Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 61

Læknablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 61
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR GEÐHEILSA LÆKNA Rannsaka vinnuánægju, lífsánægju og geðheilsu íslenskra lækna Á fyrrihluta næsta árs verður framkvæmd umfangsmikil rannsókn hérlendis á vinnu- ánægju, lífsánægju og geðheilsu íslenskra lækna með áherslu á tengsl við starf og starfsumhverfi. Rannsóknin er framkvæmd af íslenskum læknanema á rannsóknarbraut við Oslóarháskóla, Ingunni Bjarnadóttur Solberg, undir handleiðslu prófessors Reidars Tyssens við deild atferlisvísinda í læknisfræði. Fyrirmynd þessa verkefnis er stór langtímarann- sókn sem deild atferlisvísinda og norska lækna- félagið hófu árið 1993 þar sem 1000 norskum læknum og læknastúdentum hefur verið fylgt eftir í 15 ár. Tyssen hefur umsjón með þessari rannsókn og hafa verið birtar á sjötta tug greina í vísindalegum tímaritum sem hafa veitt mikilvægar upplýsingar um geðheilsu lækna, starfsánægju og fleira.1 Meginniðurstöður Tyssens og samstarfsmanna hans eru þær að geðheilsu norskra lækna er almennt svipað farið og Norðmanna almennt en þó eru nokkur mikilvæg frávik. Tíðni þunglyndis og sjálfsmorða er allt að tvöfalt hærri meðal læknanna en almennings og tengsl geðrænna vandamála við litla stjórn á vinnuumhverfi, tímapressu og krefjandi sjúklinga koma skýrt fram. Munur á milli kynja er lítill framan af starfsferli læknanna en margt bendir til þess að fleiri konur en karlar lendi í vanda síðar á starfsferlinum. Læknarnir taka sér sjaldan veikindaleyfi og nýta sér síður þjónustu heilbrigðiskerfisins en allur almenningur. Sjálfsmeðhöndlun er algeng, jafnvel við geðrænum vandamálum. I samtali Læknablaðsins við Tyssen og Ingunni kemur fram að ekki er sjálfgefið að rannsókn á geðheilsu, starfsánægju og lífsánægju íslenskra lækna skili sömu niðurstöðum og í Noregi, og verður fróðlegt að sjá hverjar þær verða. Tyssen segir að í Noregi hafi læknafélagið opnað meðferðarstöð fyrir lækna og hjúkrunarfræðinga, svokallað Low threshold facility (Villa sana við sjúkrahúsið Modum bad) þar sem þeir geta leitað með stuttum fyrirvara og án tílvísunar og fengið meðferð/ráðgjöf í 1-7 daga eftir óskum og þörfum hvers og eins. „Það er ljóst að ákveðin einkenni eru algengari en önnur meðal lækna, og þetta höfum við tengt við krefjandi starfsumhverfi en þetta snýr einnig að persónugerð lækna. Þar eru einkenni eins og ofurnæmi, fullkomnunarþörf, viðkvæmni fyrir gagnrýni og ótti við mistök mjög algeng en kannski eru það einmitt líka þessir þættir sem gera fólk að góðum læknum. Sumir bogna undan kröfunum og þurfa aðstoð. Þar hefur skort nokkuð á eins og rannsóknir okkar í Noregi sýna glöggt. Ur því erum við að bæta. Þegar læknir er einnig í hlutverki sjúklings koma upp ákveðnar mótsagnir, eins og varðandi þagnarskyldu og að gefa út lyfseðil á sjálfan sig. í fleiri löndum en Noregi hafa yfirvöld áttað sig á því að þörf er sérstakrar heilsugæslu fyrir lækna." Ingunn segir að í rannsókn sinni á íslenskum læknum sé markmiðið að allir læknar sem starfa á Islandi fái sendan spurningalista í lok janúar. „Við höfum rætt við fulltrúa frá landlæknisembættinu, Læknafélagi íslands, vinnueftirlitinu og læknaráði og voru þeir einnig beðnir um álit á spurningunum. Vonandi skilar rannsóknin gagnlegum niðurstöðum fyrir alla. Aðal áskorunin er að fá sem flesta lækna til að svara. Urvinnsla gagnanna fer fram næsta sumar/ haust í háskólanum í Osló og fyrstu niðurstaðna er að vænta næsta haust." 1. Tyssen R. Health Problems and the Use of Health Services among Physicians; A Review article with Particular Emphasis on Norwegian Studies. Industrial Health 2007; 45: 599-610. Ingunn Bjamadóttir Solberg og prófessor Reidar Tyssen. Hávar Sigurjónsson i i LÆKNAblaðið 2009/95 873
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.