Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2009, Page 51

Læknablaðið - 15.12.2009, Page 51
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR LYFJARANNSÓKNIR rannsókna á nýjum lyfjum. „Þetta veldur því að lyfjafyrirtækin verða að framkvæma tvær eða fleiri rannsóknir á sama lyfinu til að fá það samþykkt í viðkomandi landi. Ég nefni sem dæmi að í Bandaríkjunum er gerð sú krafa að ný lyf séu borin saman við lyfleysu en í Evrópu þykir það ekkert sérstaklega trúverðugt heldur er krafan sú að nýja lyfið sé borið saman við þau lyf sem fyrir eru. Þar verður að sýna fram á að nýja lyfið sé í rauninni betra en gömlu lyfin." Gleymist að snúa jöfnunni við Hjörleifur segir að vangaveltur um að klínískar lyfjarannsóknir sem framkvæmdar eru í öðrum heimshlutum séu á einhvern hátt ótrúverðugri en þær sem gerðar eru á Vesturlöndum séu ekki á rökum reistar. „í fyrsta lagi er aðferðafræðin nákvæmlega sú sama og því er fylgt eftir af sömu nákvæmni og við allar rannsóknir sem GSK stendur að. í öðru lagi liggur einnig í augum uppi að þegar farið er út í svo gríðarlega kostnaðarsamar rannsóknir þar sem stórkostlegir hagsmunir fyrirtækisins eru í húfi, bæði til skemmri og lengri tíma, þá er þess gætt mjög vandlega að ekki sé hægt að véfengja niðurstöður vegna framkvæmdar rannsóknarinnar. Þá meg- um við heldur ekki gleyma því að klínískar lyfjarannsóknir sem framkvæmdar eru í Asíu eða Afríku eiga fyrst og fremst við þau heimssvæði. Það er búið að rannsaka svo mörg lyf og lyfjaflokka á Vesturlöndum. Þar eru klínískar lyfjarannsóknir kornnar á annað stig og oft mun sérhæfðara. Það gleymist stundum í þessari umræðu að snúa jöfnunni við því niðurstöður margra af þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið á Vesturlöndum eiga alls ekki við í Asíu eða Afríku. Þar verður að gera hliðstæðar rannsóknir alveg frá grunni þar sem samfélögin eru gerólík okkar og ýmsir sjúkdómar landlægir sem við þekkjum ekki." Hjörleifur segir ekki vafa á því að íslenska heilbrigðiskerfið tapi á því ef hér eru ekki stundaðar klínískar lyfjarannsóknir. „Tapið er faglegt þar sem klínískar lyfjarannsóknir veita tækifæri til að nota lyf sem ekki eru komin á almennan markað en eru engu að síður komin á það stig að vænta má betri árangurs en af eldri lyfjum. Við missum því af tækifæri til nota það nýjasta og besta sem lyfjaiðnaðurinn býður hverju sinni. Þá er tapið beinlínis fjárhagslegt því klínískum lyfjarannsóknum fylgir talsvert fjármagn frá lyfjafyrirtækjunum og það kemur heilbrigðiskerfinu til góða á ýmsan hátt. Þeir fjármunir renna þó ekki til einstakra lækna heldur fara í vísindasjóði eða til heilbrigðisstofnana sem ráðstafa þeim eftir ákveðnum reglum. íslenskir læknar missa einnig af mikilvægu tækifæri til samstarfs við fremstu vísindamenn heimsins sem leiða oft stórar fjölþjóðlegar klínískar lyfjarannsóknir og kannski þegar til lengri tíma er litið er tapið alvarlegast á þessu sviði því í gegnum stórar fjölþjóðlegar rannsóknir myndast mikilvæg tengsl milli lækna og rannsóknarsetra." Hjörleifur segir að lokum að eina leiðin til þess að GSK styrki klínískar lyfjarannsóknir á íslandi sé ef héðan komi tillögur að rannsóknaráætlunum sem yfirstjórn fyrirtækisins telji nægilega áhuga- verðar eða mikilvægar til að leggja fjármagn í. „Eg bind vonir við að samhliða byggingu nýs háskólasjúkrahúss verði mótuð ákveðin rann- sóknarstefna af hálfu sjúkrahússins sem gerir ráð fyrir að markvisst verði sótt til lyfjafyrir- tækjanna eftir klínískum lyfjarannsóknum." „Lyfjafyrirtækin líta á Vesturlönd sem mettaðan markað og beina því sjónum sínum, bæði hvað varðar markaðifyrir lyf og rannsóknarvinnu, til annarra landa, svo sem Kína, lndlands og Brasilíu/'segir Hjörleifur Þórarinsson framkvæmdastióri Glaxo- SmithKline á lslandi. LÆKNAblaðið 2009/95 863

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.