Læknablaðið - 15.12.2009, Page 38
FRÆÐIGREINAR
LÆKNINGAR OG SAGA
til hvar á líkamanum tvíburarnir eru samvaxnir.
Algengustu flokkar samvaxinna tvíbura eru
brjóstholssamvöxtur (thoracopagus), mynd 1,
og er þannig samvöxtur 60-90% samhverfra
samvaxinna tvíbura, kviðarholssamvöxtur
(omphalopagus), mjaðmasamvöxtur að aftan
(pygopagus), mjaðmasamvöxtur að framan
(ischiopagus) og höfuðsamvöxtur (craniopagus).
Gangur
í venjubundinni fósturskimun (ómskoðun) á
meðgöngu má greina samvöxt tvíbura, sérstaklega
eftir 18 viku. Með segulómun (MRI) má fá enn
fullkomnari mynd af samvextinum og hvernig
einstök líffærakerfi eru gerð og hver tengsl þeirra
eru milli tvíburanna. Þessi fósturgreining er að
auki mikilvæg í ljósi ráðlegginga til foreldra og
úrlausnar þeirra sem fastir eru saman, en vert er
að undirstrika að um tvo einstaklinga er að ræða
og því afar viðkvæm siðferðileg álitamál sem taka
þarf tillit til.
Heimildir
1. Annales islandici posteriorum sæculorum, Annálar 1400-
1800. Útgáfa Hins íslenska bókmenntafélags, Reykjavík 1922
og áfram.
2. Annáll nítjándu aldar. Séra Pétur Guðmundsson í Grímsey
safnaði. Útgefinn af Hallgrími Péturssyni, Akureyri 1912 og
áfram.
3. Handrit varðveitt á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum, AM 208 8vo. Sjá einnig: Davíðsson Ó. Sunnanfari, III
23. Reykjavík 1893.
4. Fæðingaskráning landlæknisembættisins 2006.
5. Martínez-Frías ML. Epidemiological and clinical analysis of
a consecutive series of conjoined twins in Spain. J Ped Surg
2009; 44: 811-20.
6. Rabeeah A. Conjoined twins - past, present future. J Ped Surg
2006; 41:1000-4.
7. Kaufman MH. The embryology of conjoined twins. Childs
Nerv Syst 2004; 20: 508-25.
>-
0C
<
2
5
3
W
Conjoined twins. Historical review
Conjoined twinning is a rare and complex malformation
of the newborn. In this study an attention is drawn to
reports published in lcelandic historical logs. There are
four examples of definite conjoined pairing and one
uncertain. An embryologic background of conjoined
twinning is introduced and new view of it’s pathogenesis,
are proposed.
(/}
— Egilsson V, Petersen H.
^ Conjoined twins. Historical review. Icel Med J 2009; 95: 847-50.
Z Correspondence: Hannes Petersen hpet@hi.is
111
850 LÆKNAblaðið 2009/95