alda, en því til vitnis eru ritaðar innlendar
heimildir sem raktar hafa verið hér að framan og
erlendar sjónlistir tengdar menningarsögunni.
Samtvinnuð þeirra sögu eru tilraunir aðskilnaðar,
árangurslausar fram að árinu 1960, en eftir það
farið batnandi þannig að annað eða bæði börnin
hafa lifað af og lengi.
Tíðni
Það að ganga með og fæða fleiri en eitt
barn er náttúrulega sjaldgæft, en náttúruleg
tíðni fjölburafæðinga á íslandi er um ein af
hverjum 90 fæðingum. Tíðni fjölburafæðinga
hefur aukist síðastliðna þrjá áratugi, samhliða
vexti í tæknifrjóvgun og er nú um ein af hverjum
50 fæðingum á íslandi og á þessi fjölgun við um
fjöleggja fjölburun.4 Náttúruleg tíðni tvíeggja
tvíburunar er breytileg eftir kynþáttum og
fjölskyldum, meðan h'ðni eineggja tvíburunar er
nokkuð regluleg og óháð fyrrnefndum þáttum og
reynist vera um ein af hverjum 250 þungunum.5
Tíðni samvaxinna tvíbura er um það bil einir
af hverjum 100.000-200.000 lifandi fæddum, en
er 100 sinnum hærri meðal andvana fæddra.
Algengara er að lifandi fæddir samvaxnir tvíburar
séu báðir kvenkyns.6
Sjúkdómafræði
Það er almennt viðurkennt að eineggja tvíburun
sé tilkomin vegna skiptingar fóstursforstiga í
tvo nákvæmlega eins hluta. Tímasetning þeirrar
skiptingar ræður umbúnaði fósturs, fyrirkomulagi
fylgju og möguleika á samvexti. Fyrsta mögulega
skiptingin gerist í frumum þyrpils (morula) og þá
glærbeltið rofnar, losnar um tvær nákvæmlega
eins kímblöðrur sem leita bólfestu og þroskast
áfram um aðskildar fylgjur og fósturhimnur (30-
40% eineggja tvíburunar). Við truflað rof glærbeltis
getur fósturkím (innri frumumassi) kímblöðrunnar
skipst upp í tvo eins hluta, sem þá þroskast áfram
í sér fósturhimnum en um sömu fylgju (60-70%
eineggja tvíburunar). Ef fósturvísirinn skiptir sér
síðar, það er á skeiði tvílaga fóstursvísisdisks að
tíma myndunar frumlínunnar (linea primitiva),
deila fóstrin himnum og fylgju. Samkvæmt
þessu er það tími og þroskastig fóstursvísis þegar
skipting gerist sem mestu ræður um samvöxt
tvíbura. Þar sem frumlína ákvarðar upphaf
ásskiptingar fósturs er Ijóst að skipting samvax-
inna tvíbura gerist eftir þann tíma; en hvers vegna
fullkominn aðskilnaður á sér ekki stað, er ekki
þekkt en hugsanlega eru það þættir úr umhverfi Teikning: Hannes Petersen.
(teratogen) sem koma þar að. Því til stuðnings er
algengi annarra (samhliða) vanskapnaða þannig
að í næstum öllum tilfellum samvaxinna tvíbura
eru annar eða báðir einstaklingarnir með einhvers
konar vanskapnað er tekur til líffæra og/eða
útlits. Hvort áhrif þessara þátta verða um veg
ófullkomins aðskilnaðar eða óeðlilegs samvaxtar
er ekki þekkt.7
Hinar ýmsu gerðir samvaxta tvíbura
Samvöxtur tvíbura getur verið samhverfur eða
ósamhverfur, en í því síðamefnda er þroskun
annars tvíburans ófullkomin. Ekki er samstaða
um flokkun samvaxinna tvíbura og er hún því
mismunandi og að sama skapi flókin. Hinir ýmsu
flokkar enda gjarnan á 'pagus' sem er gríska og
þýðir 'það sem er saman' en fyrri hlutinn vísar
LÆKNAblaðið 2009/95 849