Læknablaðið - 15.12.2009, Side 61
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
GEÐHEILSA LÆKNA
Rannsaka vinnuánægju, lífsánægju
og geðheilsu íslenskra lækna
Á fyrrihluta næsta árs verður framkvæmd
umfangsmikil rannsókn hérlendis á vinnu-
ánægju, lífsánægju og geðheilsu íslenskra
lækna með áherslu á tengsl við starf og
starfsumhverfi. Rannsóknin er framkvæmd af
íslenskum læknanema á rannsóknarbraut við
Oslóarháskóla, Ingunni Bjarnadóttur Solberg,
undir handleiðslu prófessors Reidars Tyssens
við deild atferlisvísinda í læknisfræði.
Fyrirmynd þessa verkefnis er stór langtímarann-
sókn sem deild atferlisvísinda og norska lækna-
félagið hófu árið 1993 þar sem 1000 norskum
læknum og læknastúdentum hefur verið fylgt
eftir í 15 ár. Tyssen hefur umsjón með þessari
rannsókn og hafa verið birtar á sjötta tug greina í
vísindalegum tímaritum sem hafa veitt mikilvægar
upplýsingar um geðheilsu lækna, starfsánægju og
fleira.1
Meginniðurstöður Tyssens og samstarfsmanna
hans eru þær að geðheilsu norskra lækna er
almennt svipað farið og Norðmanna almennt en
þó eru nokkur mikilvæg frávik. Tíðni þunglyndis
og sjálfsmorða er allt að tvöfalt hærri meðal
læknanna en almennings og tengsl geðrænna
vandamála við litla stjórn á vinnuumhverfi,
tímapressu og krefjandi sjúklinga koma skýrt fram.
Munur á milli kynja er lítill framan af starfsferli
læknanna en margt bendir til þess að fleiri konur
en karlar lendi í vanda síðar á starfsferlinum.
Læknarnir taka sér sjaldan veikindaleyfi og nýta
sér síður þjónustu heilbrigðiskerfisins en allur
almenningur. Sjálfsmeðhöndlun er algeng, jafnvel
við geðrænum vandamálum.
I samtali Læknablaðsins við Tyssen og Ingunni
kemur fram að ekki er sjálfgefið að rannsókn á
geðheilsu, starfsánægju og lífsánægju íslenskra
lækna skili sömu niðurstöðum og í Noregi, og
verður fróðlegt að sjá hverjar þær verða.
Tyssen segir að í Noregi hafi læknafélagið opnað
meðferðarstöð fyrir lækna og hjúkrunarfræðinga,
svokallað Low threshold facility (Villa sana við
sjúkrahúsið Modum bad) þar sem þeir geta leitað
með stuttum fyrirvara og án tílvísunar og fengið
meðferð/ráðgjöf í 1-7 daga eftir óskum og þörfum
hvers og eins.
„Það er ljóst að ákveðin einkenni eru algengari
en önnur meðal lækna, og þetta höfum við tengt
við krefjandi starfsumhverfi en þetta snýr einnig
að persónugerð lækna. Þar eru einkenni eins og
ofurnæmi, fullkomnunarþörf, viðkvæmni fyrir
gagnrýni og ótti við mistök mjög algeng en
kannski eru það einmitt líka þessir þættir sem
gera fólk að góðum læknum. Sumir bogna undan
kröfunum og þurfa aðstoð. Þar hefur skort nokkuð
á eins og rannsóknir okkar í Noregi sýna glöggt.
Ur því erum við að bæta. Þegar læknir er einnig í
hlutverki sjúklings koma upp ákveðnar mótsagnir,
eins og varðandi þagnarskyldu og að gefa út
lyfseðil á sjálfan sig. í fleiri löndum en Noregi
hafa yfirvöld áttað sig á því að þörf er sérstakrar
heilsugæslu fyrir lækna."
Ingunn segir að í rannsókn sinni á íslenskum
læknum sé markmiðið að allir læknar sem
starfa á Islandi fái sendan spurningalista í
lok janúar. „Við höfum rætt við fulltrúa frá
landlæknisembættinu, Læknafélagi íslands,
vinnueftirlitinu og læknaráði og voru þeir einnig
beðnir um álit á spurningunum. Vonandi skilar
rannsóknin gagnlegum niðurstöðum fyrir alla.
Aðal áskorunin er að fá sem flesta lækna til að
svara. Urvinnsla gagnanna fer fram næsta sumar/
haust í háskólanum í Osló og fyrstu niðurstaðna er
að vænta næsta haust."
1. Tyssen R. Health Problems and the Use of Health Services
among Physicians; A Review article with Particular Emphasis
on Norwegian Studies. Industrial Health 2007; 45: 599-610.
Ingunn Bjamadóttir Solberg
og prófessor Reidar Tyssen.
Hávar
Sigurjónsson
i
i
LÆKNAblaðið 2009/95 873