Læknablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 35
UMFJÖLLUN O G GREINAR
„ Útreiknitigarnir í Siglu hafa sýnt góöa aögreiningu á þeim sem eru með Alzheimer frá heilbrigöum og líka þeim sem
liafa aðra sjúkdóma í heila, segir Jón Snædæl." Myndir: Gunnþóra.
þannig vísindamönnum í lyfjaframleiðslu
að þróa lyf sem gæti hægt á sjúkdómnum
eða læknað hann?
„Vísindamenn í lyfjatækni hafa sýnt
þessu áhuga, veit ég. Það er eitthvað sem
ég kem ekkert nálægt. Spurningin sem
að okkur læknum snýr er hvernig tækið
nýtist í heilsugæslu. Við höfum notað það
í minnismóttökunni á Landakoti í rúmt ár
og nú er verið að bjóða heimilislæknum að
senda fólk í greiningarmiðstöð sem Mentis
Cura hefur opnað í Álftamýrinni. Það ætti
að auðvelda þeim að taka ákvarðanir um
hvort einstaklingur þurfi nánari skoðun
eða ekki."
Jón segir ekki óalgengt að fólk á
miðjum aldri sem hafi upplifað erfiðan
minnissjúkdóm hjá foreldri sínu komi til
læknis þegar það finni að það sé farið að
gleyma nöfnum og vilji fá úr því skorið
hvort það sé með Alzheimer. „Það kemur
fyrir alla sem komnir eru yfir miðjan
aldur að gleyma nöfnum og ef engin
önnur einkenni eru um minnissjúkdóm
og heilaritið reynist eðlilegt þá þarf ekki
frekari rannsókn. Ég á von á því að slík til-
felli stoppi í heilsugæslunni þegar læknar
þar hafa tileinkað sér Siglu. Þannig að hún
getur hjálpað til við ákvarðanatöku." Hann
tekur fram að tækið sé enn £ þróun, það
gildi um flest rannsóknartæki að þau taki
breytingum. „Tölvusneiðmyndatæki sem
eru notuð í dag eru miklu fullkomnari en
þau sem komu fyrst á markað. Þannig er
það með flest í tæknivæddri veröld."
Virðist greina Lewy-sjúkdóm
Að sögn Jóns virðist heilaritið einnig koma
býsna vel út við greiningu á Lewy-sjúk-
dómi sem er næstalgengasti hrörnunar-
sjúkdómurinn. Samkvæmt alþjóðlegum
rannsóknum tekur hann til 15-20% þeirra
sem eru með hrörnunarsjúkdóm í heila.
„Það er allt annar sjúkdómur en Alzheim-
er. Á miklu meira skylt við Parkinson og
við honum eru að einhverju leyti gefin
önnur lyf en við Alzheimer/' útskýrir
Jón og segir hvorki hægt að greina sjúk-
dóminn með segulómun, mænuvökva né
PET-skanni. „Það er til ein aðferð og hún
er frekar flókin. Þannig að ef niðurstöður
Mentis Cura standast og heilaritið reynist
vel í sambandi við Lewy-sjúkdóm þá er
það mjög athyglisvert og alger nýjung. En
þar verðum við að hafa enn meiri fyrir-
vara en með Alzheimer-greininguna, því
það eru miklu færri einstaklingar með
Lewy í gagnagrunninum í Siglu, eðli máls-
ins samkvæmt."
Meðalaldur þjóða fer ört hækkandi og
þar með fjölgar þeim sem glíma við Alz-
heimer og aðra öldrunarsjúkdóma. „Það
er feikileg fjölgun framundan á heims-
vísu/' segir Jón. „Hún er náttúrlega mest í
þróunarlöndunum en hún verður töluvert
mikil hér lika á næstu árum sem byggist á
því að með aukinni velmegun eftir seinni
heimsstyrjöld komust flest börn á legg.
Þegar ég skoða fjölda þeirra sem eru 65 ára
og eldri á íslandi, þá er fjölgunin frá 2010-
2015 um 5% og 2015-2020 er hún vel yfir
10%. Þá eru stórir árgangar sem fæddust á
árunum 1945-55 að koma inn í þann hóp.
Svo fer pillan að hafa áhrif og þá hægir
aðeins á fjölguninni."
Jón kveðst hafa haft gaman af að taka
þátt í vísindarannsóknunum í Mentis Cura
og fylgjast með hvernig hefur gengið.
„Auðvitað verður maður alltaf að hafa hóf-
legar væntingar. Það er allt endurreiknað
hvað eftir annað til að vera viss. Kristinn
Johnsen hefur gert það. En einhvern veg-
inn er sama hvernig þessu er snúið, niður-
stöðurnar eru alltaf svipaðar. Svo við erum
nokkuð öruggir um að Sigla hafi heilmikið
gildi fyrir læknavísindin."
LÆKNAblaðið 2013/99 207