Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 49

Læknablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 49
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR LYFJARANNSÓKNIR ferðarleiðir við fjölmörgum sjúkdómum. Að baki þessum rannsóknum liggur oft áratuga vinna. Lyfjafyrirtækin leita til lækna um að framkvæma klínískar rannsóknir á lyfjunum en það er forsenda þess að þau fáist samþykkt af lyfjastofnun og markaðssett. Það er ekkert launungarmál hvers vegna lyfjafyrirtækin vilja framkvæma þessar rannsóknir. Það er til að geta selt lyfin og á endanum hagnast á því. En á móti má segja að án þessara rannsókna hefðu orðið litlar framfarir í meðferð margra sjúkdóma sem við teljum sjálfsagt að meðferð sé til við í dag. Ég nefni sem dæmi blóðþynningarlyf við kransæðastíflu, þunglyndislyf og sýklalyf. Þetta eru framfarir sem hafa leitt til bættra lífsgæða og dregið úr dánartíðni í sumum tilfellum. Rannsóknirnar eru því forsenda framfara og þess yegna hagsmunamál bæði lækna, lyfjafyrirtækja og almennings. Við læknarnir gegnum hins vegar lykilhlutverki bæði gagnvart lyfjaframleiðendunum en ekki síður gagnvart skjólstæðingum okkar, sjúklingunum. Okkur ber skylda til að sjá til þess að rannsóknarspurningamar séu þess eðlis að þær dragi ekki taum lyfjafyrirtækisins. Við verðum að tryggja að fagleg sjónarmið séu framar markaðssjónarmiðum og að það sé tryggt að neikvæðar niðurstöður af rannsóknum verði birtar ekki síður en þær jákvæðu. Við verðum að gæta þess að sjálfstæði okkar og fagmennska séu ávallt hafin yfir allan vafa. Þessu hefur verið lýst sem dansi okkar læknanna við broddgölt. Að geta stigið réttu sporin án þess að stinga okkur. Af þessu ástæðum vilja sumir læknar ekki undir neinum kringumstæðum eiga nein samskipti við lyfjafyrirtæki. Ég tel hins vegar að ávinningurinn af góðu samstarfi við lyfjafyrirtæki sé margfaldur og í rauninni er engin ástæða til að ætla annað en þau geti verið með eðlilegum hætti og í samræmi við allar gildandi reglur. Það skiptir verulegu máli hvemig staðið er að greiðslum fyrir rannsóknarvinnu og mikilvægt að læknirinn sé ekki fjárhagslega háður tekjum af lyfjafyrirtækinu. Þetta er yfirleitt gert með samstarfssamningi milli lyfjafyrirtækisins og vinnuveitanda lækn- isins, sjúkrahúss eða heilsugæslu, þar sem greiðslur ganga til vinnuveitandans, og hann veitir lækninum síðan svigrúm til að vinna að rannsókninni í vinnutíma. Afgangur ef einhver verður rennur til rannsóknarsjóðs til að fjármagna eigin rannsóknir læknis eða viðhaldsmenntunar hans." Aðspurður um hvers virði það sé fyrir íslenska lækna að taka þátt í klínískum lyfjarannsóknum segir Karl svarið ótvírætt. „Stórar fjölþjóðlegar rannsóknir eru yfirleitt leiddar af fremstu vís- indamönnum heims í viðkomandi grein. Það er mikill ávinningur fyrir okkur íslensku læknana að taka þátt í slíku samstarfi. Þannig komumst við í tæri við nýjustu framfarir í hverri grein og þetta hefur mikið gildi í símenntun lækna. Um leið skapast persónuleg kynni og samskipti við einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar viðurkenningar erlendis. Slík tengslamyndun hefur oft komið íslenskum sjúklingum til góða við úrlausn klínískra vandamála. Hér uppi á íslandi er alltaf hætta á því að einangrast faglega og mikilvægt að grípa tækifærin sem bjóðast til að viðhalda tengslunum út í heim þar sem flestir íslenskir læknar hafa fengið sérfræðimenntun sína." LÆKNAblaðið 2009/95 861
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.